Neytendablaðið - 01.06.2003, Síða 8
Gæðakönnun á morgunverðarkorni
Ðís<a0.(ur
í flestum tegundum morgunverðarkorns
er of mikill sykur, of mikið salt og of lítið
af trefjum. Þetta er niðurstaða könnunar
sem Neytendablaðið gerði í samvinnu
við Upplýsingamiðstöð neytenda í
Danmörku (Forbrugerinformationen).
Sem dæmi má nefna að aðeins einn
skammtur af Guldkorn inniheldur svo
mikinn sykur að 4-6 ára barn fær rétt
rúmlega helming af sykurþörf sinni með
morgunverðarkorninu sé Guldkorn í
morgunmat.
Morgunverðarkorn er oft auglýst sem
sérstök hollustuvara, sérstaklega þegar
því er beint að fullorðnum neytendum.
Og víst er það rétt að sumar tegundirnar
innihalda hátt hlutfall trefja og lágt hlut-
fall fitu, en sykurinnihaldið er hins vegar
oftast alltof hátt. Takmarkið með þessari
könnun er að upplýsa neytendur um
innihald og næringargildi morgunverðar-
korns þannig að þeir geti vegið og metið
hvað best sé að gefa börnunum í þessari
mikilvægustu máltíð dagsins.
Eins og sjá má í töflunni er gefin einkunn
fyrir sykurinnihald, akrýlamíð, trefjainni-
hald og natríuminnihald. Hæst er gefið
5 en lægst 1. Samanlögð einkunn fyrir
alla þessa þætti er metin eftir þessum
hlutföllum: sykurinnihald 40%, trefjar
30%, akrýlamíð 20% og natríuminni-
hald 10%.
Vörutegund Framleiðandi Heildar- einkunn Orka g /100 g Fita g / 100 g Sykur g /100 g Sykur Trefjar Akrýl- amíð Natríum Bragð- / litarefni
Weetabix Weetabix 4.7 1,440 3 5 5 5 4 4 Nei
Cheerios General Mills 4.1 1,545 6 5* 5 4 4 1 Nei
Corn Flakes Kellogg’s 3.3 1,600 1 8 4 2 5 1 Já/Nei
Havrefras Quaker 3.0 1,510 7 12 3 5 1 1 Nei
Weetos, Weetabix 2.8 1,625 5 38 1 3 5 5 Nei
Fitness, Nestlé, General Mills 2.6 1,522 1 17,05* 2 3 3 3 Nei
Frosted Cheerios General Mills 2.5 1,588 3 49,9* 1 3 5 2 Já
Lucky Charms General Mills 2.5 1,591 4 45,72* 1 3 5 2 Já
Honey Nut Cheerios General Mills 2.4 1,581 5 34,1* 1 3 5 1 Nei
Special K Kellogg’s 2.3 1,600 1 17 2 2 4 1 já
Cocoa Puffs General Mills 2.3 1,637 4 48,49* 1 2 5 3 Já
Coco Pops Kellogg’s 2.3 1,600 3 39 1 2 5 3 Já
Frosties Kellogg’s 2.2 1,550 1 40 1 2 5 2 Já
Guldkorn Quaker 2.1 1,600 1 53 1 2 3 5 Nei
* Tölur úr rannsókn. flflrar tölur eru úr innihaldslýsingu.
Einkunnargjöf: 5 = Mjög gott / 4 = Gott / 3 = í meðallagi / 2 = Undir meðallagi /1 = Slæmt
8 NEYTENDABLAÐIÐ 2.TBL. 2003