Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»                       ! " #  $    $  ! %& '!&  !  ( )*)+,- *,)+.* ))/+0 *1+/// *)+-/ ).+-)* )*)+)0 )+20/* )3/+,0 )0*+..  456  4 *"  5 *,,3 )*)+2/ *,*+*) ))-+)1 *1+-*. *)+.)1 ).+--1 )*)+/* )+2032 )3/+-- )02+*0 *21+0,/0 %  78 )*)+-1 *,*+. ))-+10 *1+-33 *)+...0 ).+.)- )*)+0- )+2321 )3-+*1 )02+.3 Heitast 6°C | Kaldast 1°C  Norðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil slydda eða rigning, en létt- skýjað að mestu SV- og S-lands. »10 Það getur ekki talist eðlileg barnæska að mega ekki setja grasgrænu í Bur- berry-buxurnar sín- ar. »41 AF LISTUM» Í dúkkuleik með börnin TÓNLIST» Hjaltalín og Muse tróna á toppum lista. »38 Heildarhugmyndin að sýningunni FEED ME í Kron Kron er einhvers konar leiðrétting á fullkomnun. »36 MYNDLIST» Fullkomnun leiðrétt LEIKLIST» Íslenskt jólaleikrit eftir ljótan hálfvita. »39 TÓNLIST» Hansa syngur eins og engill. »37 Menning VEÐUR» 1. Tiger segist hafa brugðist … 2. Yndislega ótrúlega ómerkilegt 3. Tvær eiginkonur – mikil slagsmál 4. Ásdísi Rán hent út af Facebook  Íslenska krónan styrktist um 0,2% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Hinn 18. desem- ber næstkomandi munu Örvar Þór- eyjarson Smára- son og félagar í öndvegissveitinni múm halda eins- lags heimkomu- tónleika í Iðnó. Sveitin hefur verið á ferð og flugi um heiminn að und- anförnu til að kynna síðustu plötu sína og verða þetta fyrstu sjálfstæðu tónleikar hennar hérlendis í yfir fimm ár. Það er Seabear sem mun hita upp en miða má nálgast á midi- .is og er takmarkaður fjöldi í boði. TÓNLIST Hljómsveitin múm heldur heimkomutónleika í Iðnó  Helgi Valur Daníelsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, gæti verið á leið til þýska liðsins Hansa Rostock frá Elfsborg í Svíþjóð. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Helga Vals, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að viðræður væru farnar af stað á milli félaganna um kaupverðið á leikmanninum en Helgi Valur, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Elfsborg, hafn- aði á dögunum nýju tilboði frá sænska liðinu. FÓTBOLTI Helgi Valur gæti farið frá Elfsborg til Hansa Rostock  Sinfóníuhljóm- sveit Hollands flyt- ur tónverkið um Maxímús Músíkús í Concertgebouw- tónleikahöllinni í Amsterdam 22. ágúst á næsta ári. Maxímús er söguhetja bókarinnar Maxímús Músíkús heimsækir hljóm- sveitina eftir Hallfríði Ólafs- dóttur og Þórarin Má Baldursson. Þetta verður frumflutningur á verk- inu á meginlandi Evrópu en tveimur mánuðum síðar verður verkið flutt af Sinfóníuhljómsveit Melbourne og ástralskt bókaforlag gefur út bók- ina. Bókin kemur brátt út í Kóreu. TÓNLIST Maxímús Músíkús í Amst- erdam og Melbourne „ÁSTANDIÐ er að verða alvar- legt. Það er allt að þorna upp og engin ný verk- efni koma í stað- inn fyrir þau sem klárast,“ segir Árni Björn Björnsson, fram- kvæmdastjóri Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands. Vegna samdráttar hér heima hafa margir verkfræðingar og tæknifræðingar leitað út fyrir landsteinana eftir vinnu, ekki síst í Noregi. Þá hafa verkfræðistof- urnar aukið áherslu á verkefni er- lendis. Árni Björn hefur ekki upp- lýsingar um fjölda verkfræðinga sem sækja vinnu erlendis en telur að þeir sem vinna í Noregi skipti tugum. „Verkfræðistofurnar leita líka logandi ljósi erlendis að verk- efnum fyrir fólkið sitt. Þau er ekki að finna hér á landi,“ segir Árni Björn. | 6 Verkefnin á þrot- um og engin ný bætast við „ÉG GEF fuglum úti í garði hjá mér og smyrillinn not- færði sér það og klófesti einn svartþröst,“ sagði séra Sigurður Ægisson, prestur á Siglufirði, sem fékk óvænt smyril í heimsókn. Smyrillinn gat ekki staðist fuglahópinn sem var að gæða sér á epli frá Sigurði. Hann sagði að þetta hefði verið ungur fugl og greini- lega mjög soltinn. Hann hefði ekki látið neitt trufla sig meðan hann reif þröstinn í sig. Séra Sigurður er mikill náttúruunnandi og hefur myndað fugla í mörg ár. „Þetta er harður heimur,“ sagði hann um lífsbaráttu fuglanna. Smyrlar eru frændur fálka en talsvert minni. Stærsti hluti stofnsins fer til Bretlandseyja á veturna. Smyrlar finnast um allt land en varla eru meira en 1.000 til 2.000 varppör á landinu öllu. Fæða þeirra er nánast eingöngu smáfuglar, aðallega spörfuglar og vaðfuglar. Smyrlar eru snillingar í flugi og það er mikið sjónarspil þegar þeir elta bráð sína. egol@mbl.is Notfærði sér veislu þrastanna Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Eftir Andra Karl andri@mbl.is „STARFSMÖNNUM líkar án efa ekki öllum sömu bækur en allir geta borðað góðan mat. Það er örugg leið til að hitta í mark, sérstaklega í þessu árferði,“ segir Steinþór Skúla- son, forstjóri Sláturfélags Suður- lands. Hann segir það mikið hafa aukist að fyrirtæki gefi matargjafir og tekur framkvæmdastjóri Norð- lenska undir það. Þegar kreppir að er víst að starfs- menn þiggi með þökkum matar- gjafir á jólum, enda hefur matvöru- verð hækkað mikið á umliðnum misserum. „Við finnum mikla velvild í garð íslenskra framleiðsluvara og ég held að stjórnendur fyrirtækja hugsi út í að gefa starfsmönnum sín- um eitthvað sem nýtist,“ segir Sig- mundur Ófeigsson, framkvæmda- stjóri Norðlenska. Hann segist einnig finna fyrir því að fyrirtæki hugsi minna út í prjál og meira út í kjöt. „Okkar viðskiptavinir gera minna úr pakkningunum en meira úr matnum, og það er alveg í anda tíðarandans. Hangikjötið eyðileggst líka seint og nýtist öllum heimilum.“ Hjá báðum fyrirtækjum er hangi- kjötið hvað vinsælast en einnig ham- borgarhryggir. Þá er hægt að velja matvæli í sérstakar körfur. Það er því ljóst að fjölmargt vinnufólk kem- ur færandi hendi heim, með matvæli frá vinnuveitandanum. Hangikjöt vinsæl gjöf  Fyrirtæki gefa starfsmönnum frekar gjafir sem nýtast  „Allir geta borðað góðan mat,“ segir forstjóri SS Morgunblaðið/Eyþór Ketið Hangikjöt er ómissandi á borðum Íslendinga um jólin. Í HNOTSKURN »Hjá Sláturfélagi Suður-lands er hægt að sérvelja matvæli í körfur frá SS, s.s. bláberjalæri, sænska jóla- skinku, franskt salamí, hátíð- arpaté, þurrkaðan kinda- vöðva og Grand Parma hráskinku. »Norðlenska áætlar aðselja álíka mikið af hangi- kjöti nú og fyrir jólin í fyrra. UNGSVEITIN Pascal Pinon gaf nýverið út sína fyrstu plötu, sam- nefnda sveitinni. Hljómsveitin er skipuð fjórum ungum stúlkum sem allar eru á fimmtánda ári og vakti sveitin verðskuldaða athygli á ný- liðnum Músíktilraunum, þar sem hún beitti fyrir sig fallegum rödd- unum og brúkaði harmonikku og orgel til að magna upp mel- ódískan, þekkilegan seið. Í spjalli við Jófríði Ákadóttur, lagasmið, gítarleikara og söngvara, kemur fram að þær stöllur hafi lagt í plötugerð í sumar og til hafi staðið að gefa plötuna út einn, tveir og þrír, en öll vinna við hana, þ.m.t. upptökur, var í höndum stúlkn- anna sjálfra. Ákveðið var að leggj- ast ögn betur yfir gripinn og var hann kynntur á tónleikum í Nor- ræna húsinu á dögunum. | 36 Með einlægni og ástríðu að vopni Efnileg Pascal Pinon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.