Peningamál - 05.11.2014, Qupperneq 39
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
4
•
4
39
RAMMAGREINAR
2010-2013 telst nú 5,4% en taldist áður 6,3%. Minni breytingar
eru á mældum vexti samneyslu og fjármunamyndunar.
Breytingar á ýmsum lykilhlutföllum
Ofangreindar breytingar þjóðhagsreikninga valda ýmsum breyting-
um á mikilvægum hlutföllum sem gjarnan er horft til. Þannig hækkar
fjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu um 1,4 prósentur hvort
heldur horft er til meðaltals síðustu fimm ára eða alls tímabilsins
frá 1997. Einkaneyslan lækkar í hlutfalli af landsframleiðslu um 0,4
prósentur að meðaltali sl. fimm ár en samneyslan um 1,2 prósentur.
Miðað við sl. fimm ár lækkar hlutfall útflutnings af landsframleiðslu
um 2,7 prósentur en hlutfall innflutnings um 3 prósentur að meðal-
tali, aðallega vegna hækkunar landsframleiðslu. Vöru- og þjónustu-
jöfnuður batnar um 1,9 prósentur á árinu 2007 og um 0,3 prósentur
að meðaltali á tímabilinu 2009-2013, aðallega vegna endurmats á
óbeint mældri fjármálaþjónustu. Hlutföll skulda af landsframleiðslu
lækka jafnframt við hækkun á nafnvirði landsframleiðslunnar.
Þær breytingar sem gerðar eru á ráðstöfunaruppgjöri koma
einnig fram í framleiðslu- og tekjuuppgjörum Hagstofunnar. Í fram-
leiðsluuppgjörinu hafa tekjur af þeirri viðbótarstarfsemi sem nú er
tekin með verið færðar með vergum rekstrarhagnaði en laun breyt-
ast lítið. Í framleiðsluuppgjöri þjóðhagsreikninga eru tekjur einyrkja,
t.d. margra bænda, trillusjómanna og iðnaðarmanna færðar með
rekstrarhagnaði. Þetta veldur því að hlutfall launa og launatengdra
gjalda lækkar sem hlutfall af vergum þáttatekjum. Matið á hlutfallinu
á árinu 2007 lækkar úr 72,8% í 67,1% eða um 5,7 prósentur og á
árunum 2008-2012 lækkar hlutfallið um 3,2 prósentur að meðaltali.
Nú er metið að þetta hlutfall hafi verið að meðaltali 58,9% á þessu
tímabili og að það hafi verið 59,8% á árinu 2013 (mynd 4).
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd 4
Hlutfall launa og launatengdra gjalda
af vergum þáttatekjum 1997-2013
%
Nýjar tölur
Eldri tölur
50
55
60
65
70
75
‘13‘11‘09‘07‘05‘03‘01‘99‘97