Morgunblaðið - 06.12.2008, Page 35
Daglegt líf 35ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2008
Við veitum vegleg
verðlaun fyrir bestu
jólasögu ársins.
Eina skilyrðið er að
sagan sé sönn og
styttri en 400 orð.
Skrifaðu sanna jólasögu
og sendu í tölvupósti
á svanhvit@mbl.is
Skilafrestur er til
16. desember.
Bestu jólasögurnar
verða birtar á
aðfangadag.
Vertu með í
jólasögusamkeppni
Morgunblaðsins!
(í 400 orðum eða minna)
Höfundur
verðlaunasögunnar
fær veglega gjafakörfu
frá Nóatúni ásamt
bókinni Veisla með
fjölskyldu og vinum.
Höfundar annarra sagna
sem verða birtar fá
einnig þessa vönduðu
bók að launum.
Sönn jól
Njóttu jólanna til fulls.
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ljósin á vinabæjarjólatré Reykja-
nesbæjar frá Kristiansand verða
tendruð á Tjarnargötutorgi klukk-
an 18 í dag, eins og venja er fyrsta
laugardag desembermánaðar. Auk
jólasveinanna sem alltaf koma og
gleðja börnin kemur blásarasveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
fram ásamt barnakórum Holta-
skóla og Heiðarskóla. Þá afhendir
Herdís Egilsdóttir rithöfundur
verðlaun fyrir teikningar og bréf
sem valin voru úr fjölda bréfa og
teikninga sem börn færðu skess-
unni á nýliðinni fjölskylduhátíð í
Reykjanesbæ.
Þeir sem starfa við hjálparstörf af
einhverju tagi hafa orðið varir við
vaxandi fjölda styrkbeiðna. Við því
hefur verið brugðist í Reykja-
nesbæ og nágrannasveitarfélög-
unum með stofnun Velferðarsjóðs
Suðurnesja. Sjóðurinn hefur það
hlutverk að vera eins konar regn-
hlíf yfir aðrar stofnanir og samtök
sem vinna að hjálparstörfum og
jafnframt að auðvelda áhugasöm-
um að styrkja málaflokkinn. Fram-
lög eru frjáls í sjóðinn og hafa nú
þegar margir brugðist við og lagt
sjóðnum lið.
Sem dæmi um stuðning til Vel-
ferðarsjóðs er söfnun jólagjafa
undir jólatré sem stendur í hús-
næði sem tíu handverkskonur hafa
tekið á leigu í Kjarna, Hafnargötu
57. Starfsmannafélög einstakra
fyrirtækja hafa meðal annars
ákveðið að verja fé sjóðsins til jóla-
gjafa, en einstaklingar geta ekki
síður komið og bætt í gjafafjöld-
ann.
Fjórar hvunndagshetjur reka
kærleikskaffi á Glóðinni á mánu-
dögum og þriðjudögum til styrktar
sjóðnum og haldnir verða styrkt-
artónleikar í Bláa lóninu 18. des-
ember. Þeir sem koma fram eru
Elíza Geirsdóttir Newman, Jóhann
Helgason, Karlakór Keflavíkur,
Klassart, Kvennakór Suðurnesja,
Magnús, Kjartan Már og Finnbogi
Kjartanssynir, Sigurður Guð-
mundsson, Védís Hervör Árna-
dóttir og Þóranna Kristín Jóns-
dóttir.
Árlegir hádegisjólatónleikar Tón-
listarfélags Reykjanesbæjar verða
haldnir föstudaginn 12. desember í
Listasafni Reykjanesbæjar. Í ár
munu félagarnir í Nýja kvart-
ettinum flytja lög af nýútkomnum
diski sem ber heitið Fegursta rós-
in. Tónleikarnir hefjast kl. 12:15 og
verður boðið upp á piparkökur og
jólaglögg.
Nýjum leiktækjum hefur verið
komið upp við Njarðvíkurskóla,
nemendum og öðrum íbúum
Njarðvíkur til mikillar ánægju.
Um er að ræða nýjar rólur af
nokkrum stærðum, snúningstæki
og klifurpýramída sem líkist
kóngulóarvef.
Guðrún Eva Mínervudóttir, Úlfar
Þormóðsson, Bryndís Schram og
Stefán Máni munu lesa upp úr ný-
útkomnum bókum sínum á árlegu
Bókakonfekti í Bíósal Duushúsa á
morgun, 7. desember, kl. 16. Þessi
upplestur á aðventu hefur alltaf
verið vel sóttur og er orðinn fastur
liður í tilverunni. Stúlknatríóið
Konfekt leikur hugljúfa jólatónlist
á milli upplestra. Hægt verður að
kaupa bækur höfundanna á staðn-
um og fá áritaðar um leið og kon-
fektinu er sporðrennt.
REYKJANESBÆR
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Lifa og leika sér Nýju leiktækin við Njarðvíkurskóla vekja mikla lukku.
EF MARKA má hönnun Indónesans
Ian Adrian á „Tískusprengingunni
2009“ sem fram fór í höfuðborginni
Jakarta í vikunni verður hvíti lit-
urinn alls ráðandi í tískufatnaði
næsta árs. Á sýningunni sýndi einn-
ig fjölda annarra hönnuða, aðallega
heimamenn og voru flíkur þeirra
fjölbreyttar og sumar hreint æv-
intýralegar.
Á sýningunni er sýnd tíska næsta
árs og bíða margir spenntir eftir
því að sjá hvað metnaðarfullir
hönnuðir Indónesíu hafa fram að
færa á tískusviðinu.
Sýningin vekur alla jafna gríð-
arlega athygli og sækir hana tísku-
áhugafólk frá öllum heimshornum.
Hugmyndir vakna sem síðan
skila sér í klæðnaði sem almenn-
ingur klæðist.
Hvítt og
rykkt eftir
áramótin
Reuters