Fréttablaðið - 20.05.2011, Page 19

Fréttablaðið - 20.05.2011, Page 19
FÖSTUDAGUR 20. maí 2011 Bölvaðir ósiðir Árið 2009 var David Nutt, aðalráðgjafi bresku ríkis- stjórnarinnar í fíkniefnamál- um, látinn fara fyrir að halda því fram í vísindagrein að áfengi og tóbak væru skaðlegri en mörg ólögleg efni, til dæmis kannabis, LSD eða alsæla. Það hljómar auðvitað undarlegt að reka mann fyrir að halda því fram að áfengi sé skaðlegt. En sá sem heldur því fram að áfengi sé skaðlegra en LSD er um leið að halda því fram að LSD sé minna skaðlegt en áfengi. Og þrátt fyrir að báðar staðhæfingarnar séu jafngild- ar þykir önnur ásættanleg en hin ekki. David Nutt þurfti að taka pokann sinn. Þáverandi innanríkisráð- herra Bretlands lýsti vonbrigð- um yfir ummælum vísinda- mannsins „sem sköðuðu þá stefnu að færa almenningi skýr skilaboð um skaðsemi fíkni- efna“. Þannig er það nú. Það þarf enginn að segja almenn- ingi að sólin sé miðjan þegar allir sjá hvað snýst og hvað situr kjurt. Skilaboðin eiga að vera skýr. Hér er því ekki haldið fram að ef einhver vísindamaður hafi sagt eitthvað hljóti það að vera satt. Rannsóknum ber að taka með varúð. Það tekur langan tíma fyrir vísindasamfélagið að komast að niðurstöðu. Sumt af því sem fullyrt er, eins og það að reykingar valdi miklum líkamlegum skaða, er nokkuð vel sannað. En margt annað af því sem greint er frá í fjölmiðlum ber að skoða með miklum vafa. Engu að síður verðum við að hafa augum opin fyrir þeim möguleika að við höfum hugsanlega farið ranga leið í núverandi fíkniefnastefnu okkar. Vísindin verða að fá að eiga sinn gang, og ef tilgangur rannsókna er einungis að festa í sessi núgildandi viðhorf fólks getum við einfaldlega sleppt því að stunda rannsóknir og reka háskóla. Pólitíkin verður að láta vísindin í friði. Það hljómar ekki órökrétt að meta afstöðu okkar til ólíkra eiturlyfja út frá þeirri skað- semi sem þau valda einstak- lingnum og samfélaginu. Áðurnefndur David Nutt stýrði á seinasta ári rannsókn þar sem reynt var að leggja mat á umrædda þætti og raða fíkniefnum í skaðsemisröð, þar sem þau skaðlegustu koma fremst. Listinn var: 1. áfengi, 2. heróín, 3. meþamfetamín, 4. krakk, 5. kókaín, 6. tóbak 7. amfetamín 8. kannabisefni. E-töflur og LSD enduðu í sætum 17 og 18. Fyrstu viðbrögð við könnun sem þessari eru auðvitað að tengja hátt skor áfengis við að það sé löglegt. Aðgengi eykur neyslu, neysla eykur vanda. Ef áfengisneyslu yrði skipt út fyrir krakkneyslu fengjum við varla betra samfélag. Það eru rétt viðbrögð, enda hefur David Nutt viðurkennt að rann- sóknin taki ekki til aðgengis. En þótt einungis sé tekið tillit til líkamlegrar skaðsemi og þess hve ávanabindandi ólík efni eru, miðað við aðrar rann- sóknir, virðast hin vísindalegu rök fyrir því að banna kann- abisefni en leyfa áfengi ekki endilega óyggjandi. Vísbendingar um að ríkjandi viðhorf kunni að byggja á hæpnum forsendum falla oft í grýttan jarðveg. Flestir styðja skoðanir sínar í þessum málum í samræmi við víðtekna gogg- unarröð fíkniefna. Það er til dæmis kannski ekki auðvelt að styðja vínsölu í sjoppum ef rannsóknir benda til að vín sé hættulegra en hass. Að sama skapi styrkir það ekki baráttu gegn lögleiðingu kannabis- efna ef einhverjar rannsóknir benda til að sum slíkra efna séu hættuminni en vörur sem þegar eru löglegar. Það er auðvitað mikilvægt að átta sig á því að fíkniefna- stefna er byggð á pólítískum og menningarlegum forsendum, ekki síður en vísindalegum. Spurning er hvort það sé gott. Eitt dæmi að lokum: Að und- anförnu hafa menn þannig hert lagalega baráttu gegn hvers kyns reyklausu tóbaki. Helsta ástæða þess er einfaldlega sú að það hefur verið hægt. Munn- og neftóbaksneysla hefur ekki skotið mjög sterkum rótum í samfélaginu, ólíkt til dæmis reyktóbaki. Vísindalega hníga auðvitað fá rök að því að banna með öllu neyslu þessara efna umfram annað sem þegar er í löglegri umferð. Munntóbak hvorki gerir fólk stjórnlaust né ofbeldisfullt né heldur veldur það neinum líkamlegum skaða á öðrum en þeim sem þess neytir. En munn- og neftóbaksneysla eru auðvitað bölvaðir ósiðir. Og hver ætlar að berjast gegn banni á bölvuðum ósiðum? Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG Sumt af því sem fullyrt er, eins og það að reykingar valdi miklum líkamlegum skaða, er nokkuð vel sannað. En margt annað af því sem greint er frá í fjölmiðlum ber að skoða með miklum vafa. FATA MARKA ÐUR LAUGA RDALS HÖLL LAUGA RDALH ÖLLIN Opið frá 12:00-19:00 Glænýjar vörur beint frá London! Ráðstefnan er haldin í tilefni af degi upplýsinga- tækninnar og verður athyglinni beint að vefgáttum opinberra aðila í dagskrá dagsins. Yfirmaður Borger.dk, sem er þjónustuvefur danskra ríkis- stofnana og sveitarfélaga, mun segja frá þróun hans og framtíðaráformum Dana um netþjónustu. Einnig verður sagt frá nýjungum og breytingum á Ísland.is, en verkefnið fluttist til Þjóðskrár Íslands um síðustu áramót. Opnuð verður ný Menntagátt, sagt frá framsæknum verkefnum hjá Hafnarfjarðarbæ og Reykjavíkurborg, fjallað um tæknina bak við tjöldin og kynnt áform um aukna samvinnu ríkis og sveitarfélaga um opinberar vefgáttir. Að ráðstefnunni standa forsætisráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Skýrslutæknifélag Íslands. NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á www.sky.is DAGSKRÁ KL. 13:00 - 16:15 miðvikudaginn 25.maí 2011 á Hótel Hilton Nordica OPIÐ UPP Á GÁTT HJÁ RÍKI OG SVEITARFÉLÖGUM RÁÐSTEFNA UT-DAGSINS Ráðstefnustjóri: Arnar Þór Másson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu Undirbúningsnefnd:  Guðbjörg Sigurðardóttir – forsætisráðuneytinu, Anna G. Björnsdóttir – Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Arnheiður Guðmundsdóttir – Skýrslutæknifélaginu, Guðfinna B. Kristjánsdóttir – Garðabæ, Halla Björg Baldursdóttir – Þjóðskrá Íslands, Hermann Ólason – Tryggingastofnun, Hjörtur Grétarsson – Reykjavíkurborg 12:45 Afhending ráðstefnugagna 13:00 Ávarp: Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 13:15 Borger.dk - The Citizens Portal - Lessons learned and future plans Jimmy Kevin Pedersen, Head of Division, Ministry of Science, Technology and Innovation 13:45 Kvartett – þjónusta í boði Ísland.is Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Þjóðskrár Íslands 14:05 Tæknin bak við tjöldin: • „Er það eitthvað o’ná brauð?“ - Samvirkni í rafrænni þjónustu Arnaldur F. Axfjörð, sérfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu • Rafræn framkvæmd almannatrygginga innan EES – milli stofnana og yfir landamæri Hermann Ólason, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Tryggingastofnunar • Sjálfvirkni og hagræðing í upplýsingatæknikerfum Reykjavíkurborgar Hjörtur Grétarsson, upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar 14:35 Kaffi 14:55 Opnun nýrrar Menntagáttar Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra Kynning á nýrri Menntagátt • Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu • Tryggvi Björgvinsson, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu 15:20 Betri Reykjavík – Sjálfbært gegnsæi • Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn • Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn 15:40 Frá vorskipum að tölvuskjánum Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar 16:00 Ísland.is - tækifæri til samstarfs og framþróunar Guðríður Arnardóttir, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga PO R T hö nn un

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.