Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1999, Blaðsíða 25

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1999, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85/FYLGIRIT 38 25 Hvað er til ráða? 1. Ekki leikur vafi á að öll geðdeyfðarlyf sem nú eru á markaði hérlendis eru gagnleg og draga úr eða eyða sjúkdómseinkennum og bæta heilsutengd lífsgæði sjúklinganna. Það er góð- ur kostur fyrir sjúklingana að hægt sé að velja mismunandi lyf eftir því hver verka best í hverju einstöku tilviki og hver þolast best. Hins vegar er óljóst hvaða áhrif lyfin hafa haft á lýð- heilsu (public health) og hvort algengi þung- lyndis- og kvíðaraskana hafi minnkað eins og hugsast gæti miðað við hina stórauknu notkun geðdeyfðarlyfja. Því er nauðsynlegt að láta gera eftirtaldar rannsóknir: • Faraldsfræðilega skimleit hjá úrtaki fólks úr þjóðskrá að þunglyndis- og kvíðaröskunum sambærilega við rannsókn sem gerð var 1984. • Rannsókn á ástæðum þeim sem læknar hafa fyrir ávísunum á geðdeyfðarlyf. • Rannsókn á hvers vegna sjúklingar telja sig fá geðdeyfðarlyf. • Rannsókn á heilsutengdum lífsgæðum sjúk- linga sem leita til heilsugæslunnar og fá ávísun á geðdeyfðarlyf í upphafi meðferðar og aftur eftir þrjá mánuði og kanna þá um leið hvort farið hafi verið að fyrirmælum læknis um notkun lyfjanna. Þegar niðurstöður eru fengnar úr þessum rannsóknum verður hægt að taka afstöðu til gagnsemi lyfjanna í víðara samhengi og hversu vel þeim fjármunum sem fara til lyfjakaupa sé varið. 2. Fræða þarf fólk um einkenni þunglyndis- raskana og meðferðarmöguleika, sérstaklega ungt fólk sem ef til fær enn ónóga meðferð þrátt fyrir stóraukna notkun geðdeyfðarlyfja. Einnig þarf að fræða lækna betur um greining- arskilmerki þunglyndisraskana og annarra geð- raskana og meðferð þeirra. 3. Þegar er vitað að mikið vantar á að með- ferðarheldnin sé fullkomin og liggja til þess ýmsar ástæður. Því er æskilegt að sjúklingarnir fái minna en mánaðarskammt í fyrsta sinn sem þeir fá hvert lyf, til dæmis viku eða 10 daga skammt. Á hinn bóginn er óvíst hvort reglan um að ekki megi ávísa nema 30 daga skammti í einu skipti máli, þegar sýnt er að lyf þolist og geri gagn. 4. Nauðsynlegt er að koma á samráði geð- lækna og heilsugæslulækna til að setja fram leiðbeiningar um hvaða meðferð skuli beitt við þunglyndis- og kvíðaröskunum, hvað lyf skuli valin, hvers vegna og í hvaða skömmtum eigi að gefa þau. Sérstaklega þarf að gera læknum ljóst hvað mismunandi lyf með sömu eða svipaða verkun kosta og jafnframt að athuga möguleika á hvatningu til að velja ódýrustu lyfin ef þau gera sama gagn. 5. Nauðsynlegt er að kynning á nýjum með- ferðarformum fari fram fyrir lækna og leika á vegum landlæknis en ekki eingöngu á vegum lyfjaframleiðenda. í þessu sambandi er vert að benda á að það er nokkurt áhyggjuefni hversu mikið ýmis viðhaldsmenntun og nauðsynlegt ráðstefnuhald lækna og annarra heilbrigðis- starfsmanna eru orðin háð fjárframlögum lyfja- fyrirtækja.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.