Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 42

Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 42
LISTIR • Belgísku leikararnir Lut Mortelmans, Willem Carpentier og Arthur Semay í Lúkasi. Briissels Kamer Toneel er í hjarta Brussel skammt frá Sablon torginu sem þekkt er fyrir forngripaverslanir og vikulegan markað með sama varning. Leikhúsið er í gamalli húsaröð í skugga kapellu hinnar heilögu jómfrúar. Það tekur um fimmtíu manns í sæti og salur- inn er lítið stærri en stofur góðborgara á Arnarnesinu, þó ekki sé vítt til veggja eða hátt til lofts. Gamlir loftbitar og naktir múr- steinsveggir skapa stemmningu sem er ís- lenskum leikhúsgesti framandi. Brussels Kamer Toneel er gott leikhús. UPPFÆRSLAN. Leikhús í Belgíu er „inn- flutningsleikhús“ segja menn og eiga þá við, að helst eru tekin þar til sýninga verk sem hlotið hafa viðurkenningu í London, París eða New York. Fólki þykir snobbað fyrir list frá þessum háborgum menningar og lista á kostnað listsköpunar heima fyrir. í Belgíu hafa tveir eða þrír höfundar hlotið viður- kenningu og skrifa reglulega fyrir leikhús. Það vekur öfund Belganna að heyra að á íslandi eru fimm til sex leikritahöfundar sem eiga verk nokkuð reglulega á sviði. Um Lúkas segja menn að leikritið hefði eins vel getað verið skrifað í Belgíu. Pema þess, andlegt ofbeldi og kúgun, höfðar til margra alda baráttu flæmingjanna fyrir tungu sinni og menningu. Sviðsetningin er ekki hefðbundin, leikið er eftir endilöngu leikhúsinu og leikarar og áhorfendur því í návígi. Sérhver þjóð hefur átt og á sína „Lúkasa“ og skilningur þeirra á umgjörð kúgarans er misjöfn. Þar sem Danir sjá lög- reglu og her skynja Belgar ofurvald kirkj- unnar yfir daglegu lífi fólks. Þeirra Lúkas er kirkjunnar þjónn. Sviðið er einfalt og hvítir litir ráðandi, mest áberandi leikmuna er ein- falt krossmark uppi á vegg og langt borð sem minnir á altari. Þýðandi og leikstjóri verksins, Anton Segers, álítur Lúkas frábært leikhúsverk. Hann segir að leikrit af þessu tagi verði ekki til nema með þjóðum sem hafa háð baráttu fyrir tilveru sinni á einhvern hátt. Fólk sem býr við þær aðstæður hefur meira að segja en aðrir. Lítil málsamfélög og minnihluta hópar eiga að vinna saman til að halda sínu gagn- vart stórþjóðunum. Hann er ekki í nokkrum vafa um að eftirleiðis muni Belgar beina athygli sinni að íslenskri list. Brussels Kamer Toneel hefur þegar lagt drög að því að fá fleiri íslensk verk til lestrar. íslendingar eru makalaus þjóð og við getum margt af ykkur lært, var niðurstaða leikstjórans. LANDKYNNING? íslendingar hafa stund- að flest betur en að koma menningu sinni á framfæri við aðrar þjóðir, enda er það aug- Ijóslega ekki auðvelt verk. í tengslum við sýninguna hélt leikhúsið blaðamannafund í samvinnu við íslenska sendiráðið í Brússel. Af því sem þar fór fram mátti ráða að menning af ýmsu tagi er tamara umræðuefni en ullar- treflar og niðursoðin síld. Það vekur þá spurningu hvort leiðin að mörkuðum með afurðir okkar sé kannski greiðari í gegnum menningarsamskipti en vörusýningar. • Kristófer Már Krístinsson/Briissel ÞJÓÐLÍFSTÖLUR Fjöldi sveitabæja sem ná illa eða alls ekki sjónvarpssendingum: 80. Áætlaðar vaxtagreiðslur af löngum erlendum lánum á næsta ári: 6.5 milljarðar. Heildar birkiskóglendi á íslandi miðað við landið allt: 1%. Áætlaður fjöldi ónýtra bíla sem afskráðir verða á næsta ári: 10.500. Hlutur kvenna í stjórnum og ráðum 15 aðildarfélaga VSÍ, árið 1986: 7%. Markaðsverð 3ja herbergja meðalstórra íbúða í Reykjavík nóv/des 1987 :3.5-4.5 miljónir. Algengasta útborgun við kaup 3ja herbergja íbúða: 100%. Áætlaður heildarinnflutningur á bjór til landsins á ári(eftir Iöglegum Ieiðum): 800.000 lítrar. Fjöldi ökumanna, skv. skoðanakönnun, sem nota bílbelti að jafnaði: 60%. Nautgripir í Reykjavík: 14. Samtals hlutafé í nýja fyrirtækinu sem yfirtók rekstur Álafoss og Iðnaðardeildar SÍS: 700 miljónir. Hækkun lánskjaravísitölu okt/nóv.: 2.44% Verðbólga á heilu ári miðað við þessa hækkun: 33.6% Hækkun byggingarvísitölu s.l. 12 mánuði: 20.6% Heimildir: Alþingistíðindi. Hagtíðindi. Frumvarp lánsfjárlaga. Jafnréttisráð. Umferðarráð. 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.