Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 33
Velvakandi 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞETTA ER FÍNN MEXÍKANAHATTUR HANN ER FLOTTUR... ...OG PRAKTÍSKUR BÍDDU NÚ HÆGUR ANNAR LEIKUR TAPAÐUR! EN SVO BYRJAÐI LEIKURINN ÉG VAR VISS UM AÐ VIÐ MYNDUM VINNA ÞENNAN... Í STUTTA STUND VAR SIGURINN MÖGULEGUR! OPNUNAR- TÍMI FYRIR RÁNSFERÐIR MÁN. 08:00-16:00 ÞRI. 08:00-16:00 MIÐ. 08:00-16:00 FIM. 08:00-17:30 FÖS. 08:00-15:00 LAU. 10:00-13:00 SUN. LOKAÐ ÉG KUNNI BETUR VIÐ HLUTINA ÁÐUR EN ALLT VARÐ SVONA SKIPULAGT MEÐFERÐARTÍMINN HJÁ DR. PHIL ER AÐ BYRJA VILTU AÐ ÉG FARI? NEI, ÉG VIL AÐ ÞÚ SEGIR MÉR HVAÐ ÞÉR FINNST UM ÞENNAN GAUR GRÍMUR, MUNDU AÐ ÞÚ GETUR EKKI LÁTIÐ ÞÉR VAXA YFIRVARASKEGG EF ÞÚ GENGUR Í ÞVENG ER ÞAÐ ÉG? NEI, ÞAÐ ER ÁN EFA HANN OKKUR TÓKST AÐ FYLLA KASSANN AF PAPRIKUM FRÁBÆRT! FLOTT HJÁ YKKUR! SJÁLFBOÐALIÐAR EINS OG ÞIÐ HAFA SÉÐ TIL ÞESS AÐ ÉG GETI HALDIÐ FRAMLEIÐSLUNNI GANGANDI OKKAR VAR ÁNÆGJAN FLOTT! VILJIÐ ÞIÐ EKKI FÆRA YKKUR YFIR Í TÓMATANA? VIÐ ÞURFUM AÐ FARA! HEFNDIN ER MÍN, SAGÐI VULTURE TALARÐU NÚNA UM SJÁLFAN ÞIG Í ÞRIÐJU PERSÓNU? SKIPTIR EKKI MÁLI HVERT ÞÚ REYNIR AÐ FARA... ÞÚ GETUR EKKI LOSAÐ VEFINN MINN ÞÓTT snjói og kalt sé í veðri hafa bæði menn og dýr gott af því að komast út og hreyfa sig. Útivistarsvæði borgarinnar eru falleg í vetrarbúningnum og inni í íbúðahverfunum er gaman að ganga um og skoða ljósadýrðina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Göngutúr í kuldanum Snyrtitösku stolið SNYRTITÖSKUNNI minni var stolið í Laugum föstudaginn 27. nóvember. Ég lagði íþróttatöskuna mína á bekk inni í búningsklefanum á meðan ég henti mér í sturtu. Það liðu um það bil 5 mínútur þangað til ég kom aft- ur og sá að snyrtitask- an mín var horfin. Þetta er svört taska með hvítum blómum frá Mac og inniheldur allt uppáhaldssnyrtidótið mitt, þar á meðal nýjar vörur frá Mac sem ég hafði óskað mér í 18 ára afmæl- isgjöf. Ég er gráti næst því þessi litla taska er mér svo mikils virði! Ég get ekki ímyndað mér hver stelur svona persónulegum hlutum og hefur virkilega geð í sér að nota annarra manna snyrtivörur. Ef þú sem tókst töskuna ert að lesa þessa grein mína bið ég þig að fara með hana í afgreiðsluna í WorldClass og losna við samviskubitið sem er að naga þig! Ég gæti ekki hugsað mér betri jólagjöf. Ein í rusli. Íbúðarkaup ungs fólks HVAÐ skyldi vera margt ungt fólk með eitt, tvö eða fleiri börn, sem þarf að búa í leiguhúsnæði af því að það á ekki fyrir útborgun í íbúð? Margt af þessu unga fólki á örugg- lega erfitt með að spara, hvað þá fyrir útborgun í íbúð. Nú veit ég til þess að verkalýðsfélög veita styrki til að koma fólki í gröfina, svo hvers vegna gæti því t.d. ríkið eða lífeyr- issjóðir ekki hjálpað til við að koma ungu fólki með börn af stað í lífinu? Ég hef áður lagt þetta til en ítreka nú þá tillögu að við fæð- ingu barns fái for- eldrar t.d. tvær millj- ónir í sérstöku húsbréfi á sérstökum vildarkjörum (vaxta- laust þess vegna) til útborgunar í íbúð. Þetta bréf mætti eingöngu nota til íbúðarkaupa og greiddist til baka með vaxtabótum hvers árs og jafnvel líka með barnabótum, til að nefna dæmi. Þar með væri kominn á skyldusparnaður hjá þessu fólki og þessir peningar færu þá í hús- næði fyrir fjölskylduna en ekki í neyslu. Þetta myndi vonandi lækka útgjöld miðað við það að leigja, fyr- ir utan það að skapa eign. Það væri líka svo sem hægt að gefa þessa út- borgun! Við annað barn væri hægt að bæta við öðrum tveim milljónum eða þá hafa þetta eins og við þing- kosningar þar sem minna at- kvæðamagn er á bak við næsta mann. Jón Helgi Guðmundsson. Ást er… … þegar göngulagið verður léttara. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30, prjónakaffi og myndlist kl. 13. Jólahlað- borð 4. desember. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa- vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30, botsía kl. 9.30, leikfimi kl. 11, helgistund kl. 10.30 og myndlist kl. 13.30. Aðventu- kaffi verður 9. des. kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 | Jólafagnaður kl. 18. Myndlist kl. 9-12, bókband, almenn handavinna, böðun, fótaaðgerð, hár- greiðsla, kaffi/dagblöð. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Félag eldri borgara, Rvk. | Brids kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55, rammavefnaður, málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13 og myndlistarhópur kl. 16.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, jóga og myndlistarhópur kl. 9.30, ganga kl. 10. Handavinna og brids kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 9.30- 12.30, málun kl. 9, gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 11.30, handavinnuhorn og karlaleikfimi kl. 13. Handverkshorn í Jónshúsi kl. 13.30-16.30, áhugasamir hafi samband við Kristrúnu í síma 892 2758, kynning á alhliða heimaþjónustu Heima er best kl. 14.30. Félagsstarf Gerðubergi | Leikfimi og heitt á könnunni í ÍR heimilinu kl. 9. Helgistund umsj. Ragnhildur Ásgeirsd. djákni kl. 10.30. Perlusaumur og mynd- list frá hádegi. Heilsurækt í World Class í Orkuhúsinu kl. 13. Á morgun kl. 11 er Jón Ólafsson gestur í prjónakaffi og les úr bók sinni Söknuði. S. 5757720. Furugerði 1, félagsstarf | ÁTVR kórinn kl. 18.30. Aðalheiður og Anna Sigga á föstudag kl. 14.15. Hjallakirkja | Samvera kl. 12-14. Léttur hádegisverður og samverustund. Hraunsel | Rabb og samvera kl. 9, qi- Gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, gler kl. 13, pílukast og félagsvist kl. 13.30, vatns- leikfimi kl. 14.10. www.febh.is. Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10, hann- yrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30, kaffi í hléi. Böðun fyrir hádegi, hársnyrting. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 17. Uppl. í síma 564- 1490 og á www.glod.is. Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi kl. 9.30 í Grafarvogssundlaug. Listasmiðja opin fimmtudag og föstudag kl. 13-16 á Korpúlfsstöðum. Jólahlaðborð á Hótel Örk í Hveragerði. Hópferðabíll fer frá Rimaskóla kl. 16 í dag. Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur Laugardal | Leikfimi kl. 11. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað- gerðir kl. 9.15-15.30. Handavinna kl. 9.15-16, kertaskreytingar/Tiffany kl. 10, ganga kl. 11.30, matur, kóræfing kl. 13, leikfimi kl. 14.30, veitingar. Föstudaginn 4. desember verður félagsmiðstöðinni lokað kl. 13 vegna undirbúnings jóla- fagnaðar. Húsið verður opnað aftur kl. 17. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band, postulínsmálun, morgunstund, botsía, upplestur, handavinnustofan op- in frá 13, frjáls spilamennska, stóladans. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opn- ar. Hjálpræðisherinn kemur kl. 14 í heim- sókn og syngur og verður með Herópið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.