Félagsbréf - 01.07.1957, Side 31
FELAGSBREF
29
bar hann á háhesti yfir sjávarlón og rásir, hélt hann þéttings-
fast í hönd hans. Þegar inn að Tanga kom, sagði pabbi:
Nú skaltu hlaupa heim.
Má ég ekki fylgja þér inn á Flatir? spurði Hvatur.
Jú, það var auðsótt, og loks sagði Hvatur:
Pabbi, áttu korn?
Korn ?
Já, korn — fræ?
Nei, sagði pabbi. Það á enginn fræ í Stóru-Vík. Þar eru allir
hættir að hugsa um fræ á vorin, þar er bara hugsað um peninga.
Eftir dálitla þögn hélt pabbi hans áfram:
En manstu, vinur, hverju pabbi var búinn að lofa þér?
Nei.
Kolalóð, manstu ekki?
Jú.
Eftir einn eða tvo daga kem ég með hana, sagði hann. Ég
er búinn að fá teininn.
Hvatur þagði stundarkorn, svo sagði hann:
Er hægt að kaupa fræ?
Já, auðvitað.
Hvar?
Inni í Reykjavík.
Ekki í Keflavík?
Jú, líka í Keflavík. Það verða tíu önglar á lóðinni. Þú leggur
hana um fjöru og vitjar svo um á næsta útfalli.
Já.
Heldurðu að afi fari ekki í maðkafjöru með þér?
Jú-hú. Heyrðu. Þegar sauðburðurinn er búinn, ætlar afi inn
í Keflavík.
Hvað að gera?
Kaupa.
Þeir gengu þöglir drjúgan spöl.
Það er bezt að fara sem lengst með lóðina, sagði pabbi, þú
reynir að fara á liggjandanum.
Já ... hvað kostar fræ?