Félagsbréf - 01.07.1957, Side 64
32
FELAGSBREF
maður, berst gegn ábyrgðarlausum öflum í sjálfum sér, sem á leik-
sviðinu birtast í sjálfstæðri persónu í livert skipti, sem þessi öfl liafa
áhrif á liann.
„Den lange bryllaupsreisa“ fjallar um gjaldþrot beimsins eftir síð-
ustu beimsstyrjöld og óttann við nýja styrjöld. Persónur leiksins bera
ekki sérnöfn. Þær eru allar táknrænir fulltrúar fyrir hlutskipti sitt
í samfélagi mannanna. Hörmungar og þjáningar mannkynsins ber
fyrir augu. En líka „lamb Guðs, sem ber syndir lieimsins“. — Karl-
maðurinn, ein aðalpersónan, má sín lítils í baráttu sinni gagnvart
hinum komanda, lionum, sem táknar stríðið, bin eyðileggjandi öfl.
Hið nýja stríð virðist óumflýjanlegt. — Þó er það konan, sem með
sínum mikla kærleika gefur fyrirbeit um framtíðina. Kærleikur lienn-
ar veitir líka manninum liugrekki, og leikritið endar á þeirri boðuðu
trú, að lífið muni sigra, þó að við fyrst verðum að brjótast gegnum
Ragnarök. —
I úrvali af ljóðum 0rjasæters, sem kom út fyrir ellefu árum, þeg-
ar skáldið varð sextugt, og ber titilinn „Yiljen og lagnaden“ eftir
aðalmótívi skáldskapar lians, skrifar Sigrid Undset í formála, að
„grunntónninn í skáldskap Tore 0rjasæters sé bjartsýni, svo djúp
og óþrjótanleg, að hún virðist oftast þyngri og dekkri á lit en
það, sem venjulegt fólk kallar bölsýni“. — Það er enginn léttleiki,
engin fljótfærni í lífstrú lians. — 1 kvæði til Olavs Duun, mesta norska
sagnaskálds þessarar aldar við lilið Hamsuns og Undsets, segir 0rja-
sæter í þróttmikilli viðurkenningu:
„Det norske fra Namdalen er noko anna
enn berre innhole ord
som liljar seg fram med hogmals-læte
og set sine sylvrev-spor“.
Eintómt orðskrúð, liávaðafullt tal án tilgangs, er Orjasæter við-
bjóður. Þess vegna liættir honum aldrei við að prédika trú sína þannig,
að við trúum lionum ekki. Hann liefur til fulls áunnið sér traust
lesendanna. — Sama er að segja um Tarjei Vesaas, sem við hlið 0rja-
sæters er ef til vill sterkasta og jákvæðasta röddin í baráttunni fyrir
lífið og mannkynið af öllum norskum skáldum, sem nú eru uppi-
Báðir eru þeir norskir sveitamenn, en ekki síður lieimsborgarar, sem