Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 21
Daglegt líf 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009 Fólk komst misvel um bæinn í gær eftir að mikið snjóaði. „Ekkert mál fyrir mig, ég á svo góðan seðlatætara,“ sagði kona sem ég talaði við um miðjan dag. Hún átti víst við jeppann. Bensínið er orðið dálítið dýrt...    Hús Hákarla-Jörundar í Hrísey var 1. des- ember afhent Akureyrarbæ til eignar og um- sjónar. Við þá athöfn var undirritaður samn- ingur á milli Akureyrarstofu og Ferðamála- félags Hríseyjar um rekstur hússins og þró- un og uppbyggingu ferðamála í eyjunni. Ásgeir Halldórsson hefur haft veg og vanda af því að gera upp húsið. Endurbæturnar hafa tekið rúm 10 ár og kostað um 50 millj- ónir króna sem Húsfélagið Hákarla- Jörundur hefur aflað með styrkjum, m.a. frá Sparisjóði Svarfdæla og úr Húsafrið- unarsjóði ríkisins.    „Þetta sögufræga hús [...] er gamla Syðsta- bæjarhúsið, byggt árið 1885 af Jóhanni Bessasyni frá Skarði í Dalsmynni. Hann byggði húsið fyrir Jörund Jónsson er þá bjó á Syðstabæ,“ sagði Ásgeir m.a. í ávarpi á samkomunni. „Jörundur fékk viðurnefnið Hákarla-Jörundur. Hann var lengst ævi sinnar hákarlaformaður, svo og bóndi á Syð- stabæ. Átti hann alls sex skip á sinni ævi. Jörundur var fæddur árið 1826 að Kleifum í Ólafsfirði en flutti til Hríseyjar frá Grenivík 1862. Jörundur lést 10. október 1888.“ Aðventustemning verður á Græna hattinum um helgina. Í kvöld verður þar söngkonan Ragnheiður Gröndal ásamt hljómsveit sinni og flytur aðventudagskrá og á föstudags- og laugardagskvöld verða á staðnum aðventu- tónleikar Baggalúts.    Það verður líka jólalegt í Sjallanum. Þar leika Greifarnir á laugardagskvöldið, í fram- haldi árlegs jólahlaðborðs staðarins.    Skytturnar sigruðu í vikunni í Gimli Cup; árlegu móti þar sem akureyrskar krullu- kempur berjast um veglegan bikar sem gef- inn var af Vestur-Íslendingunum Alma og Ray Sigurdsson í Gimli í Manitóba í tilefni af opnun skautahallarinnar árið 2000. Í liðinu eru Jón Hansen, Árni Ingólfsson, Sigurgeir Haraldsson, Árni Arason og Ágúst Hilm- arsson. Þetta var í níunda skipti sem keppt er um Gimli Cup og hafa Jón og Ágúst sigr- að í þrígang. Ljósmynd/Ragnar Hólm Hákarlar Ásgeir Halldórsson og Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson www.reykjavik.is/kjostu Nýttu þinn atkvæðisrétt og k jóstu! Íbúum býðst einnig að fara á bókasöfn og þjónustumiðstöðvar í sínu hverfi og fá aðstoð við að kjósa. Auk þess er hægt að leita til þjónustuvers Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11. a) Leikur og afþreying b) Samgöngur c) Umhverfi og útivist VERKEFNI Í ÞÍNU HVERFI 2.-14. des.KJÓSTU Kosningin fer fram á vefnum www.reykjavik.is/kjostu. Þar geta íbúar forgangsraðað þremur verkefnaflokkum: Íbúum Reykjavíkur gefst kostur á að forgangsraða fjármunum til smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfunum með því að kjósa á vefnum. Kosningin er bindandi og sá verkefnaflokkur sem verður fyrir valinu í hverju hverfi fer á fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 og koma verkefnin úr þeim flokki til framkvæmda. Þetta nýmæli við gerð fjárhagsáætlunar var samþykkt í borgarstjórn og er tilraunaverkefni sem gerir íbúum kleift að hafa bein áhrif á nýtingu fjármuna í nærumhverfi sínu. BORÐPLÖTUR úr regnskóga- timbri eru víða til sölu í norskum innréttingabúðum. Þetta kom í ljós í nýrri könnun norskra umhverfis- og neytendasamtaka. Innréttingar frá HTH og Sigdal komu verst út hvað þetta varðar, en HTH selur m.a. borðplötur úr sipo, iroko, ovangkol, zebrano og wengé, sem allt eru trjátegundir í útrýming- arhættu. HTH lýsti því yfir að vara úr þessu hráefni yrði tekin úr sölu. Árið 2010 verður alþjóðlegt ár líf- fræðilegrar fjölbreytni. Í tilefni af því hefur norski regnskógasjóð- urinn (Regnskogfondet) hvatt fyr- irtæki sem nota eða selja timb- urvörur til að lýsa því yfir að þar sé ekki notað regnskógatimbur. Frá árinu 2008 hefur notkun á slíku timbri verið bönnuð í opinberum byggingarverkefnum í Noregi. Borðplötur af markaði BRESKA samgönguráðuneytið býður nú sendibílstjórum ókeypis ráðgjöf um það hvernig þeir geti dregið úr eldsneytisnotkun á ferð- um sínum og þar með komist hjá óþörfum fjárútlátum og losun gróð- urhúsalofttegunda. Takist að bæta eldsneytisnýtingu um 5%, mun það hafa í för með sér árlegan sparnað upp á 250 milljónir sterlingspunda (rúmlega 50 milljarða ísl. kr.) og minnka losun koltvísýrings um 750.000 tonn. Könnun sýnir að 52% bílstjóra höfðu ekki velt því fyrir sér síðustu 12 mánuði hvernig þeir gætu sparað eldsneyti, og aðeins 7% skipuleggja ferðir sínar með til- liti til eldsneytissparnaðar. Bílstjórar spara Morgunblaðið/Kristinn SALA á lífrænum og siðrænum vörum eykst jafnt og þétt þrátt fyrir erfitt efnahagsástand. Í Bandaríkjunum lítur út fyrir að sala á varningi af þessu tagi auk- ist um 8,7% á þessu ári miðað við árið í fyrra, en á sama tíma hef- ur smásöluverslun almennt auk- ist um 1,9%. Verðmunur fer einn- ig minnkandi með vaxandi magni. Fjórar ástæður eru eink- um nefndar sem skýringar á þessari þróun vestanhafs, þ.e.a.s. afstaða Baracks Obama í lofts- lagsmálum, óhöpp vegna meng- aðra matvæla, öflug markaðs- setning vistvænna valkosta og almenn hugarfarsbreyting í kjöl- far efnahagshruns. Lífrænt enn vinsælt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.