Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 52

Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 52
TÆKNI & VÍSINDI Tafla I. Helstu líftæknilyf í þróun Áætlaður markaður Kfni Notkun í Bandaríkjunum, millj. dollara Atrial natriuretic factor Nýmaskolun 48-49 GM-CSF Krabbameinsmeöhöndlun og 125 beinmcrgsígraiðslur. Gegn eyöni 2U0 G-CSF Krabbameinsmcöhöndlun og 125 beinmergsígræöslur. Gegn hvítblæöi 25 M-CSF (CSF-I) Fjölgar og örvar átfrumur 50-150 Epidermal growth factors örvar sáragróun 150 Erythropoietin Gegn blóðleysi almennt 165 og sérstaklega hjá nýrnasjúklingum 160 Storkuþáttur VIII Vantar hjá blæöurum 155 Frjósemishormón Gegn ófrjósemi 65 Vaxtarhormón Gen dvergvexti í bömum 300 Alpha-interferon Gegn krabbameini og veirusýkingum 100-200 Beta-interferon Gegn krabbameini og veirusýkingum 20-30 Gamma-interferon Gegn krabbameini og gigt 45-60 Interleukin-2 Gegn krabbameini og veirusýkingum 200-500 Nasaspray fyrir lítil prótein Insulin pro-insulin 200 Lipocortin Bælir sýkingar 50 Lung surfactant örvar öndun hjá fyrirburum 55 Einstofna mótefni Lyfjamcöferö gcgn krabbamcini. Meðferö gegn blóðsýkingum af völdum gram-neikvæöra baktería 300-KXK) Superoxide dismutase Tissue plasmiogen Gegn hjartaslagi o.fl. 200-300 activator •’ ' Leysir upp blóötappa 400-800 Tumor necrosis factor Gegn krabbameini 50 „Náttúrulyfin" eru flest algerlega ný lyf, vegna þess aö nánast var útilokað aö fram- leiða þau í stórum stíl áður en erfðatæknin kom til sögunnar. Helstu náttúrulyfin eru sýnd í Töflu I.'í þessum hópi eru efni sem talin eru vera hluti af náttúrulegu vamar- kerfi líkamans gegn veirusýkingum, krabba- meini og fleiri sjúkdómum, sem hingað til hefur reynst erfitt að lækna. Væntingamar eru því miklar, og þó aðeins sum þessara efna verði nothæf mun afraksturinn samt nema milljörðum dollara á næstu árum. Spár um raunverulegar markaðsstærðir í þessu sambandi eru enn mjög á reiki, en ljóst er þó að markaðurinn er mjög stór. Þetta er í raun meginástæðan fýrir hinni miklu trú manna á framtíð líftækninnar og það sem heldur lífinu í flestum líftæknifyrirtækjum, því enn eru frekar fá efni komin á markað. LÍFTÆKNIBRANSINN varð vissulega fyrir nokkru áfalli á dögunum þegar bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) hafnaði að heimila al- menna sölu á tPA (tissue Plasminogen Activator) frá erfðatæknifyrirtækinu Genentech. Pessi neitun kom sér illa fýrir Genentech, en nú hefur lyfjaeftirlitið heimil- að sölu á þessu lyfí. í sumum löndum hefur þegar verið leyfð sala nokkurra þessara efna. Þar má nefna mannainsulín (áður var notað svínainsulín, sem er örlítið öðru vísi), vaxtarhormón og interferon. Einnig einræktuð bóluefni, svo sem gegn hepatitis B. tPA hefur einna stærstan áætlaðan markað þessara „náttúru- lyfja“ (500-1000 milljónir dollara) og er dæmigert fyrir þennan hóp efna. tPA er sér- • Dauði blóðtappa. tPA leysir upp gula pró- teinið, fibrin. Fibrin er hleypiefnið sem heldur saman storknuðu blóði í blóðtöppum, sem hér hefur myndast Á efstu myndinni hefur örlítill dropi af tPA gert fibrinið hart og stökkt, en það er að öðru jöfnu mjúkt. Eftir 30—40 mfnútur byrjar fibrinið að hrökkva í sundur (miðmynd). Innan eins til tveggja kiukkustunda er fibrinið að fullu molnað og rauð blóðkornin frjáls ferða sinna. virkt, próteinkljúfandi ensím, sem myndað er í vissum frumum líkamans. Hlutverk þess er að breyta öðru próteinkljúfandi ensími úr óvirku formi (kallað plasminogen) í virkt form (plasmin). Plasmínið klýfur síðan pró- teinið fíbrín, en það er hleypiefnið sem held- ur saman storknuðu blóði, eins og t.d. blóð- töppum í æðum. Notkun tPA (og reyndar fleiri efna með svipaða verkun) er talin verða þannig, að það verði gefið beint í æð strax eftir að fólk hefur fengið kransæðastíflu eða aðra blóðtappa. Þá leysist blóðtappinn mjög fljótt upp og varanlegar vefjaskemmdir verða mun minni en ella. Auk þeirra efna sem talin eru upp í Töflu I er fjöldi annara efna á rannsóknarstigi. Þau verða vafalaust þróuð sem lyf þegar menn þekkja betur verkun þeirra. Því eru menn vongóðir um, að á þennan hátt muni takast að lækna tlestar tegundir krabbameina, hjartasjúkdóma, eyðni, heila- og mænusigg, Alzheimero.fi. Kostnaðurinn við rannsóknir, þróun og markaðssetningu á þessum efnum er gífur- legur, en þegar krónurnar fara loks að skila sér í kassann (eða jafnvel fyrr) verður þess- um sömu aðferðum beitt á mörgum öðrum sviðum. Þar á meðal eru dýralækningar, alls kyns ræktun bæði á dýrum og plöntum, alls kyns efnagreiningar, efnaframleiðsla og margt fleira. ÞAÐ ER NANAST samdóma álit þeirra sem til þekkja, að líftæknin boði framfarir í heil- brigðismálum. Aftur á móti vakna margar spurningar um væntanlega þróun. Þar eru efstar á blaði ýmsar siðferðilegar spurningar. Spyrja má hversu langt eigi að ganga í „við- gerðarmálum" og hvort skilningur okkar á heilbrigði breytist. Einnig vaknar sú spurn- ing, hver áhrif það hafi að magna upp al- mennt varnarkerfi líkamans. Að lokum er það svo spurningin, sem aðeins er rædd í hálfum hljóðum og á lokuðum fundum: Fer kostnaðurinn við heilsugæsluna endanlega úr böndunum þegar líftæknin býður upp á bót við öllum meinum? • Jakob Kristjánsson/Örn D. Jónsson 52
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.