Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BRESKI fræðimaðurinn Nicholas Stern lávarð- ur segir í nýrri skýrslu að líklegt sé að meðal- hitastigið í heiminum hækki um 5°C fyrir lok aldarinnar með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir heimsbyggðina ef ekki næst samkomulag á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn um að- gerðir til að stemma stigu við losun gróðurhúsa- lofttegunda. Stern telur að hægt verði að ná því markmiði að hlýnunin verði undir 2°C – en þó aðeins ef ríki heims samþykkja á ráðstefnunni að draga stór- lega úr losuninni á næstu árum og áratugum. „Þetta er mikilvægasti fundur frá síðari heimsstyrjöldinni, með hliðsjón af því sem er í húfi,“ hafði The Daily Telegraph eftir Stern um loftslagsráðstefnuna sem hefst á mánudaginn kemur og stendur til 18. desember. Stern er fyrrverandi aðalhagfræðingur Al- þjóðabankans og skýrsla hans frá 2006 er álitin hafa haft meiri pólitísk áhrif en nokkur önnur bresk skýrsla um loftslagsmál. Í þeirri skýrslu áætlaði Stern að kostnaðurinn við að draga nægilega úr losuninni – m.a. með fjárfestingum í endurnýjanlegum orkugjöfum – næmi um 1% af landsframleiðslunni en hann telur nú að kostn- aðurinn verði um 2% og hugsanlega allt að 5%, að því er fram kemur á fréttavef The Times. Stern segir að til að koma í veg fyrir að hlýn- unin verði meiri en 2°C fyrir lok aldarinnar þurfi iðnríkin að samþykkja metnaðarfyllstu mark- miðin um aðgerðir til að draga úr losun gróður- húsalofttegunda. T.a.m. þurfi Evrópusambandið að minnka losunina um 30% fyrir 2020. „Mikilvægasti fundur frá stríðslokum“  Nicholas Stern telur að loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn sé síðasta tækifærið til að afstýra stórfelldum loftslagsbreytingum  Segir að kostnaðurinn verði miklu meiri en talið hefur verið Í HNOTSKURN » Phil Jones, yfirmaðurLoftslagsdeildar háskól- ans í Austur-Anglíu, hefur ákveðið að láta af störfum þar til óháðri rannsókn á störfum deildarinnar lýkur. » Jones neitar ásökunumum að deildin hafi falsað niðurstöður rannsókna á hitafari á jörðinni í gegnum söguna. Hann segir að ásak- anirnar séu „algert kjaft- æði“. Reuters Mengun Stern telur að ESB-lönd þurfi að minnka losunina um 30% fyrir árið 2020. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BARACK Obama Bandaríkjaforseti vonar að með því að senda 30.000 manna liðsauka til Afganistans verði hægt að binda skjótan enda á stríðið í landinu og hefja brottflutning bandarískra hermanna eftir eitt og hálft ár. Þetta veltur hins vegar á því hvort Afganar geta byggt upp nógu öflugar öryggissveitir til að tryggja varanlegan frið í landinu. Sérfræð- ingar í málefnum Afganistans telja ólíklegt að hægt verði að byrja að flytja erlenda herliðið á brott eftir eitt og hálft ár því það taki miklu lengri tíma að byggja upp afganskar öryggissveitir sem geti haldið upp- reisnarmönnum talibana í skefjum. Anders Fogh Rasmussen, fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, segir að búist sé við að önnur NATO-ríki sendi a.m.k. 5.000 hermenn til viðbótar til Afganistans eftir ákvörðun Obama. Gert er ráð fyrir því að alls verði þar um 140.000 hermenn frá Bandaríkjunum og öðr- um NATO-löndum. Hamid Karzai, forseti Afganist- ans, hefur lofað að efla afganskar ör- yggissveitir þannig að þær geti tekið við hlutverki erlendu hersveitanna innan fimm ára og tryggt öryggi og frið í öllu landinu. Sérfræðingar í málefnum landsins telja hins vegar að það geti tekið allt að áratug að byggja upp nógu öflugar öryggis- sveitir. „Þetta krefst meiri fórna, bæði fjárhagslega og í mannslífum. Þetta er of mikil bjartsýni,“ sagði Haroun Mir, forstöðumaður rann- sóknamiðstöðvar í Kabúl, og kvaðst telja að Afganar þyrftu um áratug til að byggja upp öryggissveitirnar. „Erfitt og dýrt verkefni“ Um 100.000 manns eru í her Afg- anistans núna og gert er ráð fyrir því að liðsmönnum hans fjölgi í 136.000 á næsta ári. Bandamenn Karzais á Vesturlöndum hafa hvatt hann til að fjölga hermönnunum í allt að 240.000 og lögreglumönnum úr 68.000 í 160.000. Flest stærstu dagblaðanna í Bandaríkjunum styðja ákvörðun Obama en telja að erfitt verði fyrir friðarverðlaunahafann að réttlæta hana fyrir bandarískum almenningi. The Washington Post sagði ákvörð- unina til marks um hugrekki vegna þess að Obama hefði tekið sér fyrir hendur „erfitt og dýrt verkefni“ sem mætti andstöðu margra flokks- bræðra hans. „Of mikil bjartsýni“ Reuters Hugrekki? Obama boðar liðsauka. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann hyggist senda 30.000 bandaríska hermenn til viðbótar til Afganistans og hefja heimkvaðningu hermanna eftir eitt og hálft ár. HERSVEITIRNAR Í AFGANISTAN Heimildir : Bandaríkjaher, Centcom, ISAF Bandaríkin 34.800 hermenn í ISAF- sveitum NATO Þýskaland 4.365 Frakkland 3.095 Kanada 2.830 Ítalía 2.795 Holland 2.160 Pólland 1.910 Ástralía 1.350 Spánn 1.000 Rúmenía 990 Tyrkland 720 Danmörk 700 Tékkland 690 33.200 hermenn sem eru ekki undir fána NATO 30.000 Nýi liðsaukinn 9.500 hermenn að meðtöldum 500 manna liðsauka Önnur 5.042 500 manna liðsaukiBretland Bretland Búist er við að önnur lönd leggi til 5.000-7.000 hermenn til viðbótar ‘01 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 FJÖLDI BANDARÍSKRA HERMANNA Í AFGANISTAN 100 80 60 40 20 0 Þúsundir Kabúl PAKISTAN AFGANISTAN Efasemdir um að markmið Obama í Afganistan náist STARFSMAÐUR súkkulaðiversl- unarinnar „Felicitas“ í Hornow, sunnan við Berlín, leggur lokahönd á 90 cm háan handunninn súkku- laðijólasvein. Í versluninni eru seld- ir súkkulaðijólasveinar sem vega frá 50 grömmum til fimm kílóa og kosta frá 3,50 til 185 evrur hver, eða jafnvirði 640 til 34.000 króna. Reuters GÓMSÆTIR JÓLASVEINAR ÞAU sitja tvö saman við dúklagt borð og kertaljós. Konan hlær að bröndurum mannsins sem hann reytir af sér í þeirri trú að hún vilji kynnast honum nánar. En mað- urinn veitir ekki úrslitaatriði eftir- tekt. Konan krossleggur fæturna. Einhvern veginn svona má færa í búning orðanna eina niðurstöðu rannsóknar vísindamanna við Man- chester-háskóla á líkamstjáningu með fótahreyfingum, en samkvæmt henni hefðu útstæðir fætur kon- unnar afhjúpað hrifningu hennar. Með því að hreyfa fæturna á með- an hún hló hefði merkið verið enn skýrara, en öndvert við konur eru karlar ekki taldir láta kynferðis- lega löngun sína í ljós með fótum. Dæmdir eftir skófatnaði Rannsóknin leiðir margt forvitni- legt í ljós. Konur dæma karla eftir skófatnaði þeirra, hversu dýr hann er, hversu vel til hafður og hvort hann passi við fötin. Sumar klisjur eru því eftir allt sannar. Annað sem vekur athygli er að lygarar eru sagðir halda fótunum kyrrum, óvenjulega kyrrum, til að draga athyglina frá máli sínu, eins mótsagnakennt og það hljómar. Það ætti ekki að koma þeim sem sækja kappleiki á óvart að karlar hreyfa fætur sínar ótt og títt þegar þeir eru taugaóstyrkir, andstætt konum sem halda þeim kyrrum. Konur og karlar sem vilja drottna eiga það sameiginlegt að halda fótahreyfingum í lágmarki, líkt og hrokagikkir sem sagðir eru hreyfa líkamann lítið í samræðum. Feimnir eru aftur á móti sagðir hreyfa fæturna örar en hinir. Fæturnir koma upp um okkur Staðsetning ilja kemur upp um hvort kona er hrifin af karlmanni eður ei Tjáningartæki Fætur koma upp um kynferðislegar langanir kvenna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.