Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. D E S E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 323. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is Smákökur Sýnishorn af bakstri num *Nánar um skilmála á flytjandi.is PI PA RR \ TB W AA T ••• SÍ A • 9 SÍ A • 9 8 81 18 81 91 8 Jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins Dregið 24. desember 2009 163 skattfrjálsir vinningar að verðmæti 22.690.000 kr. «DAGLEGTLÍF LANDINN DUGLEGUR AÐ BÚA TIL EIGIN SPIL «MENNING Það má sjá kómík í öllum aðstæðum 6 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is FÉLAGIÐ Fertil ehf. stefnir að byggingu risastórrar verksmiðju til framleiðslu á áburði og kalíum- nítrati hér á landi. Fjárfestingin yrði ekki undir 30 milljörðum skv. heimildum og raforkuþörfin 350 MW. Forsvarsmenn félagsins hafa staðið fyrir mikilli undirbún- ingsvinnu og m.a. rætt við ráðherra, Fjárfestingarstofu, orkufyrirtæki og sveitarstjórnarmenn auk er- lendra aðila. Verði þessar framkvæmdir að veruleika eru einna mestar líkur taldar á að verksmiðjunni yrði fund- inn staður í Þorlákshöfn. Áætlanir gera ráð fyrir að verksmiðjan fram- leiði 700 þúsund tonn af áburði auk 760 þúsund tonna af kalíumnítrati til útflutnings. Fyrst þarf þó að leysa úr orkuþörf fyrirtækisins að sögn Eggerts Guðmundssonar, byggingarfræðings og eins for- svarsmanna Fertils. Talinn er góður markaður fyrir afurðirnar á alþjóðamarkaði. „Ráð- gjafar okkar í Bretlandi eru að loka ferlinu við sölu afurðanna og að tryggja okkur hráefni til næstu 20 ára,“ segir Eggert. Undirtektir jákvæðar Með starfsemi verksmiðjunnar yrðu til 150 bein störf, þar af 50 til 60 fyrir fólk með hátt mennt- unarstig. Þá gera áætlanir ráð fyrir að afleidd störf yrðu þrisvar til fjór- um sinnum fleiri. Auk þess yrði fjöldi starfa til við stórskipahöfn sem reist yrði. ,,Við þyrftum að flytja inn 500 til 600 þúsund tonn af hráefni til framleiðslunnar og út- flutningurinn yrði um 1,4 milljónir tonna,“ segir hann. Vonir standa til að félagið verði í eigu Íslendinga. Hafa undirtektir verið mjög jákvæðar, að sögn Egg- erts. Að mati heimildarmanna sem hafa kynnt sér áætlanirnar hefur félagið unnið vandaðar áreið- anleikakannanir og undirbúnings- vinnu bæði hér á landi og í Bret- landi, Bandaríkjunum og Noregi.  Stefna á | 4 Vilja reisa risaverksmiðju til áburðarframleiðslu  Útflutningurinn yrði 1,4 milljónir tonna  150 störf yrðu til með starfseminni ÁRLEG æfing Lögregluskóla ríkisins og Landhelgisgæslu Íslands fór fram í gær. Segja má að nemar Lögregluskólans hafi fengið mikið fyrir pening- inn enda veður vont og slæmt í sjóinn; kjöraðstæður fyrir æfingu. Allir fengu nemarnir að fara í sjóinn og voru í kjölfarið hífðir upp í þyrlu Gæslunnar. Að sögn upplýsingafulltrúa Gæslunnar varð engum meint af volkinu en nemarnir urðu að vonum kaldir og blautir. LÖGREGLUNEMAR HÍFÐIR ÚR KÖLDUM SJÓ Morgunblaði/Árni Sæberg FYRSTU niðurstöður úttektar Cre- ditinfo benda til þess að um 3.400 fyrirtæki í landinu standi sterkt hvað reksturinn varðar. Þetta eru um 11% þeirra nærri 30 þúsund fyr- irtækja sem eru á hlutafélagaskrá. Flest þessara fyrirtækja eru á höfuðborgarsvæðinu, eða um 2.400, en miðað við heildarfjölda fyrirtækja á hverju landsvæði virðast hlutfalls- lega flest fyrirtæki vera í lagi á Norðurlandi eystra, eða 15%. Athugun Creditinfo náði ekki til stærstu bankanna og þau sem ekki komast í þennan flokk stöndugra fyrirtækja eru félög á vanskilaskrá og svonefnd skúffufyrirtæki, eða eignarhaldsfélög sem ekki eru í neinum rekstri. Sömuleiðis fyrirtæki sem hafa farið í greiðsluþrot og lenda í áhættumestu lánaflokkum Creditinfo. Að sögn Rakelar Sveins- dóttur hjá Creditinfo á eftir að vinna nánar úr niðurstöðunum. | Viðskipti Um 3.400 fyrirtæki teljast í lagi eftir bankahrunið  Þrotabú Baugs hefur gjaldfellt lán sem Baugur veitti Högum seint á árinu 2004. Upp- haflega lánið var upp á nokkur hundruð millj- ónir króna, en krafa þrotabúsins á Haga nemur tæplega milljarði króna vegna áfallinna vaxta síðustu fimm ár. Hagar hafa fengið frest til að skila inn greinargerð þar til í janúar, en þá kemst málið á dagskrá dómstóla. Ágreiningur snýr að því hvort gjaldfelling þrotabúsins hafi verið lögmæt, en Hagar höfðu samið við Baug í lok 2008 um að framlengja lánagjalddaga til 2011. »Viðskipti Þrotabú Baugs gjaldfellir milljarðskúlulán til Haga  Afgangur vöruskipta og þjón- ustu mun duga fyrir heildar- vaxtargreiðslum þjóðarbúsins er- lendis á næstu árum, samkvæmt nýrri spá IFS. Um leið og Icesave- skuldin kemur til greiðslu á árinu 2016 munu heildarvaxtagreiðslur hins vegar aukast mikið, og heildarskuldastaða þjóðarinnar erlendis mun versna á ný. Sé gert ráð fyrir jafnri og þéttri aukningu vöruskiptaafgangs um 2% á ári hverju fram til ársins 2019 mun afgangur utanríkisviðskipta standa undir vaxtagreiðslum vegna erlendra skulda á árinu 2019, sé miðað við að allur afgang- ur verði notaður til greiðslu á þeim. »Viðskipti Morgunblaðið/Golli Bjartsýnisspá sýnir erfiða stöðu þjóðarbúsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.