Neytendablaðið - 01.06.2003, Page 12
.1,
gæðakönnun
Adidas Supernova Control
Asics Cel 1080
Viltu skokka eða hlaupa?
Þá skaltu ekki bara kippa með þér hugs-
unarlaust einhverjum striga-, íþrótta- eða
skokkskóm úr hillu verslunar. Val á slík-
um skóm er nauðsynlegt að undirbúa af
alvöru og kostgæfni, meðal annars vegna
þess að þeir eru dýrir en gæði og gerðir
mjög mismunandi. Sérstaklega þarf þó
að vanda valið sökum þess að lélegir eða
rangir skór geta haft í för með sér alvar-
legarafleiðingar. íþróttaskóreru nú langt-
um flóknari að gerð en fyrr á árum.
Nokkur frumatriði
Fóturinn er flókin smíð og viðkvæm. í
honum eru 26 bein, margir vöðvar og
sinar sem sjá um hreyfingar, að dreifa
þyngdarálagi, deyfa högg og halda stöð-
ugleika. Og fætur fólks eru margbreyti-
legir að stærð, lengd, breidd osfrv. Þess
vegna eru skokkskór líka flókin smíð,
það er bæði erfitt að framleiða fullkomna
skó og að finna rétta skó sem henta bygg-
ingarlagi og hreyfingamynstri eigandans.
Þú þarft að átta þig á hver fótgerð þín er
og hvers konar hlaup þú ætlar að stunda
til að geta valið rétta skó. Greint er á milli
skóa sem henta fyrir mismunandi not,
fyrst og fremst er um að ræða tvær skó-
gerðir, æfingaskó og keppnisskó. Ýmsu
fólki þykir þó ágætt að skokka á keppn-
isskóm, hver hefur sínar þarfir og óskir í
þessum efnum. Ekkert mælir gegn því að
nota ódýrari skó stöku sinnum.
Yfirleitt eiga skór að uppfylla þrjár meg-
inkröfur:
1) Þeir eiga að passa vel.
2) Þeir mega ekki erta hásinina, ekki
þrýsta fast á hana þegar þú réttir úr fæt-
inum.
3) Sólinn á að sveigjast á sama stað og
tærnar, sem sé ekki undir miðri ilinni.
Sumt fólk getur skokkað á hvaða skóm
sem er sér að vandræðalausu, en algeng-
ast er að rangir og lélegir skór auki líkur á
meiðslum og margs konar vanda. Og því
oftar og lengur sem fólk skokkar þeim
mun mikilvægara er að nota réttu skóna.
Fólki sem skokkar þrisvar til fórum sinn-
um í viku er ráðlegast að eiga að minnsta
kosti tvenn eða þrenn ólík pör af skokk-
skóm og nota þá til skiptis. Með því er
hægt að jafna álag og draga úr líkum á
meiðslum.
Almennt vernduðu allir skórnir í könnun-
inni hlauparann vel. Það vakti athygli að
sumir skokkskór reyndust vera með betri
höggdeyfingu eftir 150 km. notkun held-
ur en þeir voru nýir. Púðunin þarf greini-
lega tíma til að komast í rétt form.
Þetta þarfað athuga
Gera þarf þær kröfur til skokkskóa að
þeir dempi álag og styðji vel við fót, séu
endingargóðir, aflagist ekki og þoli gagn-
rýni bæklunarsérfræðinga. Góðir skór
eiga að endast 1.000-1.500 km.
Plattfótur (á fólki með ilsig) er oft mjúk-
ur og sveigjanlegur og deyfir ekki högg
sérstaklega vel. Hætt er við því að innri
hlutinn leiti of mikið niður á við (fóturinn
„prónerar" of mikið). Holfótur er íbjúgari
að neðan, stífari og strekktari, en það
gerir hann óstöðugan og höggdeyfingu
lélega.
Karlmenn þurfa fremur en konur að gæta
að því að kaupa skó með góðri höggdeyf-
ingu og góðri dempun á hælnum. Konur
þurfa að finna skó sem vernda ilbogann
því þar skapast fremur þrýstingur hjá
þeim. Kvenfótur gerir meiri kröfur til skósins
en karlfótur og því sveiflast einkunnir oft
meira til varðandi kvenskó.
Hins vegar hafa athuganir leitt í Ijós að
karlar geta vel notað kvenskó og konur
karlaskó. Aðalmunurinn er að þunginn
og þrýstingurinn lendir allajafna mikið
meira á miðjum ilfletinum hjá konum en
á hælnum á körlum. Þetta er m.a. orsök
þess að íþróttakonur verða fremur fyrir
hné- og mjaðmameiðslum en karlar.
Þyngd skokkarans skiptir miklu máli. Því
léttari sem hann er þeim mun sveigjan-
Vörumerki Gerð Heildar- gæða- einkunn Verð, kr. Seljandi Fótgerð Þyngd hlaupara Notkun Sveigjan- leiki sóla
E (egypsk) G (grísk) L (léttur) M (meðalþyngd) Þ (þungur) S (stundum) Þ (þjálfun) K (keppnisþjálfun)
Adidas Supernova Control 3.56 11,990 Hlaupasíðan G M / (Þ) Þ 5.5
Adidas Supernova Cushion 2.00 12,000 Sportbúð Kópavogs G M-Þ Þ 5.5
Asics Gel-Cumulus IV 3.19 8,990 Hlaupasíðan E M/(Þ) Þ 5.5
flsics Gel-Kayano IX 4.01 15,590 Hlaupasíðan E M Þ 5.5
Asics Gel-1080 3.92 12,995 Everest E M K 5.5
flsics GT-2080 3.46 12,490 Hlaupasíðan E L-M Þ/K 5.5
Diadora Mythos training DA 3.59 6,990 Ástund G M Þ 5.5
Nike Air Pegasus 4.13 12,290 Intersport E L/M Þ 5.5
12 NEYTENDABLAÐIÐ 2 TBL. 2003