blaðið - 05.12.2006, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
NOREGUR
Tertukastari dæmdur
Johan Waagaard sem kastaði köku í höfuð
Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, á
fyrsta starfsdegi hennar fyrir rúmu ári, var
dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í gær,
Verjandi hanns segir að dómnum verði áfrýjað.
Blaðamenn sýknaðir
Þrír blaðamenn Berlingske Tidene voru sýkn-
aðir af ákæru vegna skrifa blaðsins árið 2004
upp úr leyniskýrslum öryggisþjónustu danska
hersins. Þeir voru sakaðir um að grafa undan
öryggishagsmunum en dómari sýknaði þá.
FRAKKLAND
Eigandi vill Díönu-bíl aftur
Eigandi bílsins sem Díana prinsessa var farþegi í þegar hún
lést í París árið 1997 vill fá bílinn sinn aftur úr höndum bresku
lögreglunnar. „Þetta er einstakt flak og kemst í sama flokk og
bíllinn sem James Dean var í þegar hann lést,“ og bætir við að
sér hafi borist til eyrna að flakið sé 120 milljóna króna virði.
-hreinlega sterkari
EENERAL TIRE ©.
Gylfaflöt 3*112 Reykjavík • Sími 567 4468
dekk@gummisteypa.is • www.gummisteypa.is
Strandagaldur þarf að skera niður:
Vígtennurnar
dregnar úr fólki
■ Skuldastaðan slæm ■ Miklar framkvæmdir ■ Einstaklingar í ábyrgðum
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
„Við neyðumst til að draga verulega
úr starfseminni á næstunni, því
skuldastaðan er orðin slæm,“ segir
Sigurður Atlason, framkvæmda-
stjóri Galdrasýningar á Ströndum.
„Það er kominn tími á að fara að
borga niður skuldir. Þegar við opn-
uðum árið 2000 þurftum við að
taka stórt lán sem nú er farið að
draga svolítinn mátt úr okkur.“
Sigurður segir að síðustu ár hafi
verið miklar framkvæmdir sem
hafi komið niður á greiðsluget-
Slæmt fyrir
ferðaþjónustu á
Strðndum.
Sigurður Atlason
Framkvæmdastjóri
Strandagaldurs
unni. „Nú þurfum við að fara að
greiða niður skuldir þar sem þetta
er í sjálfskuldarábyrgð hjá einstak-
lingum. Ég geri ráð fyrir að niður-
skurðurinn komi eitthvað niður á
starfsmannahaldi og svo verðum
við að hætta við ýmis verkefni sem
til stóð að fara í.“
Sigurður segir stöðuna vera mjög
slæma því hún dragi vígrennurnar
úr fólki og að erfitt sé að eyða
löngum tíma í að vera með ókláruð
verkefni hér og þar. „Þetta verður
væntanlega til þess að áætlanir um
þriðja áfanga norður í Árneshreppi
dragast verulega. Það er ekki gott
því að byggðin þarna norðurfrá
þarf á því að halda að eitthvað já-
kvætt gerist þar. Þá er ástandið
slæmt almennt fyrir ferðaþjónustu
á svæðinu því að Strandagaldur
hefur verið visst flaggskip bæði
í markaðssetningu og öðru hér á
Ströndum."
IRBODY
RS200sd
hlaupamælir
SMÁRALIND SlMI 545 1550 O GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 O KRINGLUNN! SÍMI 545 1580
i'
Jólageitin í Gavle Brennuvarg- j;
ar hafa náð til hennar um þrjá-
tíu sinnum ífjörutíu ára sögu.
... n iiimiiiio —iiiin
Jólageitin í Gávle í Svíþjóð:
Á ekki að brenna
Jólageit sænska bæjarins Gávle er
komin á sinn stað á Hallartorginu.
Jólageitin, sem búin er til úr hálmi,
hefur skreytt torgið ár hvert frá 1966.
Geitin hefur hins vegar verið
brennd eða orðið fyrir annars konar
skemmdum af mannavöldum rúm-
lega þrjátiu sinnum í fjörutíu ára
sögu hennar. Þó að öryggisgæsla við
geitina hafi aukist umtalsvert á und-
anförnum árum hefur ekkert dregið
úr skemmdarverkunum.
Geitin, sem hefur verið um þrettán
metra há, hefur orðið fyrir íkveikju
sjö sinnum á síðustu átta árum. Þrátt
fyrir að hópurinn sem reisir geitina
hafi rennbleytt hana í fjölda ára til
að koma í veg fyrir íkveikjur hefur
hún samt sem áður orðið fórnarlamb
brennuvarga og brunnið til kaldra
kola. Talsmaður hópsins segir að enn
frekari ráðstafanir hafi verið gerðar
í ár. „Jólageitin mun ekki brenna á
fjörutíu ára afmælinu. Við notumst
við Fiber ProTector brunavörn sem
er meðal annars notuð í flugvélum.
Napalm ætti ekki einu sinni að verða
henni að falli.“