Morgunblaðið - 06.12.2008, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2008
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
Krókhálsi 3 569 1900Sv
un
tu
ro
g
di
sk
am
ot
tu
r
Leður-
svunturnar
vinsælu
• svartar
• brúnar
• rauðar
Verð kr. 9.900
Diskamottur
úr leðri
• svartar
• dökkbrúnar
Verð kr. 2.100
PO
RT
hö
nn
un
Opið kl. 8:30-16:30 mán.-fös.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
44
39
1
11
/0
8
JÓLAGJÖFIN
SEM FLÝGUR ÚT
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
VERÐ FRÁ 26.900 KR.
+ Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2009.
+ Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign
upp í fargjöld með Icelandair.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
I EF ÞÚ BORGAR JÓLAPAKKANN MEÐ VILDARKORTI VISA
OG ICELANDAIR FÆRÐU 5.000 AUKA VILDARPUNKTA.
I ATHUGIÐ AÐ HÆGT ER AÐ GREIÐA FYRIR HÓTELGISTINGU MEÐ VILDARPUNKTUM,
FRÁ 14.000 PUNKTUM Á NÓTT FYRIR TVO.
Traustur
íslenskur ferðafélagi
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2008 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. desember til og með 23. jan. 2009.
Jólapakkatilboð gildir til Boston, New York, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, London, Manchester, Frankfurt, Parísar og Amsterdam.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 750–11.200 Vildarpunkta.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur
FRUMVARP um launalækkun ráð-
herra og þingmanna var samþykkt á
fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorg-
un. Frumvarpið var í kjölfarið sent
til þingflokka stjórnarflokkanna, en
gert er ráð fyrir að það verði lagt
fram á Alþingi í næstu viku.
„Við eftirlátum ráðinu hina end-
anlegu ákvörðun um hina endanlegu
lækkun. Ráðið fær þá lagaskyldu að
úrskurða um slíka lækkun, í fyrsta
lagi hjá þingmönnum og ráðherrum
og svo í öðru lagi að meta hvernig
það gæti átt við um aðra,“ sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra eftir
fundinn.
Geir sendi formanni kjararáðs,
Guðrúnu Zoëga, bréf fyrir tveimur
vikum og mæltist til þess að ráðið
lækkaði kjör æðstu ráðamanna um
5-15% eftir tekjum hvers og eins.
Ráðið taldi sig hins vegar ekki hafa
lagaheimild til slíkrar lækkunar og
því verður lagaskylda sett á það.
Tímabundin lækkun
Geir sagði frumvarpið gera ráð
fyrir launalækkun allt árið 2009,
þetta væri tímabundin lækkun. „Svo
verða menn að taka afstöðu til þess
eftir 2009 hvað tekur við. Það fer
mikið eftir því hvað gerist úti á hin-
um almenna markaði, því það er sú
viðmiðun sem kjararáð á að nota,
svona almennt talað,“ sagði hann.
Lækkunin nær til þingmanna og ráð-
herra, en kjararáði er eftirlátið að
meta með hvaða hætti á að ná til ann-
arra sem undir það heyra.
Setja lagaskyldu
á kjararáð
Launalækkunin samþykkt í ríkisstjórn
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FJÁRLAGANEFND Alþingis vinn-
ur að frumvarpi til breytingar á lög-
um um Ríkisendurskoðun. Tilgang-
urinn er sá að Ríkisendurskoðun,
sem er undirstofnun þingsins, fái
heimild til þess að veita fjárlaga-
nefnd aðgang að þeim gögnum sem
hún safnar samkvæmt endurskoðun
ríkisreikninga. Þetta á ekki síst við
upplýsingar um rekstur opinberra
hlutafélaga á borð við Landsvirkjun,
RÚV, nýju bankana og Flugstoðir
svo eitthvað sé nefnt. Opinber hluta-
félög nefnast e-hluta stofnanir í rík-
isreikningnum.
Gunnar Svavarsson, formaður
nefndarinnar, segir Alþingi ekki fá
nægjanlegar upplýsingar um þenn-
an rekstur, hann sé nokkurs konar
fríðsvæði. Hins
vegar sé eðlilegt
að þar sé gengið í
takt við rík-
isreksturinn að
mörgu leyti, t.d. í
launamálum þeg-
ar harðnar á
dalnum. „Það
kallast jöfnuður,“
segir Gunnar.
Hann segir
þagnarskyldu þá gilda um þær upp-
lýsingar sem nefndin fær, en þær
verði hægt að nota til samanburðar
við ríkisreksturinn í heild. „Það er
þó alltaf ákvörðun hluthafans, en
ekki fjárlaganefndar, ráðherrans á
hverju sviði, hvort hann sendir
stjórn fyrirtækisins tilmæli um ein-
hverja stefnubreytingu,“ segir
Gunnar.
Meiri vitneskju
um ohf. hlutann
Jafnt gangi yfir alla í ríkisrekstrinum
Gunnar
Svavarsson
Hafði ekki greitt
Bæjarstjórinn í Kópavogi hafði ekki
greitt fyrir lóðina í Fróðaþingi. Bæj-
arráð afturkallaði úthlutun lóð-
arinnar til bæjarstjórans þegar það
kom í ljós að lóðin hafði ekki verið
auglýst eins og reglur kveða á um.
Víkurvagnar smíðuðu
þjóðarskútuna
Þau leiðu mistök urðu í umfjöllun
um úthlutun Mæðrastyrksnefndar í
blaðinu á fimmtudag að nafn fyr-
irtækisins sem smíðaði og gefur
nefndinni Þjóðarskútuna svokölluðu
misritaðist. Hið rétta er að það eru
Víkurvagnar sem eiga heiðurinn af
skútunni. Er beðist velvirðingar á
þessu.
LEIÐRÉTT
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði kannabisræktun í húsi í
miðborginni eftir hádegi í gær. Við
húsleit á áðurnefndum stað fundust
um 20 kannabisplöntur á ýmsum
stigum ræktunar. Karl um fertugt
var handtekinn í þágu rannsóknar
málsins. Hann hefur áður komið við
sögu hjá lögreglu, meðal annars
vegna fíkniefnamála.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að
hamla gegn sölu og dreifingu fíkni-
efna en sem fyrr vill lögreglan minna
á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann
má hringja nafnlaust til að koma á
framfæri upplýsingum um fíkniefna-
mál. Fíkniefnasíminn er samvinnu-
verkefni lögreglu og tollyfirvalda og
er liður í baráttunni við fíkniefna-
vandann.
Ræktaði
kannabis í
miðbænum