Neytendablaðið - 01.06.2003, Qupperneq 19
hitalampar eða frystigeymslur. Kjötið er
ferskt, kartöflurnar eru skrældar á hverj-
um morgni og mjólkurhristingurinn er úr
ís en ekki sýrópi. Sömu sögu er að segja
um Conway's Red Top keðjuna sem fram-
reiðir gómsætan skyndibitamat með
gamla laginu.
Það fer tvennum sögum af reynslu ná-
grannaþjóða okkar af einkavæðingu á
opinberri þjónustu. Stefna stjórnvalda á
Norðurlöndum hefur almennt verið sú
að einkavæða flestar þær stofnanir sem
áður voru reknar af ríkinu. í Svíþjóð eru
menn komnir nokkuð langt í þessu ferli.
íslendingar reka lestina en fylgja þó í
kjölfarið. Það stendur til að einkavæða
raforkudreifinguna hér á landi og er
því fróðlegt að sjá hvað nágrannar okk-
ar segja um sína reynslu. Hér á eftir er
skemmtileg grein sem við fundum í Nya
Vermlands-tidningen í Svíþjóð þar sem
blaðamaðurinn Arne Skorup setur einka-
væðingu áfengisverslunarinnar í sama far
og raforkumarkaðurinn hefur farið.
ÞaÖ er tími til komirm aÖ opna augun
Eingöngu með því að einkavæða áfengis-
verslunina getum við minnkað drykkjuna
í landinu.
Inn með áfengið í stórmarkaðina og lok-
um ríkinu. Burt með ATVR. Látum frjálsa
innflytjendur sjá um allt heila klabbið.
Það slær örugglega á framboðið og
smám saman tvöfaldast verðið. Niður-
staðan er þjóðarbindindi í þeim mæli
sem góðtemplarar hefðu aldrei látið sig
dreyma um.
í upphafi virðist þróunin sennilega verða
öfug. Samkeppnin sýnist aukast. Nýir
víninnflytjendur munu skjóta upp kollin-
um eins og gorkúlur og byrja að selja góð
HvaÖ er til ráÖa ?
Erik Schlosser telur að þingið ætti að setja
margvísleg lög til að bæta úr. Hann telur
hins vegar ólíklegt að það verði gert. Itök
stórfyrirtækja í stjórnmálaflokkum og
áhrif þeirra á stjórnmálamenn eru einfald-
lega of mikil og markaðurinn stjórnlaus.
og ódýr vín í sérvöldum verslunum. Fólk
drekkur ef til vill aðeins meira.
En fljótlega koma hin frjálsu markaðsöfl
með sínar jarðýtur.
Einn víninnflytjandi yfirtekur annan,
og verður svo sjálfur fyrir yfirtöku hins
þriðja og fljótlega kemur svo sá fjórði.
ÁTVR fer á markað í kauphöllinni og
byrjar að yfirtaka stóra markaðsaðila á
Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndun-
um. Óháðir vínsalar verða hlekkjaðir við
stórar keðjur. Útsölustöðum fækkar.
Nokkrum árum eftir einkavæðinguna
hafa þrír til fjórir risar náð undir sig allri
áfengissölu á Norðurlöndum.
Skyndilega fara að koma fréttir af vín-
þurrð og undarlegum þrúgu-sjúkdómum
í Suður-Evrópu. Innflytjendur klingja
viðvörunarbjöllum um tómar tunnur í
víngeymslum á Norðurlöndunum. Að-
föngin minnka og hillurnar í verslunun-
um tæmast.
Eins og af tilviljun er samtímis talað um
skyndilegan uppskerubrest á kartöflum
og umfangsmikinn skordýraskaða í hveiti
hjá þeim bændum sem sjá framleiðend-
um fyrir hráefni. „Við verðum að hækka
verðið. Það er framboð og eftirspurn
sem stjórnar markaðnum," segja mark-
aðsöflin.
Þar með hefur einkavæðingin fengið
fulla og fyrirsjáanlega virkni: Verslanirnar
með úrval vína eru horfnar, siðlausar tekj-
ur ríkisins af drykkju fólks hafa minnkað
niður í lítið brot, nýju stórfyrirtækin
moka inn peningum vegna leynilegs og
ólögmæts samráðs.
Fólk hefur ekki lengur efni á að drekka
sig fullt nema það taki áhættuna við að
brugga heima og lenda þá jafnvel í stein-
inum.
Getur þetta virkilega orðið svona? spyrð
þú sem þetta lest.
Að sjálfsögðu, segi ég.
Það var hér um bil nákvæmlega þetta
sem gerðist þegar raforkumarkaðurinn
var einkavæddur. Fyrst var stutt ánægju-
Reyndar færir höfundur mjög góð rök fyr-
ir því hvað óheftur frjáls markaður hefur í
för með sér og hverjum hann þjónar.
Það er víst alveg óhætt að taka undir orð
gagnrýnenda The Daily Oklahoman sem
telur að þessi bók ætti að vera skyldulesn-
ing fyrir alla fullorðna neytendur.
tímabil með lækkuðu raforkuverði. Svo
komu stórfyrirtækin og lögðu undir sig
keppinautana.
Gerviskortur á rafmagni var skapaður
meðaðstoðsvokallaðrarraforkukauphall-
ar Nordpool (sem virkar sem lyftistöng
til að hækka raforkuverðið). Nú sitjum
við uppi með 4 og allt upp í 7 norskar kr.
fyrir kílóvattstundina.
Raforkumarkaðurinn er bara nýjasta
dæmið um misheppnaða einkavæðingu.
Athyglisvert er að fyrr eða síðar hafa allar
einkavæðingar leitt til verri þjónustu og
hærra verðs.
• Einkavæðing fjármálafyrirtækja hefur
leitt til breiðara bils milli innláns- og
útlánsvaxta en nokkurn tíma fyrr. Bank-
arnir sýna rosagróða, en á sama tíma á
Svíþjóð evrópskt met í fækkun bankaúti-
búa miðað við íbúafjölda.
• Afnám símaeinokunarinnar breyttist í
tvöfalt rán. Annarsvegar sitjum við uppi
með helling af hlutabréfum sem hríðfalla
í verði. Hinsvegar hafa gjöld fyrir síma-
og internetnotkun orðið miklu hærri.
• Pósturinn? Nei, ég segi ekki dauður.
Þegar hefur allt verið sagt sem segja þarf
um pósthús sem ekki selur frímerki og um
sendingarkostnað á bögglum sem oftast
er meiri en verðmæti innihaldsins í send-
ingunni. Að ekki sétalað um það sem eng-
inn skilur, afhendingu pakkanna.
• SJ, Sænsku járnbrautirnar? Eru þær
ennþá til?
Bráðum verður aðeins áfengiseinkasalan
eftir. Hún gengur frábærlega. í áfengis-
verslunum okkar er stórkostlegt úrval
miðað við kaupmennina í Suður-Evrópu.
Fleiri og fleiri Svíar koma í nýjar og glæsi-
legar sjálfsafgreiðslubúðir og geta valið
úr víntegundunum. Verð fer lækkandi.
Skuggahliðin er hinsvegar að meira er
drukkið.
Það er semsé kominn tími til að gera átak
í áfengismálunum. Einkavæða!
Húrra fyrir einkavæðingu - eða hvað?
NEYTENDABLAÐIÐ 2. TBL. 2003 19