Þjóðlíf - 01.12.1987, Síða 22

Þjóðlíf - 01.12.1987, Síða 22
INNLENT UÓSMYNDASAFNIÐ • Frá 1. maí göngu Kommúnistaflokksins rétt eftir 1930. sem „dauöinn og læknarnir búa“. Pað reyndist fleira að en kransæðastíflan, og því beið ég eitt ár eftir uppskurði og tíminn leið. Þetta er forsaga þess að ég ákvað að setjast að skriftum. Minnið, sem fyrr á árum stóðst berklana, hélt enn velli og minningarnar hópuðust að. í framhaldi af lífsstarfinu, ævi- ferlinum, hófst ég handa um að skrifa ævi- söguna. Ekki var það áhlaupaverk og ólíkt vinnu með haka og reku að því leyti að önnur voru verkefnin og handtökin, en skriftir eru vinna. Að sjálfsögðu skorti mig flest sem lærðir menn hafa lykil að, nema hvað að ég hafði þó lesið bækur og það varð mér til framdráttar, ég hafði kynnst rithöfundum í verkum þeirra og aflað mér nokkurs lær- dóms á málið auk frásagnarhefða minna samtíðar- og samverkamanna. Að skrifa bækur án kunnáttu hafði lengi blundað í hugarfylgsnunum og nú dró ég fram alit það sem gat orðið mér að ævisögu- efni. Minni þakkaði ég föður mínum sem kunni bækur og lausavísur utanbókar, og ömmu minni, móður hans sem gat þulið upp úr sér stólræður þegar hún kom úr kirkju, orðrétt. En þrátt fyrir gott minni þá var það aldrei óskeikult og því tíndi ég allt til sem til var af skrifuðum orðum allt frá því að ég, tólf ára tók til við að skrifa minnisbækur á um- búðapappír með illa yddum blýant. Þetta var ólæsilegt öðrum en þeim sem hafði geymt krotið af eðlishvöt og haldið upp á þetta ásamt samanbörðum bögum allt frá æsku- árunum. Þama fólust frásagnir af hálf- gleymdu lífshlaupi fram um fermingu og varð mér næstum að gullum sem fyrrum voru geymd í handraðanum.“ Hvernig gekk svo að fá bækumar útgefn- ar? „Það gekk hægt fyrir sig með fyrstu bók- ina, Fátœkt fólk. Eg skrifaði hana á árinu 1973 og lét Mál og menningu fá handritið. Ekkert gerðist, ég vissi að handritið lá kyrfi- lega í hillu, umbúið með krossbandi. Ekki þýddi að mögla og því tók ég þann kostinn að þegja það, kannski í hel. Á þeim árum lét ég þó aldrei skriftir niður falla og skrifaði tvær skáldsögur, enda orðinn svo til vonlaus um að Fátækt fólk sæi nokkru sinni dagsins ljós sem bók. En þá varð voninni til lífs að nýr maður kom að útgáfufyrirtækinu og tók handritið fram úr hillu. Bókin kom svo út árið 1976 og fékk svo góða dóma og seldist það vel að það varð að samkomulagi við útgefandann að næsta bók, Baráttan um brauðið, lægi fyrir í handriti strax árið á eftir og það tókst. Báðar þessar bækur fengu mjög góðar viðtökur hjá ritdómurum og voru nefndar af íslands hálfu til samkeppni um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, næstu tvö árin. Eftir þessi tíðindi sem lögðust mér hóflega að hjarta og gerðu mér margan glaðan dag, tók ég til við þriðju ævisögubókina, Fyrir sunnan. Hún kom út á jólamarkað 1979 og seldist upp eins og hinar tvær.“ Þú ert enn að skrifa, hvað ertu að fást við þessa dagana? „Nú hef ég setið ár eftir ár við að safna efni í ættarskrár foreldra minna. Loks liggur það handrit á borðinu og þar með loforð útgef- anda. Bókin á að heita Sjómenn og sauða- bændur. Jafnframt ættar- og niðjaskrám skrifaði ég allmikið efni sem mér barst í hendur um líf þess fólks sem um er skrifað og á er minnst. Einnig get ég nefnt að á þessum haust- dögum var ég að enda við að skrifa grein um sögu verkamannafélagsins Dagsbrúnar sem að mestu er byggð á ritgerð Eðvarðs Sig- urðssonar og í minningu hans og þeirra manna sem stofnuðu félagið og héldu uppi verkalýðshreyfingunni allt í gegn og gerðu það og hreyfinguna volduga og sterka. Þessi grein mín kemur í tímaritinu Rétti, tveimur heftum og vísa ég til hennar. • Adolf Pedersen 22

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.