Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2012, Blaðsíða 36
4 3.–7. ágúst 2012 Verslunarmannahelgin
Þjóðhátíð í Eyjum
Þ
jóðhátíð í Vestmannaeyjum
er óneitanlega einn sögurík-
asti viðburður verslunar-
mannahelgarinnar. Fróðir
menn segja að langflest börn
komi undir á þessum árstíma enda
ætti engan að undra að fagurgræn-
ar torfur Herjólfsdals og tign hinnar
íslensku sauðkindar kveiki ástarbál í
hjörtum þjóðhátíðargesta.
Það sem helst gefur Þjóðhátíð
sérstöðu á meðal útihátíða á Íslandi
er fjölbreytileiki þeirra sem hátíð-
ina sækja. Í Eyjum er kynslóðabil-
ið brúað; þótt ærslafull ungmenni
fylli dalinn láta rosknari íbúar Vest-
mannaeyja sig sjaldan vanta. Í hin-
um svokölluðu „hvítu tjöldum“ hafa
íbúar Heimaeyjar aðsetur. Þar er sið-
ur að fjölskyldan deili tjaldi og japli
á gómsætum veitingum. Margir hafa
átt eftirminnilegar stundir í þessum
tjaldbúðum heimamanna.
Hátíðinni hefur vaxið fiskur um
hrygg í seinni tíð og nú sækja hana
á annan tug þúsunda gesta á hverju
ári. Því til samanburðar voru aðeins
400 gestir á fyrstu þjóðhátíðinni, árið
1874. Þá héldu eyjaskeggjar upp á
þúsund ára afmæli Íslands. Eyja-
menn höfðu ekki komist til megin-
landsins vegna veðurs og héldu því
hátíð á sínum heimaslóðum. Þjóð-
hátíð í Eyjum hefur verið haldin all-
ar götur síðan og fest rækilega í sessi.
É
g man alveg þegar Þjóðhá-
tíð var bara öskrandi mar-
ínering í vodka og kók,“ segir
Bubbi Morthens þegar hann
er inntur eftir eftirminnilegum at-
vikum á Þjóðhátíð í Eyjum. „Hún
er til dæmis minnisstæð Þjóð-
hátíðin 1976, ef ég man rétt, það
voru bara slagsmál, ríðingar og
fyllerí. En þær hafa eiginlega verið
eftirminnilegastar seinustu fjög-
ur skiptin vegna þess hvað þetta
orðið að glæsilegri tónlistarhátíð,
algjörri tónlistarveislu.“ Bubbi,
sem er hokinn af reynslu þegar
kemur að Þjóðhátíð í Eyjum, seg-
ir áberandi „hvað er mikið minna
um ofsafengna ölvuna núna“.
AC/DC á þjóðhátíð
Uppgangur Þjóðhátíðar er Bubba
afar hjartfólginn. „Ég er farinn að
halda að Þjóðhátíð muni verða
jafnvel bara alþjóðleg útihátíð.
Þú færð ekki betra tónleikasvið en
Dalinn,“ segir Bubbi og sér jafnvel
fyrir sér stórhljómsveit á borð við
U2 á Þjóðhátíð. „AC/DC er auð-
vitað draumurinn samt. Upphafs-
stefið á Highway to Hell í Dalnum,
það væri alveg geggjað.“
Hólmsteinsvísur Bubba
Árið 2010 vakti Bubbi mikla
athygli á Þjóðhátíð er hann söng
svonefndar Hólmsteinsvísur eft-
ir sjálfan sig fyrir mannmergð-
ina. Fjölluðu þær um Hannes
Hólmstein Gissurarson, stjórn-
málafræðiprófessor við Háskóla
Íslands. „Ég held ég hafi aldrei
fengið eins mikið af vondum sms-
skilaboðum. Ég fékk fjölmörg
skilaboð þar sem mér var hótað og
menn bölvuðu mér,“ segir Bubbi
og bætir við: „En Hólmsteinn er
flottur. Hann er með langbestu
fluguveiðistöngina í bransan-
um.“ Í vísnasöng Bubba var meðal
annars sungið: „Hólmsteinn fann
upp frjálsan vilja, / fyrstur manna
á landi hér / Aldrei hefur reynt að
hylja, / ást sína á sjálfum sér.“
Límósína eða lyftari
Ljóst er að skipuleggjendur Þjóð-
hátíðar leggja sig í framkróka við
að láta fara vel um stórstjörnur
á borð við Bubba. Til að mynda
sést það á því að Bubbi hefur
stundum mætt í Herjólfsdal á for-
láta límó sínu í boði þjóðhátíðar-
nefndar. Bubbi veltir þó upp þeim
möguleika í samtali við DV að
hægt væri að skipta límósínunni
út fyrir valtara. „Ég býð bara eft-
ir að fá lyftara í þetta. Það væri
rosalega kúl að koma á lyftara í
Dalinn.“
Þjóðhátíð er algjör
tónlistarveisla
Hljómsveitirnar
í dalnum
Þ
að verður mikið
um dýrðir þegar
margir af nafn-
toguðustu tón-
listarmönnum landsins
stíga á stokk í Herjólfs-
dal. Þar má nefna Pál
Óskar Hjálmtýsson,
Bubba Morthens,
Björgvin Halldórsson
og Mugison. Einnig
er mikið um atkvæða-
mikla tónlistarmenn
af yngri kynslóðinni.
Undir þann flokk falla
til að mynda meðlim-
ir rafpoppsveitar-
innar RetRoBot
frá Selfossi sem
sigraði í Músík-
tilraunum 2012
og júróstjörn-
urnar úr Bláum
Ópal.
Síðast en ekki
síst er rétt að til-
taka írsku popp-
goðsögnina,
Ronan Keating,
og rapparana í
Dope DOD sem
eru frá Hollandi.
Ronan Keating
var aðalsöngv-
ari strákabands-
ins Boyzone sem
gerði garðinn
frægan á tíunda áratugnum. Á
dögunum bárust fréttir af því að
Keating væri orðinn einhleypur og
því verður fróðlegt að sjá hvort írska
kyntröllið kemur til með að gefa
dætrum Íslands undir fótinn.
Athygli vekur að allir tónlistar-
mennirnir sem koma fram á Þjóðhá-
tíð í Eyjum eru karlkyns að frátöldum
þremur stúlkum í framlínu hljóm-
sveitarinnar Vicky og fiðluleikar-
ans knáa Unnar Birnu Björnsdóttur
úr Fjallabræðrum. Þess má geta að
Fjallabræður eiga einmitt þjóðhá-
tíðarlag ársins 2012 og heitir það
„Þar sem hjartað slær“.
n Þjóðhátíðin 1976 eftirminnilegust í augum Bubba Morthens n 400 gestir árið 1874