Litli Bergþór - 01.07.2010, Side 18
Líflegt starf í Lionsklúbbnum Geysi
Á undanfornum misserum hefur Lionsklúbburinn
Geysir notið meðbyrs og starfið verið þróttmikið.
Talsvert hefur fjölgað í klúbbnum og telur hann nú
19 félaga og hafa menn almennt verið mjög virkir í
félagsstarfinu.
Síðustu árin hafa fjáröflunarleiðir klúbbsins breyst
nokkuð. 1 fyrsta lagi hefur hann gefið út símaskrá á
tveggja ára fresti. Nú er þessi skrá gefin út í stærra
upplagi en áður því hún nær yfir stærra svæði, það er
að segja alla Bláskógabyggð. I öðru lagi er það
orðinn árviss liður, að félagsmenn hreinsa meðfram
vegum í Biskupstungum fyrir Vegagerðina,
vegalengd sem nemur um 60 kílómetrum. Sú útivera
hefúr reynst vel bæði fyrir líkama og sál klúbbfélaga.
Hér má sjá nýjustu meðlimi klúbbsins: Örn, Svein og
Þorfinn ásamt Bjarna formanni.
Nýjasta leið klúbbsins til að afla ljár er
hagyrðingamót, og var það haldið í Aratungu í annað
sinn í lok október síðastliðnum. Það hefúr notið
mikilla vinsælda bæði heimamanna og annarra. Allar
líkur eru á að samkoma af slíku tagi verði haldin á
vegum klúbbsins á næstkomandi hausti en
væntanlega þó með eitthvað breyttu sniði.
Klúbburinn hefur lagt fé til margra góðra
samfélagsmála. Þar má nefna tækjakaup til
heilsugæslu, barnaskóla og slökkviliðs. Á síðasta ári
var líknarfélaginu Bergmáli á Sólheimum í
Grímsnesi afhent peningaupphæð til heimilis sem
félagið rekur þar fyrir langveika. Sjóður sem er
sameiginlegur líknarsjóður Lionsklúbba, kvenfélaga
og Rauða krossins á Suðurlandi hefur einnig notið
framlags frá klúbbnum, en úthlutað er úr þeim sjóði
til bágstaddra, einkum fyrir jól. I byrjun ársins lagði
Litli Bergþór 18
klúbburinn framlag til hjálparstarfs á Haiti eftir
hörmungar jarðskjálftanna er þar riðu yfir. Þá er
klúbburinn um þessar mundir að undirbúa kaup á
öryggismyndavélum, sem ætlaðar eru til öryggis
íyrir gesti íþróttamiðstöðvarinnar í Reykholti og
vonandi jafnframt til aukinnar hagræðingar fyrir
starfsfólk hennar.
Giaðbeittir við landgrœðslustörf á Rótarmannatorfum,
ritarinn Guðmundur og gjaidkerinn Hilmar.
Síðastliðið vor tóku félagar í Lionsklúbbnum land
á framanverðum afrétti Tungnamanna í sína umsjá,
nánar tiltekið í Rótarmannatorfum. Þar voru settar
niður birkiplöntur í talsverðu magni og ætlunin er að
það verði árlegur liður í landgræðslustarfi klúbbsins.
Þetta verkefni tengist alþjóðlegum umhverfisdegi
Lionshreyfingarinnar sem er í byrjun júní ár hvert.
Ákveðið er að gróðursetningardagur klúbbsins verði
framvegis fyrsti laugardagur í júní ár hvert.
Fundir klúbbsins eru að öllu jöfnu haldnir fyrsta
og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði. Mikil
áhersla er lögð á að hafa fundina skemmtilega og
eru fyrirlesarar fengnir á að minnsta kosti annan
hvern fund. Á þessu starfsári hafa eftirtaldir aðilar
heimsótt klúbbinn og flutt fróðleg erindi: Halldór
Runólfsson, yfirdýralæknir, Einar Á. E. Sæmundsen
í Reykholti, starfsmaður þjóðgarðsins á Þingvöllum,
Örn Erlendsson frá Dalsmynni nú búsettur í
Lindatungu, en hann er fyrrum ráðsmaður
Árbæjarsafns og er nú félagi okkar i
Lionsklúbbnum. Hann sagði frá ábúendum í Árbæ.
Sr. Gylfi Jónsson, fýrrum rektor í Skálholti,
heimsótti einnig klúbbinn en hann var
aðalhvatamaður að stofnun klúbbsins árið 1987 og
fyrsti formaður hans.
Þá eru og haldnir sameiginlegir fúndir öðru