blaðið - 05.12.2006, Page 28
5. DESEMBER 2006
blaðið
onmo
Árni Blandon les upp úr verkum Hallbergs Hallmundssonar, Ijóðskálds og
þýðanda, á Skáldaspírukvöldi í bókaversluninni Iðu í Lækjargötu í kvöld
klukkan 20. Einnig mun Ingunn Snædal Ijóðskáld lesa úr verkum sínum en
hún hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar á dögunum.
Rithöfundurinn Guðbergur Bergsson hefur verið tilnefndur til hinna virtu
ítölsku Nonino-verðlauna fyrir skáldsögu sína Svaninn sem kom upp-
haflega út á íslensku árið 1992. Nonino-verðlaunin eru álitin ein mesta
viðurkenning sem rithöfundum getur hlotnast á (talíu.
Þjóðsagnapersónur
í lifanda lífi skoðaðar
Sex ferðaævisögur Páll Ásgeir Ásgeirsson ræðirvið sexþekkta feröaianga
sem miðla af reynslu sinni af ferðalögum í bók sinni Fótspor á fjöllum.
Hvað ertu
að lesa?
Katrín Júlíusdóttir
alþingismaður
Ég get sagt alveg hreinskilnis-
lega að ég er ekki með neitt
annað en þingskjöl á mínu borði
þessa dagana. Ég les alltaf tvær
til þrjár bækur um jólin og vona
að ég fái einhverjar slíkar í jóla-
pakkann. Ég er líka mjög mikið
fyrir ævisögur þannig að ég á
ábyggilega eftir að lesa bókina
um Margréti Frímannsdóttur og
hlakka til þess. Ég hlakka líka
til að lesa kómíska sýn Ellerts
Schram sem hefur fengið góða
dóma. Svo er ég náttúrlega
mjög spennt fyrir bókinni Óvinir
ríkisins eftir Guðna Th. Jóhann-
esson. Ég hef aðeins verið að
fletta í henni og maður þekkir
náttúrlega marga þarna og þetta
er spennandi lesning út af því.
Jakob Frímann Magnússon
tónfistarmaður
Ég er að Ijúka annarri yfirferð á
hinni frábæru bók Andra Snæs
Magnasonar Draumalandinu og
jafnframt byrjaður að kroppa að-
eins í Aldingarð Ólafs Jóhanns.
Þetta verða spennandi bóka- og
geisladiskajól hjá þeirri blómstr-
andi vitundariðnaðarþjóð sem
Islendingar eru í dag. Það er
margt sem ég hlakka til að lesa
meðal annars Route 66 sem er
nýútkomin og fjallar um ferðalag
Einars Kárasonar, Ólafs Gunnars-
sonar og fleiri um sömu leið og
ég fór árið 1975 á sams konar
fararskjóta. Það verður gaman
að bera saman minningar mínar
við upplifun þeirra núna löngu
síðar. Þetta var svo sannarlega
mikil ævintýrareisa hjá mér en
ég ákvað hins vegar að niður-
greiða ekki ferðakostnaðinn með
reynslusögum.
áll Ásgeir Ásgeirsson
blaðamaður hefur skrif-
að fjölda vinsælla ferða-
bóka á undanförnum
árum þar sem hann
eys úr brunni þekkingar sinnar og
reynslu af ferðalögum um náttúru
Islands. Á dögunum gaf Páll Ásgeir
út enn eina ferðabókina, Fótspor
á fjöllum, sem er frábrugðin fyrri
bókum hans að því leyti að í henni
tekur hann viðtöl við sex nafntog-
aða ferðalanga sem miðla af reynslu
sinni. Allir tengjast viðmælendur
hans Ferðafélagi íslands með ein-
hverjum hætti en félagið fagnar
8o ára afmæli sinu á næsta ári.
Viðmælendurnir eru Guðmundur
Hallvarðsson, Höskuldur Jónsson,
Valgarður Egilsson, Gerður Stein-
þórsdóttir, Sigrún Valbergsdóttir
og Ingvar Teitsson.
Páll Ásgeir segir að það sem hafi
ráðið vali á viðmælendum hafi ver-
ið að allt eigi þetta fólk sameigin-
legt að vera þjóðsagnapersónur í
lifanda lífi í hópi þeirra sem ferð-
ast um íslenska náttúru.
„Þetta fólk er allt frægt fyrir leið-
sögn sína og fararstjórn og sögur
af því og leiðsögnum þess lifa með-
al fólks. Þetta fólk er orðlagt fyrir
hvað það er gaman að ferðast með
því og mig langaði eiginlega til að
koma þessu fólki á prent. Ég held
að í þessari bók geti menn komist
að því að margt sem er sagt um
þetta fólk er satt. Sumar þjóðsög-
ur eru sannar," segir Páll Ásgeir
og bætir við að hann hafi einnig
valið viðmælendur með það fyrir
augum að þeir kæmu úr ólíkum
áttum.
Ólík sýn á náttúruvernd
„Ég lagði upp með það að fólk
segði mér ferðaævisögu sína, tal-
aði um hvernig það vildi til að það
ánetjaðist ferðalögum, hvað vakti
áhuga þess, hvar það hefur ferðast
innanlands eða erlendis. Svo tal-
aði ég einnig við það um viðhorf
þess til íslenskrar náttúru og nátt-
úruverndar þannig að það viðrar
skoðanir sínar líka en segir ekki
bara ferðasögur,“ segir Páll Ásgeir
og bendir á að ólík sýn komi fram
á þessi mál hjá viðmælendunum.
„I þessum hópi eru bæði gríð-
arlega miklir náttúruvinir og
friðunarsinnar sem nálgast nátt-
úruna á allt að því andlegum nót-
um. Þarna er líka að finna viðhorf
þeirra sem taka jarðbundna og
skynsama afstöðu og eru til dæm-
is hlynntir virkjunum sem maður
myndi kannski ekki í fljótu bragði
búast við að fyndust í þessum
hópi. Það er greinilegt að i hópi
útivistarfólks rúmast allar skoð-
anir hvað þetta varðar þó að það
séu óneitanlega tímar breytinga í
þessum efnum í samfélaginu,“ seg-
ir Páll Ásgeir.
Þó að Páll Ásgeir sé víðförull ferða-
langur segir hann að við gerð bókar-
innar hafi orðið til hsti af stöðum sem
hann á eftir að kynna sér.
„Sumt af þessu fólki hefur lagt leið
sína á mjög fáfarna staði í íslenskri
náttúru sem er erfitt að komast á.
Sum svæðin sem ég ræddi við fólk
um þekki ég mjög vel en önnur hef
ég aldrei komið á þannig að það
varð til smálisti af stöðum sem mig
langar til að heimsækja," segir Páll
Ásgeir.
Lítill heimur t öllum
Vinnsla bókarinnar var mjög
skemmtileg að sögn Páls Ásgeirs
sem útilokar ekki að önnur bók
líti dagsins ljós. Það fer þó eftir
þeim viðtökum sem þessi fær. Að
minnsta kosti er nóg til af sögum
sem eftir á að setja á prent.
„Það er saga í öllum, litill heimur
inni í öllu fólki og það ræður sjálft
hvort það hleypir manni þangað
inn eða ekki en það hafa allir frá
miklu að segja.
Ég hef oft heyrt menn segja stór-
kostlegar ferðasögur sitjandi á
rekaviðardrumbi við varðeld niðri
í flæðarmáli eða á tjaldstæði eða
í sæluhúsi þar sem kringumstæð-
ur eru réttar. Svo þegar þeir eru
komnir inn í eldhúskrók þá vantar
kannski stemninguna. Eg komst
líka að því að það getur verið svo-
lítill munur á góðri sögu sem nær
góðu flugi í þröngum hópi í fjalla-
kofa og því þegar maður setur sann-
leikann á prent. Skáldgáfan kemur
arna við sögu,“ segir Páll Ásgeir
sgeirsson að lokum.
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
fréttamaður
Ég er byrjuð að lesa Ólafíu
eftir Sigríði Dúnu og líst alveg
fádæma vel á hana. Hún fjallar
um konu sem fæddist upp úr
miðri 19. öld og starfaði meðal
vændiskvenna, fátæklinga og
drykkjumanna í Ósló. Hún er
fallega skrifuð og af virðingu og
lotningu fyrir konunni. Sigríður
Dúna skrifaði líka Björgu, ævi-
sögu Bjargar Þorláksson, og hún
fékk íslensku bókmenntaverð-
launin fyrir hana árið 2001. Mér
finnst mjög gaman að lesa um
svona merkilegar konur. Svo er
ég spennt fyrir að lesa nýju bók-
ina hans Ólafs Jóhanns en ég er
ekki búin að eignast hana. Svo
er ég alveg ákveðin í að setja
á óskalistann nýju Stafsetning-
arorðabókina sem ég held að
sé mikið þarfaþing og komi sér
mjög vel á fréttastofu.
Orn Amarson dæmir bókina Við öll - íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum:
Tilboð um rökræðu
ví ber að fagna að íslenskur
stjórnmálaleiðtogi sendi frá
sér rit um sýn sína á hið stærra
samhengi stjórnmálanna. í bókinni
Við öll reifar Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna,
helstu hugsjónir sínar á skeleggan
hátt. Steingrímur er róttækur jafn-
aðarmaður og er ekkert sérstaklega
ánægður með ástand mála hér heima
og á erlendum vettvangi. Steingrím-
ur nálgast stjórnmálin með heild-
stæðum hætti: efnahagsmál verða
ekki slitin frá umhverfismálum, fé-
lagsmálum og utanríkismálum svo
dæmi séu tekin. Með þessari nálgun
fer svo formaðurinn yfir helstu hita-
mál samtímans.
Rauði þráðurinn í greiningu Stein-
gríms er óæskileg áhrif fjármagns
á samfélagsgerðina, framkvæmd
lýðræðis og alþjóðamál. Hann telur
vanda markaðsskipulagsins felast
í því að það tekur ekki tillit til fé-
lagslegra og menningarlegra þátta
auk umhverfismála. Hann talar
um „markaðsvæðingu stjórnmál-
anna” og telur að einkavæðingar-
ferli liðinna ára hafi dregið úr„íýð-
ræðislegu valdi almennings”. Hann
svarar ekki rökum þeirra sem telja
að alræði stjórnmálamanna sé mun
verra ástand en það sem fylgir hálf-
beisluðum markaðsöflum enda er
helsti galli bókarinnar sá að í henni
predikar Steingrímur yfir söfnuðin-
um á vinstri vængnum en virðist
ekki ætla sér að snúa þeim sem efast
um boðskapinn.
Steingrími tekst vel upp þegar
hann ræðir um einkavæðingu í geir-
um sem munu ávallt, eðli málsins
samkvæmt, vera fákeppnismarkað-
ir hér á landi.
Umhverfismálin eru Steingrími
hugleikin og gerir hann þeim ítar-
leg skil. Sá kafli er líklegast þarft
innlegg í mikilvæga umræðu. Sér-
staklega er ánægjulegt að skrif Stein-
gríms eru laus við þann tilfinninga-
hita og þjóðernishyggju sem vill oft
einkenna umræðu um umhverfis-
mál hér á landi.
Steingrímur eyðir töluverðu
púðri í utanríkismálin. Kaflinn um
Evrópumál ætti að vekja athygli.
Varla verður séð af lestri hans að
hægt sé að mynda vinstristjórn um
Evrópuaðild hér á landi. Hinsvegar
rima rök Steingríms gegn aðild að
Evrópusambandinu vel við mál-
flutning þeirra íhaldsmanna sem
eru andvígir aðild.
Töluverður galli er á bók Stein-
gríms. Hann vísar ekki í heimildir
en sumar af fullyrðingum hans eru
þess eðlis að gagnlegt væri fyrir les-
endur að vita hvaðan þær eru fengn-
ar. Steingrímur sannar með þessari
bók að hann er einn öflugasti stjórn-
málamaður landsins og magnaður
talsmaður þeirrar stjórnmálastefnu
sem hann aðhyllist.
Örn Arnarson
Þarft innlegg
sem allir ættu að
taka afstöðu til
Gera hefði þurft
skýrari grein JWÐÖLL
fyrlr rannsóknar- ”
vinnu
Við öll - íslenskt velferðar-
samfélag á timamótum
Steingrímur J. Sigfússon
Bækur ★★*
Steingrímur sannar með
þessari bók aó hann er
einn öflugasti stjórnmála-
maður landsins og magn-
aður talsmaður þeirrar
stjórnmálastefnu sem
hann aðhyllist.