Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2012, Blaðsíða 52
3. ágúst
1914 - Þjóðverjar sögðu Frökk-
um stríð á hendur.
1958 - Kjarnorkuknúni kaf-
báturinn USS Nautilus sigldi
undir Norðurpólinn.
1960 - Níger fékk sjálfstæði
frá Frakklandi.
1969 - Í Húsafellsskógi voru um
tuttugu þúsund manns á Sum-
arhátíðinni, eða um tíu prósent
allra Íslendinga.
Þetta er fjöl-
mennasta úti-
hátíð sem
haldin hefur
verið um versl-
unarmanna-
helgi á Íslandi.
4. ágúst
1907 - Ungmennafélag
Íslands var stofnað og var fyrsti
formaður þess Jóhannes
Jósefsson.
1928 - Ásta
Jóhannesdótt-
ir synti frá Við-
ey til Reykja-
víkur. Sundið tók
tæpar tvær klukku-
stundir og er um fjórir kílómetrar.
1993 - Alríkisdómari dæmdi tvo
lögreglumenn frá Los Angeles í
þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að
hafa brotið á réttindum Rodney
King.
5. ágúst
1874 - Þjóðhátíð hófst á Þingvöll-
um í tilefni af 1000 ára Íslands-
byggð og stóð í fjóra daga.
1943 - Sjö manna áhöfn þýskr-
ar flugvélar komst lífs af er
vél þeirra var skotin niður úti
fyrir Norðurlandi. Bandarísk flugvél
skaut hana niður.
1949 - Knattspyrnufélagið
Þróttur var stofnað í bragga
við Ægissíðu.
1985 - Kertum var fleytt
á Reykjavíkurtjörn til minningar
um 40 ár frá því
að kjarnorku-
sprengju var
varpað var
á Hiros-
hima í Japan 6.
ágúst 1945.
6. ágúst
1933 - Steinn Steinarr skáld og
fjórir aðrir hlutu dóm fyrir að
skera niður hakakrossfána við
hús þýska vararæðismanns-
ins á Siglufirði.
1937 - Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis var stofnað á
stofnfundi.
1974 - Gerald
Ford tók við
emb-
ætti Banda-
ríkjaforseta í
kjölfar afsagn-
ar Nixons.
7. ágúst
1727 - Öræfajökull tók að gjósa.
Mikið öskufall stóð í þrjá daga
svo sá vart mun dags og nætur.
Gosið stóð í eitt ár. Áður gaus
Öræfajökull á sögulegum tíma
árið 1362 og lagði þá Litlahérað í
auðn.
1772 - Útilegumennirnir Fjalla-
Eyvindur Jónsson og Halla
Jónsdóttir voru handteknir
á Sprengisandi og flutt norður
í Mývatnssveit. Skömmu síðar
slapp Eyvindur og tókst honum
fljótlega að frelsa Höllu. Þau lágu
úti í tæpa tvo áratugi.
1945 - Áfengisskömmtun, sem
staðið hafði í fimm ár, var hætt.
36 3.–7. ágúst 2012 Helgarblað
Stórafmæli Dröfn Áslaugsdóttir, 40 ára 3. ágúst
40 ára 6. ágúst
Söngkonan Geri Halliwell sem var þekkt sem
Ginger Spice í Spice Girls.
52 ára 7. ágúst
David Duchovny varð stórstjarna þegar hann
lék Fox Mulder í The X-Files.
51 árs 4. ágúst
Fyrsti þeldökki forseti Bandaríkjanna, Barack
Obama.
Stórafmæli
Viðskiptafræðingur
og fyrrverandi skáti
É
g fæddist á Akureyri
en fluttist síðan til
Reykjavíkur og bjó þar
fyrstu tvö ár ævinnar,“
segir Dröfn. „Þá flutt-
ist ég til Akureyrar og bjó þar
til sex ára aldurs og gekk í
núll-bekk í Lundarskóla,“
segir hún og bætir við hlæj-
andi að hún hafi nú eiginlega
verið í þremur skólum. „Síð-
an flutti ég árið 1979 í Öng-
ulstaðarhrepp og var fyrri
hluta grunnskólagöngunn-
ar í Laugalandsskóla í Eyja-
fjarðarsveit.“ Dröfn flutti
síðan aftur til Akureyrar.
„Ég kláraði síðan grunn-
skólagönguna í Glerárskóla
– lítið meira um það að segja,
þannig lagað!“ Hún starfaði
í Skátafélaginu Klakki á Ak-
ureyri sem barn og ungling-
ur og í Hjálparsveit skáta á
Akureyri í nokkur ár. Hún
var einnig í Tónlistarskólan-
um á Akureyri og lærði þar á
orgel og klarínett frá 12 til 17
ára aldurs.
Lagði stund á viðskipta-
fræðinám
Eftir gagnfræðiskólagöng-
una hélt Dröfn í Verk-
menntaskólann á Akureyri.
Þaðan útskrifaðist hún af
félagsfræðibraut á því herr-
ans ári 1993. Á árunum eft-
ir það vann hún við mörg
mismunandi störf, m eðal
annars sem dagmamma og
sem starfsmaður Búnaðar-
bankans. Einnig stundaði
hún nám í viðskiptafræði
við HA veturinn 1995–1996.
„Síðan hóf ég aftur nám í
Háskólanum á Akureyri og
kláraði viðskiptafræði þar,“
segir hún. Lokaverkefni
Drafnar frá háskólanum árið
2002 fjallar um frammistöð-
ustjórnun og nýtingu
mannauðs.
Starfar hjá þekkingar-
fyrirtæki
„Svo fór ég að vinna sem
skrifstofustjóri á bifreiða-
verkstæði sem heitir Trukk-
urinn frá 2002–2006,“ segir
hún. Dröfn vann einnig hjá
Einingaverksmiðjunni Borg
á árunum 2006–2007. Hún
hóf störf hjá þekkingarfyr-
irtækinu KPMG á Akureyri
árið 2007 og starfar þar enn.
Hún á þrjár dætur með eig-
inmanni sínum, Sveinbirni
Sveinbjörnssyni, sem hún
kynntist árið 1990. „Við höf-
um búið saman hérna á Ak-
ureyri síðan þá.“
Fjölskylda
Drafnar
n Foreldrar:
Hulda Harðardóttir
f. 17.08.1951
Áslaugur Haddsson
f. 06.11.1952
n Systkini:
Haddur Áslaugsson
f. 10.06.1975
Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir
f. 06.01.1977
n Maki:
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
f. 27.06.1971
n Börn:
Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir
f. 16.01.1992
Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir
f. 20.10.1998
Áslaug Dröfn Sveinbjörnsdóttir
f. 07.09.2004
Með háskólapróf í bleiuskiptingum
Dofri Örn Guðlaugsson uppeldisfræðingur, 40 ára 5. ágúst
Þ
ú veist að við sem eig-
um afmæli um versl-
unarmannahelgina
eigum ekkert afmæli
því það er enginn
heima á þessum tíma,“ seg-
ir Dofri Örn hlæjandi þegar
blaðamaður hefur samband
vegna stórafmælis hans. „Ég er
Njarðvíkingur í húð og hár, hef
alltaf verið það og eyddi æsku-
árunum þar. Það var glæsilegt
að búa þar, nálægt sjónum
og hernum og frjálsræðið var
mikið.“
Þegar Dofri Örn var lítill
var herinn ennþá á landinu,
þar sem Keilir er staðsettur í
dag. „Það hafði að sjálfsögðu
góð áhrif á mann að búa í ná-
vígi við herinn og flugvélarnar
og allt sem þeim fylgdi, maður
bar mikla virðingu fyrir þessu
öllu.“ Fyrir tvítugt var hann
svo kominn með einkaflug-
mannspróf.
Lærði uppeldisfræði
í Danmörku
Dofri Örn er hámenntaður og
hefur farið í ýmsa skóla: „Ég
fór í Njarðvíkurskóla í grunn-
skóla, svo fór ég í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og svo fór
ég til Danmerkur í háskóla-
nám í Gentofte Seminarium
þar sem ég lærði uppeldis-
fræði. Danska uppeldisfræðin
er þriggja og hálfs árs nám og
er blanda af því sem á Íslandi
er bæði leikskólakennari og
þroskaþjálfi svo að ég hef
starfsleyfi þroskaþjálfa á Ís-
landi. Eftir að ég kom heim
til Íslands starfaði ég í upp-
eldisgeiranum. Fyrst eftir að
ég kom heim var ég deildar-
stjóri á sérdeild fyrir einhverfa
í Hamraskóla, svo var ég að
vinna hjá Vinnuskóla Reykja-
víkur í mörg ár, bæði sem
fræðslustjóri og svo alls kyns
sérverkefni. Svo breytti ég al-
veg til og varð þjónustustjóri
hjá Securitas, þar sem ég var
með rúmlega 50 manns und-
ir mér og við sáum um gæslu
hjá stærstu staðbundnu
gæslustöðunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Ég sá líka um
fræðslumálin fyrir öryggis-
verðina.“
Skiptir á rúmum á
Stöðvarfirði
Eftir að Dofri hætti hjá Secur-
itas fór hann aftur í skóla. „Ég
fór að læra flugumferðastjórn-
un á Keili og kláraði bóklega
hlutann í vor. Þá er ég kominn
með réttindi til að sækja um að
komast í starfsnám og það tek-
ur um þrjú ár. Nú bíður maður
bara eftir að það verði auglýst
eftir fólki og þá sæki ég um.“ Í
sumar hefur hann dvalið úti á
landi þar sem hann er að gera
alveg nýja hluti. „Nú í sum-
ar rek ég gistiheimili og kaffi-
hús á Stöðvarfirði sem heit-
ir Saxa. Vinur minn fékk þetta
eiginlega upp í hendurnar og
ég er búinn að vera að vinna
hjá honum síðastliðið árið en
hann rekur Hótel Bláfell. Svo
núna er ég að skipta á rúm-
um og svona, þó ég sé þroska-
þjálfari. Ég er með háskólapróf
í því að skipta um bleiur en ég
hef eiginlega ekkert unnið við
það“ segir hann hlæjandi. „Við
erum bara þrjú sem sjáum um
þetta svo við göngum öll bara
í öll verkefni, ég er til dæmis
að skipta á rúmum núna og á
eftir fer ég í eldhúsið og svo að
versla inn.“
Generalprufa fyrir afmæli
Dofri segist ekki ætla að halda
upp á afmælið strax. „Opin-
berlega þá var ætlunin ekki
að koma aftur í bæinn fyrr en
í september, en ég ætla samt
að „læðast“ í bæinn um versl-
unarmannahelgina og tjútta
smá. Það verður bara eins kon-
ar generalprufa fyrir afmælið
sem ég held svo í haust,“ segir
þessi hressi uppeldisfræðing-
ur að lokum.
Dofri Örn „Nú í sumar
rek ég gistiheimili og
kaffihús á Stöðvarfirði.“
Fjölskylda
Dofra
n Foreldrar:
Guðlaugur Borgarsson
f. 23.3. 1932 – d. 14.2. 2010
Katrín Sigurðardóttir
f. 15.7. 1937
n Systkini:
Sigurður Óskar Lárusson
f. 24.4. 1955
Lárus Ingi Guðlaugsson
f. 25.2.1959
Soffía Guðlaugsdóttir
f. 9.7. 1960
Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
f. 4.8. 1962
Sædís Guðlaugsdóttir
f. 24.6. 1963
Magnea Guðlaugsdóttir
f. 5.4. 1969
n Kærasti:
Vilhjálmur Þór
Merkis-
atburðir
Dröfn Áslaugsdóttir
Starfaði í Skátafélaginu Klakki
á Akureyri sem barn.