Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Page 68

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Page 68
60 Fólk U m fátt er meira skrifað í slúður pressunni vestan- hafs en brúðkaup Kim Kardashian og Kanye West. Sagt var frá því fyrir nokkru að þau ætluðu að ganga í hjónaband en miklar vangaveltur hafa verið uppi um hvar brúðkaupið færi fram og hvenær. Nú er því haldið fram að það fari fram um helgina í Flórens á Ítalíu og ekkert verði til sparað. Elskar Ítalíu Samkvæmt heimildum ABC- fréttastofunnar mun athöfnin fara fram í 16. aldar virkinu Belvedere Fort. Gestirnir fóru hins vegar fyrst til Par- ísar þar sem annars konar fögnuður á sér stað fyrir brúðkaupið. Eins kon- ar fyrirbrúðkaupsfagnaður. „Ég elska Flórens, ég elska Ítalíu og ítalskan lífs- stíl,“ sagði Kanye í viðtali við ítalska dagblaðið La Nazione. „Og ég held að dóttir okkar, North, hafi verið getin þar,“ sagði hann einnig. Stjörnur syngja Fjölmörgum er boðið í brúðkaupið, þar á meðal góðvinum parsins, Beyoncé og Jay-Z. Heimildir herma að þau muni taka lagið í veislunni en rukka E!-sjón- varpsstöðina, sem framleiðir raun- veruleikaþætti um fjölskyldu Kim, um dágóðan skilding fyrir ómakið. Heim- ildir Daily Mirror segja að Lana Del Ray muni taka lagið í brúðkaupinu en Kim er mikill aðdáandi hennar. Að sjálf- sögðu munu myndavélar fylgjast með öllu brúðkaupinu og sýnt verður úr því í þættinum. Bruce leiðir Kim að altarinu Fjölskylda Kim verður að sjálfsögðu öll á svæðinu. Móðir hennar, Kris og fósturfaðir, Bruce Jenner, skildu fyrir nokkrum mánuðum. Þau hafa hins vegar sést saman í París ásamt hinum gestunum og virðast ekki láta skilnaðinn hafa áhrif á það að Bruce mæti í brúðkaupið enda mun hann leiða brúðina upp að altarinu. Þetta er í þriðja sinn sem Kim giftir sig og hún því orðin alvön brúðkaupsundirbúningi. Ljóst er að öllu verður tjaldað til í þetta sinn enda parið ekki þekkt fyrir neitt ann- að og öruggt að nóg verður af óvænt- um uppákomum. n viktoria@dv.is Helgarblað 23.–26. maí 2014 Lögsótt vegna happatölunnar Blue Sphere í hart við söngkonuna Taylor Swift F yrirtækið Blue Sphere hefur ákveðið að fara í hart og lög- sækja söngkonuna Taylor Swift. Ástæða lögsóknarinn- ar er sú að fyrirtækið segir Swift nota vörumerki þess í leyfisleysi. Fyrirtækið hefur í yfir 20 ár selt fatnað með merkinu „Lucky 13“, en söngkonan hóf árið 2012 að selja varning þar sem talan 13 er áberandi. Söngkonan Taylor Swift hefur lengi haft þann sið að teikna töluna 13 á handarbakið á sér, en hún seg- ir að það sé happatalan henn- ar. „Í rauninni er það þannig að alltaf þegar talan 13 kemur upp í lífi mínu gerist eitthvað jákvætt,“ sagði Swift eitt sinn í viðtali. Talan er henni greinilega mjög kær því hún birtist til dæmis á einkaþotu söngkonunnar og Twitter-not- andanafni. Eins og áður sagði var Blue Sphere ekki sátt við þetta og seg- ir að Swift sé að stela frá þeim við- skiptavinum þar sem þau eru að stíla inn á sama markhóp. Fyrir- tækið krefst þess að söngkonan hætti að nota merkið á varningi og einnig að hún greiði skaðabætur fyrir sölutap og lögfræðikostnað. n Dró Tom Cruise á kynlífsklúbb Leikkonan Emily Blunt hafði skemmtilega sögu að segja í kvöldþætti Jimmy Kimmel á dögunum. Þar greindi hún frá því að hún hafi dregið Tom Cruise, samleikara sinn úr kvikmyndinni Oblivion, á kynlífsklúbbinn The Box, í Lundúnum.Það atvikað- ist þannig að Blunt ætlaði ásamt eiginmanni sínum, John Krasin- sky, út á lífið til að fagna því að félagi þeirra hjóna, Matt Damon, ætti afmæli. Blunt sendi Cruise tölvupóst sem sagði að honum væri boðið með. „Tom, það er smá breyting, við ætlum að fara á klúbb. Vildi bara láta þig vita, ég veit ekki hvort þér muni finnast þetta eitthvað óþægilegt en þetta er eins konar kynlífsklúbbur,“ skrifaði Blunt og það stóð ekki á svörum hjá Cruise, sem svar- aði að hann myndi koma með en sagði að Blunt yrði að „lofa því að ég fari ekki þaðan einn út,“ sem Blunt stóð víst við. GÆÐAHREINSUN ÞVOTTAHÚS DÚKALEIGA Háleitisbraut 58-60 - Sími 553-1380 Góð þjón sta í 60 ár EFNALAUG ÞVOTTAHÚS SÆKJUM & SENDUMFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Góð þjónusta í 60 ár Taylor Swift Söngkonan elskar töluna 13. Mynd REuTERS Brúðkaup ársins er um helgina n Kim og Kanye gifta sig Stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West ganga í það heilaga um helgina og talið er að brúðkaupið verði á Ítalíu þar sem ekkert verður til sparað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.