Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009 Þegar ég var barn hugsaði égsjaldan út í það hverju égklæddist. Móðir mín réð því og keypti á mig klæðin; íþróttagall- ar eða gallabuxur voru það oftast hversdags, eitthvað fínna á tylli- dögum. Það var ekkert pjatt enda þurfti ég að geta hlaupið óheft, mokað sandi, skroppið á hestbak, klifrað og skriðið í grasinu. Það var ekki fyrr en ég komst á unglings- árin sem ég fór að hafa einhverja skoðun á fötum, fram að því komu þau mér ekki við.    Nýverið heyrði ég fjallað umbreska könnun þar sem kom fram að börn sem klæðast tískuföt- um hreyfa sig minna en önnur börn. Þau eru svo hrædd við að skemma eða skíta út fötin að þau leika sér ekki. Auk þess sem for- eldra taka oft fínar yfirhafnir barna sinna með sér heim aftur þegar þau hafa skilað börnunum í skólann og koma þannig í veg fyrir að börnin geti farið út að leika sér í frímínútum, ástæðan er m.a. að yf- irhöfnin hefur verið svo dýr að for- eldrarnir eru hræddir um að barnið skemmi hana eða henni verði stolið.    Undrandi varð ég líka þegarsagði af því í frétt á mbl.is að Suri Cruise, þriggja ára dóttir Kat- ie Holmes og Tom Cruise, klæddist alltaf háhæluðum skóm. Holmes sagðist ekki sjá neitt rangt við það að leyfa dóttur sinni að herma eftir sér í hátískufata- og skóvali enda hefði dóttirin mjög ákveðnar skoð- anir á því sem hún klæddist. Það er alveg eðlilegt en undarlegt að for- eldrar hennar skuli þá ekki reyna að beina þeim skoðunum í ákveðna átt. Það er alveg hægt að vera sæt og fín þriggja ára snót í öðru en há- hæluðum skóm og kjól. Í sömu frétt kom fram að um þremur milljónum íslenskra króna sé eytt í föt á barn- ið í mánuði og Suri eigi að verða best klædda barnið í Hollywood. Aumingja Suri Cruise, það verður kraftaverk ef hún kemur út sem eðlileg, fullorðin manneskja.    Suri Cruise er svo sem ekki einabarnið sem þarf að þjást til að uppfylla ákveðna tískuduttlunga foreldra sinna. Ég rakst nefnilega nýlega á heimasíðu sem er tileinkuð barnatísku, www.planetawesome- kid.com. Þar eru birtar myndir af vel klæddum krökkum úti á götu, svokallaður „street style“. Margt á síðunni er mjög sætt og venjulegt en svo er annað undarlegt og óhugnanlegt, t.d. litlar stelpur með Chanel-tösku og í fullorðinsfötum. Margir hafa gagnrýnt þessa tískuvæðingu barna og segja for- eldra sífellt vera í dúkkuleik með börnin sín og fara með þau eins og fylgihluti, barnið þarf að vera í stíl við skó mömmunnar. Þó að foreldr- arnir verji sig með því að barnið vilji klæðast háhæluðum skóm eða magabolum er það foreldranna að hafa vit fyrir börnum sínum og það er okkar fullorðinna að hafa vit á því að framleiða ekki og kaupa ekki slíkan fatnað á börn, valið á ekki að vera til staðar. Að alast upp við að þurfa stans- laust að passa að setja ekki gras- grænu í Burberry-buxurnar er ekki eðlileg barnæska. ingveldur@mbl.is Barn í tísku AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir » Það er alveg hægt aðvera sæt og fín þriggja ára snót í öðru en háhæluðum skóm og kjól. Suri Cruise Á gangi í hælaskóm. SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM SÝNDÍÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA , KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK EKKI VIÐ HÆFI UNGRA BARNA JIM CARREY Sýnd með íslensku og ensku tali Nia Vardalos, stelpan úr "My big fat greek wedding" er lok- sins komin til Grikklands í frábærri rómantískri gamanmynd. SÝND ÍÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI HHH „HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ MYND FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGAR- BÍÓ!” T.V - KVIKMYNDIR.IS HHH „ÓSVIKINN GEIMHROLLUR SEM SVER SIG Í HEFÐINA, MINNIR EINKUM Á ALIEN-MYNDIRNAR.“ „GÓÐ SKEMMTUN OG DÁLÍTIÐ GEGGJUÐ.“ S.V. - MBL HHHH „JÓLASAGA Í FRÁBÆRRI, NÝRRI ÞRÍVÍDD SEM SLÆR ÚT ANNAÐ ÁÐUR HEFUR SÉST“ „CARRY ER ENGUM LÍKUR...“ – S.V – MBL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 - 10:40 12 A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7 2012 kl. 10:10 10 THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:30 - 8 12 A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 6 7 A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7 THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 - 10:40 12 A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7 LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:10 16 SMÁRALIND MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUM JÓLAFÖTUM Á GÓÐU VERÐI KJÓLL 6.990

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.