blaðið - 05.12.2006, Side 21
blaðiö
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 29
Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans
í tilefni alþjóðlegs dags sjálfboðalið-
ans 5. desember vUl Reykjavíkurdeild
Rauða kross Islands nota tækifærið
og þakka sjálfboðaliðum deildar-
innar fyrir mikið og gott starf þeirra
fyrr og nú.
Eitt meginhlutverk Rauða krossins
er málsvarastarf sem meðal annars
hefurþann tilgang að rjúfa einangrun
fólks og vinna gegn fordómum og mis-
munun í samfélaginu. Á því sviði er
ærið verk að vinna en meðal okkar
í þjóðfélaginu eru margir sem búa
við einangrun og mismunun eins og
niðurstöður könnunar Rauða kross
Islands, Hvar þrengir að, fyrr á þessu
ári leiddi berlega í ljós. Margt hefur
verið gert á þessu sviði í gegnum árin
en betur má ef duga skal.
fólks er net stuðningsfjölskyldna sem
samanstendur af sjálfboðaliðum og
hefur þann tilgang að aðstoða það
fólk við aðlögun í nýjum aðstæðum.
Tilgangur sölubúða sjúkrahúsanna
og föndurhóps er fjáröflun í þágu
góðra málefna og hafa þeir hópar stutt
við starf sjúkrastofnana og fleiri aðila
með góðum gjöfum og styrkjum í
gegnum árin. Prjónahópur vinnur að
verkefninu Föt sem framlag og styrkir
Hjálparsjóð Rauða krossins með sölu
í L-12 Rauðakrossbúðinni en þar eru
sjálfboðaliðar við afgreiðslu.
Reykjavíkurdeild tekur virkan þátt
í alþjóðastarfi Rauða krossins með
þátttöku í átaksverkefnum sem oft
eru fjáröflunarverkefni að beiðni Al-
þjóða Rauða krossins. Slík verkefni
krefjast samtakamáttar Rauða kross-
ins og þátttöku almennings.
Eins og sjá má af því sem hér hefur
komið fram er starf sjálfboðaliða
kjarninn í starfsemi Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins eins og í starfi
Rauða krossins um heim allan. Að
vilja láta gott af sér leiða er algeng-
asta ástæða þess að fólk kýs að starfa
fyrir hreyfinguna enda gott og göfugt
að gefa af tíma sínum til verkefna
hennar sem í dag eru sameinuð í heit-
inu Byggjum betra samfélag. Með því
gefst tækifæri til að bæta við reynslu
sína og þekkingu, hvort sem er á nýju
sviði eða kunnugu og um leið að til-
heyra öflugum félagsskap með mann-
úðarhugsjón að leiðarljósi.
Mörg og ólík verkefni kalla á mik-
inn mannskap en að öllu jöfnu starfa
sjálfboðaliðar í langtímaverkefnum
6-12 tíma á mánuði fyrir hreyfinguna.
Öðru hverju er þörf fyrir sjálfboða-
liða til skemmri átaksverkefna.
Við viljum óska sjálfboðaliðum
okkar til hamingju með daginn og
um leið vekja athygli á að við erum
aldrei of mörg. Við bjóðum ávallt nýtt
fólk velkomið í okkar góða hóp. Nán-
ari kynningu á starfi sjálfboðaliða
fyrir Reykjavíkurdeild má nálgast á
heimasíðu deildarinnar (www.redc-
ross.is) og hjá Sjálfboðamiðlun Reykja-
víkurdeildar Rauða krossins.
Höfundur er forstöðumaður Sjálfboða-
miðlunar Reykjavíkurdeildar Rauða
kross Islands.
Starfsjálf-
boðaliða er
kjarninn í
starfseminni
Umrœðan
Huldis S. Haraldsdóttir
I tilefni dags sjálfboðaliðans er
ekki úr vegi að líta yfir þá miklu
flóru verkefna sem borin eru uppi
af sjálfboðaliðum deildarinnar sem
eru fjölmargir og á öllum aldri. Með
starfi sínu leggja þeir drjúgan skerf
til margra þeirra málefna sem velferð-
arkerfi okkar Islendinga nær illa eða
ekki til.
Hjá Reykjavíkurdeild er með
ýmsum hætti lögð áhersla á að létta
undir með einstaklingum og fjöl-
skyldum í vanda. I lífinu skiptast á
skin og skúrir og öll getum við lent
í því að þurfa á einhverjum að halda
sem rétt getur hjálparhönd þegar erf-
iðleikar sækja að. Heimsóknarþjón-
usta sem sjálfboðaliðar hafa haft með
höndum er með elstu verkefnum deild-
arinnar. Heimsóknarvinir Rauða
krossins leitast við að stytta fólki sem
býr við einsemd stundir með spjalli
eða gönguferð og lesa fyrir hópa á
nokkrum sjúkrastofnunum. Þá er
föngum einnig boðið upp á heim-
sóknir sjálfboðaliða. Hópar sjálfboða-
liða hafa til langs tíma haldið utan um
sjúklingabókasöfn á sjúkrahúsunum
ásamt hljóðbókaþjónustu. Sjálfboða-
liðar starfa við hlið starfsfólks í Konu-
koti sem er athvarf ætlað konum sem
eru heimilislausar og hafa ekki í nein
hús að venda. Á sunnudögum standa
sjálfboðaliðar fyrir samverustund
í Vin sem er athvarf á vegum Rauða
kross Islands fyrir geðfatlaða.
Hjálparsíminn 1717 er gjaldfrjáls
sími sem er opinn allan sólarhring-
inn fyrir þá sem þurfa stuðning vegna
sálrænna vandamála, einmanaleika
eða sjálfsvígshugsana, félagslegra
vandamála eða neyslu. Hjálparsím-
inn er fyrir alla aldurshópa hvar
sem er á Íandinu og svara bæði sjálf-
boðaliðar og starfsfólk í hann. 1717
er einnig mikilvægur hlekkur sem
upplýsinganúmer almennings vegna
neyðarástands innanlands, t.d. vegna
náttúruhamfara.
Áhersla er á starf með börnum
og unglingum sem endurspeglast í
nokkrum verkefnum sem borin eru
uppi af sjálfboðaliðum. Helst þeirra
eru: Málörvun og heimanámsaðstoð
fyrir börn af erlendum uppruna, starf
með börnum í Kvennaathvarfinu,
stuðningur við ofvirk börn og BUSL
sem er starf með hreyfihömluðum
unglingum í samstarfi við Sjálfsbjörg.
Hlutverkaleikurinn Á flótta hefur
verið skipulagður fyrir nemendur
grunnskóla víða um land á undan-
förnum árum. Með honum er miðað
að því að þátttakendur öðlist skilning
á hlutskipti og aðstæðum flóttafólks.
Unglingastarf, námskeið og fræðsla
af ýmsum toga er einnig þáttur í
starfi með ungu fólki.
Veigamikill þáttur í móttöku flótta-
Fiskfars á fínu verði
Nú er sannkallað sprengitilboð á dýrindis
fiskfarsi í Fiskisögu og því tilvalið að
bjóða upp á frábærar fiskbollur í kvöld.
Fljótlegra og betra verður það ekki.
Ævintýralegar fiskbúðir
Hamraborg 14a • Skipholti 70
Höfðabakka 1 • Vegamótum (Nesvegi 100)
Fiskfars 390 kr. kílóið. Sundlaugavegi 12 • Háaleitisbraut 58-60