Félagsbréf - 01.07.1957, Qupperneq 108
106
FÉLAGSBRÉP
fróðlegustu til kynna, og saknaði ég þess oft, að þættirnir voru
ekki lengri og ýtarlegri. Við kynnumst þarna hinum margvís-
legustu örlögum og undrumst seiglu og þol þessa fólks, en erum
okkur þess þó fyllilega meðvitandi að slík og stundum enn þung-
bærari hefur verið ævi forfeðra okkar og mæðra í alda-
raðir. En fáum við ekki nokkra skýringu á þessu þreki, og raunar
öllu lífi þjóðar okkar á umliðnum öldum, í orðum gömlu kon-
unnar, sem mestallan starfsdag sinn hefur unnið meðal sjúkra,
þar af rúman aldarfjórðung meðal holdsveikra. Hún segir: „Við
sem heilbrigð erum, undrumst alltaf þrek þeirra, sem stríða við
sjúkdóma. Þetta stafar af því, að við vitum alls ekki, eða get-
um ekki gert okkur gi’ein fyrir því, yfir hve miklu þreki mann-
eskjan býr í raun og veru. Manneskjan býr yfir dásamlegum
aðlögunarhæfileikum, ef ég má orða það þannig. Ég á við það,
að það er alveg víst, að við öll, þú og ég, eins og allir aðrir,
þolum miklu meiri hörmungar en okkur órar fyrir meðan ekkert
eða sárafátt blæs á móti.---------Ég stóð hvað éftir annað undr-
andi yfir þeirri dásamlegu sálarró, sem holdsveikissjúklingarnir
bjuggu yfir. Kaunum slegnir voru þeir glaðir, gerðu að gamni
sínu, gerðu sér að vísu grein fyrir því, að þeir hefðu orðið fyrir
þungbærum örlögum, en voru þess fullvissir, að þau yrðu ekki
umflúin og því yrði að gera úr hverjum björtum degi eins skín-
andi líf og unnt væri.------------Þeir dæmdu voru alltaf sterk-
astir“.
Ýmis atriði úr þessari bók munu verða lesendum minnisstæð.
Nefni ég þar til píslargöngu Steinunnar Þórarinsdóttur, fár-
sjúkrar, litla drenginn, sem sendur er í annað hérað til að vinna
upp í kaupið, sem presturinn, húsbóndi hans, gat ekki goldið
kaupamanni sínum, og svo mætti fleira telja. Frágangur bók-
arinnar er góður, ef undan er skilinn prófarkalestur, sem er
afleitur.
Steinarnir tala.
Það vekur jafnan nokkra athygli, þegar Þórbergur Þórðarson
sendir frá sér nýja bók, og er slíkt sízt að furða, svo mjög sem
hann hefur komið við sögu íslenzkra bókmennta síðustu áratugi.