blaðið - 05.12.2006, Síða 24
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006
blaðið
Maöurinn getur þolaö allt
nema hvern hversdagslega
daginn á fætur öörum
Goethe
Afmælisborn dagsxns
FRANCISCO FRANCO EINRÆÐISHERRA, 1892
RAINER MARIA RILKE SKÁLD, 1875
kolbrun@bladid.net
íslensk
hernaðarsaga
Út er Komin Hernaðarsaga ís-
lands 1170-1580 eftir Birgi Lofts-
son sagnfræðing. Verk þetta
er fyrsta
rit sinnar
tegundar
sem fjallar
um áður
ókannað
svið íslands-
sögunnar,
hernaðar-
sögu íslands
á miðöldum.
Hún fjallar
um hermennsku og hernað á
íslandi átímabilinu 1170-1581.
Hún varpar Ijósi á flestalla þætti
hermennsku og hernaðar á
íslandi á þessu tímabili.
Verkið greinir meðal annars frá
vopnabúnaði landsmanna, hern-
aðarmannvirkjum, herútboðum,
landvörnum, hersköttum,
herskipulagi, hernaðarað-
ferðum, þróun og eðli hernað-
arátakanna, samfélagslegum
áhrifum og síðast en ekki síst er
atburðasagan rakin á lifandi og
skýran hátt.
Kæfandi heimur
Út er komin hjá Sölku skáldsagan
Brekkan eftir norska höfund-
inn Carl Frode Tiller í þýðingu
Kristians
Guttesens.
Brekkan er
saga um
ungan mann
sem dvelur
á réttargeð-
deild. Hann
skráir minn-
ingar sínar
og smám
saman
verður úr heildarmynd af einstak-
lingi sem dregur lesanda inn í
frumstæðan og kæfandi heim
geðveikinnar. Brekkan er frum-
raun norska rithöfundarins Carl
Frode Tiller.
Alvöru
igurður Bragason bar-
ítón hefur undanfarin
ár sungið í nokkrum
þekktustu tónleikasöl-
um heims, þar á meðal í
Carnegie Hall og Wigmore Hall, og
fengið frábæra dóma. Eftir tónleika
sína í Wigmore Hall árið 1993 fékk
hann tilboð um tónleika frá mörg-
um af virtustu tónleikahúsum og
tónlistarhátíðum Evrópu og Amer-
íku. Á efnisskrá hans eru venjulega
íslensk sönglög en Sigurður segir
það hluta af starfi sínu að kynna ís-
lensk lög erlendis.
Nú er Sigurður staddur í Róm þar
sem hann mun halda tónleika í Borr-
omini-tónleikasalnum við Piazza
Navona í miðborg Rómar en þeir
eru þáttur í árlegri tónleikahátíð
þar í borg sem hófst 15. október og
stendur fram í júní. „Framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar gerir mjög mikl-
ar kröfur og hefur honum tekist að
gera þessa tónlistarhátíð einhverja
þá vinsælustu í Róm. Blaðamaður
New York Times sagði þetta vera
mest spennandi listahátíð í Róm,
þar væri fjölbreytt efni og góðir lista-
menn, vel væri að hátíðinni staðið
og auk þess væri hún sjarmerandi,"
segir Sigurður. Hann er ekki eini
listamaðurinn frá Islandi sem kem-
ur fram á hátíðinni, en fyrir tilstilli
hans var ákveðið að bjóða Rut Ing-
ólfsdóttur fiðluleikara, Kjartani Ól-
afssyni tónskáldi, Pétri Jónassyni git-
arleika, Richard Simm pianóleikara,
Signý Sæmundsdóttur söngkonu og
Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanó-
leikara.
Eftir tónleika sína í Róm mun Sig-
urður halda tónleika utan borgarinn-
ar. Á efnisskránni eru meðal annars
íslensk lög. Ákveðið hefur verið að
hljóðrita tónleikana.
HERNAÐARSAGA
ÍSLANDS
\M'WL
Bdkin sm allir eru að tal« m
- og þi\ vtrhr é lesa!
Einlæg og átakamikil ævisaga sem
lætur engan ósnortinn
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
menningarkynning
Sigurður Bragason „Island
þykir óheyrilega spennandi,
viö eigum frábært listafólk og
tónskáld okkar þykja áhuga-
verö og óvenjuieg." mmm
Aukin samskipti við
erlendar listahátíðir
í Róm munu Sigurður og Guðni
Bragason, forstöðumaðursendiráðs
íslands í Róm, hitta framkvæmda-
stjóra erlendra tónlistarhátíða, þar
á meðal eru framkvæmdastjórar
Borromini-tónleikaraðarinnar og
Roma Europa festival og Andreas
Loesch sem er forstjóri tveggja
stórra listahátíða í Þýskalandi, en
eftir þann fund munu þeir vera í
sambandi við framkvæmdastjóra
Wigmore Hall í London, Einleiks-
salar Carnegie Hall og Scandinavia
House í New York, en Sigurður hef-
ur haldið tónleika í þessum húsum
og kynnst framkvæmdastjórnum
þeirra.
Nokkrir af framkvæmdastjórum
þekktra listahátíða hafa komið hing-
að til lands sem gestir Sigurðar, til
dæmis Andreas Loesch. Umræðu-
efni á fundinum i Róm verða aukin
samskipti milli erlendra listahátíða
og íslenskra listamanna. „Það er
mikill áhugi hjá þessum mönnum
að fá íslenska listamenn á listahá-
tíðir og að listamenn frá þeim komi
til íslands á íslenskar hátíðir. Það
skapar samhengi og framhald í
menningartengslum," segir Sigurð-
ur. „ísland þykir óheyrilega spenn-
andi, við eigum frábært listafólk og
tónskáld okkar þykja áhugaverð og
óvenjuleg. Ég nefni sem dæmi Jón
Leifs. Hann er sennilega þekktasta
tónskáld okkar, ég flyt mikið eftir
hann og er mikið spurður um hann.
í Potsdam við Berlín, þar sem hann
bjó, er torg sem heitir eftir honum.
Hvað höfum við íslendingar gert
fyrir Jón Leifs? Við höfum ekki gert
mikið af því að segja frá okkar fína
listafólki. í Þýskalandi hafa menn
gert meira fyrir Jón Leifs en við.“
Alvöru menningarkynning
Sigurður segir framkvæmda-
stjóra erlendra tónlistarhátíða leita
eftir nýrri tónlist til flutnings. „Al-
mennt er íslensk tónlist ekki mikið
þekkt erlendis. Ég var á tónlistarhá-
tíð í Kaupmannahöfn þar sem ég
söng íslensk lög. Danskur gagnrýn-
andi kom til mín og sagðist ekkert
vita um íslenska tónlist, það eina
sem hann hefði heyrt væri brot úr
verki eftir Jón Leifs í Kontrapunkti.
Við verðum að standa okkur í kynn-
ingu á íslenskum verkum. Það er
það sem ég reyni að gera. Það er bú-
ið að flytja öll gömlu klassísku verk-
in þúsund sinnum í tónleikahúsum.
Forsvarsmenn tónlistarhátíða og
tónlistarhúsa um allan heim eru
að leita að nýjum verkum og þegar
þeir heyra íslenska tónlist, eins og
verk Jóns Leifs eða verk Atla Heim-
is Sveinssonar, þá taka þeir við sér.
1 þvi felast stór tækifæri, og útrás
fyrir íslenska menningu, og aldrei
skyldi vanmeta tekjurnar og við-
skiptatækifærin sem menningin
getur fært Islendingum. Utanrík-
isráðueytið og Loftbrúin gegna
lykilhlutverki í þessari nýju útrás.
Ég þekki það af eigin raun hversu
mikilvægt starf hefur verið unnið
í sendiráðunum, af mönnum eins
og Hannesi Heimissyni, Hjálmari
Hannessyni og Helga Ágústssyni
og fleirum að alvöru menningar-
kynningum erlendis."
menningarmolinn
Steinbeck og hafið
Á þessum degi árið 1941 kom út
fræðibókin The Sea of Cortez eft-
ir John Steinbeck. 1 bókinni er að
finna hugleiðingar Steinbecks um
sjávarlíffræði. Seinna nýtti hann
þekkingu sína á sjónum og lífver-
um hafsins til að skapa Doc, sjávar-
líffræðinginn í skáldsögunni Cann-
ery Row sem kom út árið 1945.
Þegar The Sea of Cortez kom út
var Steinbeck heimsfrægur rithöf-
undur, hafði skrifað Mýs og menn
og unnið Pulitzer-verðlaunin og
The National Book Award fyrir
skáldsöguna Þrúgur reiðinnar.
Þetta eru þekktustu bækur hans og
fela í sér sterka þjóðfélagsgagnrýni.
I verkum sínum, eftir lok seinna
stríðs, hélt hann áfram þjóðfélags-
gagnrýni sinni en hún varð mildari
og viðkvæmnislegri en áður var.
Steinbeck hlaut Nóbelsverðlaun-
in í bókmenntum árið 1962 og lést í
New York árið 1968.