Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 9
einnig myndræn: mynd nútíma-
manns, lífs hans og guða, brotin í
mörgum speglum til cinnar nýrrar
heildar.
Eftir þessi ljóð virðast nýjar leiðir
opnar í allar áttir, ný útsjón blasa
við úr nýjum áfanga. Hér hafði Steini
loks tekizt að hnita sér form við hæfi,
nú mátti vænta nýrra stórfenglegra
skáldverka í hinum nýja stíl. Hafði
draumurinn rætzt — eða hvað? Svo
fór þó ekki. Um langt skeið var Steinn
þögull, fá eða engin ný ljóð birtust,
og sumir fóru að flíka þeirri kenn-
ingu að skáldferill hans væri á enda.
A síðustu árum tók þó Steinn að
birta ný ljóð, og enn virtust þáttaskil
í sögu hans. Þessi ljóð voru órímuð,
skýr, afdráttarlaus og auðskilin og
minnntu að ýmsu á eldri ljóð hans.
Nú virtist hann hafa kjörið sér hlut,
eiga ákveðinn boðskap að bera. (sbr.
t. d. Formáli á jörðu, Nýtt Helgafell,
4, 1956.) Var enn tíðinda von af
skáldi?
Dauði hans galt svarið við þeirri
spurningu.
Með þessum fátæklegu athugasemd-
um hefur tímaritið Dagskrá viljað
minnast Steins Steinars, láts hans í
vor og fimmtugsafmælis hans í haust.
Steinn lézt á miðri ævi. Vinir hans
og Ijóða hans harma hann, en ís-
lenzkri Ijóðlist er mestur skaði að frá-
falli hans langt um aldur fram.
DAGSKRÁ
7