Litli Bergþór - 01.07.2010, Síða 20
Atthagafræði Bláskógabyggðar
í febrúar 2010 var vefurinn Átthagafræði
Bláskógabyggðar opnaður formlega. Hann er hluti
meistaraprófsverkefnis Öglu Snorradóttur í Vegatungu,
frá menntavísindasviði Háskóla íslands.
Meistaraprófsverkefnið skiptist í ijóra megin þætti og
ijallar um það hvernig upplýsingatækni í grunnskóla
og átthagar nemenda geta orðið uppspretta að lifandi
verkefnum sem sett eru út á netið.
Verkið nefnist Átthagafræði Bláskógabyggðar.
Innleiðing upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla
með umfjöllun um átthaga nemenda að leiðarljósi.
Verkið er tvíþætt, annars vegar fræðileg ritgerð og hins
vegar vefur með nemendaverkefnum, kennslu á þrjú
forrit, tenglum á ýmislegt um upplýsingatækni og
tenglum sem tengjast sveitarfélaginu Bláskógabyggð.
Verkefnið byggir á hugmyndum um átthagafræði og
hugmyndum um kennslu í upplýsingatækni og nýtingu
hennar í skólastarfi. Verkefnið miðar einkum að því að
sinna nemendum og kennurum Grunnskóla
Bláskógabyggðar.
Á einfaldan hátt er hægt að yfirfæra verkefnið og
nýta það staðfært fýrir aðra grunnskóla og/eða önnur
sveitarfélög. Ástæður þess að höfúndur valdi að vinna
þetta verkefni má rekja allt til ársins 2002 þegar
höfundur fór á námskeið hjá Fræðsluneti Suðurlands.
Námskeiðið var ætlað fullorðnum og hét
Biskupstungur, land og saga - átthagafræði í ellefu
hundruð ár. Þetta námskeið vakti áhugann á því að
gefa nemendum í Grunnskóla Bláskógabyggðar
tækifæri til að vinna verkefni um heimabyggðina með
ýmsu móti. Síðar beindist áhugi höfundar að því að ná
þeim markmiðum með hjálp upplýsingatækninnar og
innleiðingu hennar í skólastarfí. Einnig að fá nemendur
til að hugsa um það hvemig þeir setja efni fram fyrir
miðil eins og netið. Höfundur verkefnisins hefur
brennandi áhuga á því að grunnskólanemendur læri
meira um eigin heimahaga og nýti þá þekkingu m.a. til
að segja frá á opinberum vettvangi.
Ritgerðin Ijallar um fræðilegar forsendur fýrir
kennslu í upplýsingatækni og miðlun, miðlalæsi og
sköpunarþörf. Fyrst og fremst er sjónum beint að því
hvað getur komið sér vel fyrir nemandann í náminu og
forsendum fýrir því að hann geti unnið verkefnin. Þá er
litið til þess hvernig hægt væri að mæta þörfúm
kennara varðandi endurmenntun og hvaða möguleikar
eru fýrir hendi fýrir þá til að innleiða tæknina í
almennt skólastarf. í ritgerðinni er einnig fjallað um
hvemig hægt er að efla tengsl samfélags og skóla með
upplýsingatæknina að leiðarljósi. Vefurinn ber
yfirskiftina Átthagafræði Bláskógabyggðar og hefur
fengið sitt eigið lén og er á vefslóðinni http://www.
grblaskogabyggd.is/atthagafraedi. Hann birtir
nemendaverkefni, forritakennslu fýrir bæði nemendur
og kennara, ýmsa tengla fýrir kennslu og vísar á síður
sem tengjast sveitarfélaginu. Þetta
meistaraprófsverkefni miðar að því að tengja saman
upplýsingatækni og miðlun annars vegar og
hugmyndir um átthagafræðikennslu hins vegar. Með
því er lagður grunnur að skólaþróunarverkefni sem
getur vaxið og dafnað með tímanum fáist til þess
svigrúm og stuðningur.
Framtíðarsýnin er sú að þau verkefni sem nemendur
vinna í grunnskólanum fari inn á þennan vef og í
framtíðinni verði til safn verkefna um Bláskógabyggð
sem nemendur í grunnskólanum hafa unnið. Einnig, að
eftir því sem færni nemenda og kennara eykst og
tæknin breytist, verði hægt að setja inn nýtt efni.
Einnig má sjá framtíðarsýnina þannig að vefurinn
verði andlit, eða eitt af andlitum, sveitarfélagsins út á
við. Á vefnum væru þá upplýsingar byggðar á
munnlegum heimildum íbúa og skráðum heimildum.
Einnig vísanir í aðra vefi sveitarinnar hjá stofnunum,
fyrirtækjum og einstaklingum. Þegar horft er enn
lengra fram í tímann má sjá fýrir sér að vefurinn verði
einnig á erlendum tungumálum og nýtist þá
ferðamönnum. Þá má líka hugsa sér að, t.d.,
brottfluttir, ættingjar sveitunga og nýir íbúar
sveitarfélagsins myndu hafa bæði gagn og gaman af
því að fara inn á slíkan vef. Þetta verkefni er hugsað
sem upphaf á ferli seni hægt væri að vinna áfram eftir
að þessu verkefni er lokið fonnlega sem
meistaraprófsverkefni. Þessar hugmyndir byggjast þó
á því að vel takist til í upphafi og að þeir sem koma til
með að vinna í skólanum hafi áhuga og trú á
verkefninu. Að öðrum kosti fellur það um sjálft sig.
Agla Snorradóttir
Loftur (3)862 8812
Guömundur (3)899 9617
Guðmundar og Lofts
» vgl@simnet.is
3102-3010
Viðgerðir á búvélum og öðrum tœkjum 1 landbúnaði. Bifvélaviðgerðir
Smurþjónusta Olíusíur í bíla og dráttarvélar - Framrúðuskipti - Smiðum háþrýstislöngur
Litli Bergþór 20