Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 37
á vatnið . . en að drepa?
hálfan heim meira, hvort vœri það ekki sama?
og að fleiri lausum hölum yrði boðið?
upp í dans?
þú fœrð cnn að ganga um þótt þú starir freðnum augum. öskur þín hafa
fœðst í myrkri dýpri augna þinna. í svip liorfa þau í sortann og lmfna af
ótta. hvers vegna, að margra undrun, þú málar þér ekki syhursteypta braut
með pensli þínum og kastar þér á enda hennar til að sleikja þig fram í lífið
kemur kannski til af því að þú fannst einhvem tima ský flœða um þig og
skapa með þér tilfinningu um aðvífandi dag?
móðir þín óttast augu þín, en hún mun ekki hringja á hœlið af því þú hefst
ekki við í stofunni þegar þingmenn koma i heimsókn. hún liefur valið sína
leið, fremur liðleg kona með langan liáls, og hlykkjað sig fram meðal borgar-
innar. fólkið hefur hrópað á Ijós og rúmbur, en móður þinni voru af guði
gefin augu til að sjá sér veg upp á liáa palla; oft glöð i höllinni, við bumbu-
slög og valdhorn. blikið seytlaði latt yfir salinn, og vörin lendin og brjóstið
hófu dulúðg Ijóð á flug. nú hefur lífið komið með nýjan mann og nýtt hús
til ykkar.
óóó, ekki koma, hrollur, í nýja húsið! sagði móðir þín áðan og starði á þig.
hún var hrœdd því hún sá að þú starðir. hún grœtur í keng fyrir aftan þig,
en þái starir á borgina.
óó! að stara! dóttir! sál. blóð. œttbogi. erfðir. ééég? hitt og þetta. sál. andi.
blóð. að vera einn! að fara ekki út! að brosa eklci! að vilja ekki gesti. að
vilja ekki jólaljós og söng. dóttir! hugsa! hugsa mikið! bœkur! þykkar bœkur.
sálfrœði. pappír. sálsýkisfrœði! dóttir! ééég? hann! lystin ekki góð. órói. augu!.
hringurinn sekkur ekki eins vel í hold hans og einu sinni, hjá prestinum!
hringurinn!.
óóó! ekki koma, hrollur!
það var hann scm veitti þér skjól. þii sérð móður þína ganga yfir stofu-
þröskuldinn. fyrir hádegi málaði hám sig, en ásjóna hennar er hrœdd því stríð
kom. angist kom og fólk sagði ó. hám skalf einu sinni útá götu í rigningu og
flautur blístruðu. ó mamma! hugsaðir þái, en þá var hún með poka á bak-
inu og þráði eitthvað gott af því striðið var Ijótt. þegar hám kom eitt sinn
heim sveitt í fœtur stundir þú: erum við ekki menn?!
óskir þrár hlýja speglar bros. háin fór einu sinni út um kvöld að leita, drekka
DAGSKRÁ 35