Þjóðmál - 01.03.2013, Blaðsíða 63
62 Þjóðmál voR 2013
Er ekki eitthvað kunnuglegt við þessa
lýsingu? Og hver var afleiðingin fyrir Svía?
• Viðvarandi fjárlagahalli
• Gengisfellingar
• Verðbólga
Aftur kunnugleg upptalning sem líkist
íslenskum veruleika . Hjá Svíum lauk þessu
tímabili með bankakreppunni árið 1992 .
Svíar voru þegar byrjaðir að takast á við sín
vandamál, jafnvel áður en kreppan skall á,
og hafa haldið áfram síðan .
Fram kom í fyrirlestri dr . Karlssons að
megininntak nýju sænsku leiðarinnar, sem
um hefur náðst almenn pólitísk sátt, er:
1 . Aukin ábyrgð og valfrelsi ein staklinga
samhliða því að afskipti stjórn málamanna af
einstaklingum og atvinnulífi voru minnkuð
2 . Skattar og bætur hafa lækkað, reglu verk
minnk að, opinber fyrirtæki einkavædd og
vel ferðar þjónusta í auknum mæli rekin af
einkaaðilum
3 . Sjálfbærara tryggingakerfi með minni
tekju tengingum
4 . Trúverðug stjórn peningamála með tekju-
afgangi á fjárlögum og verðbólgu markmiði
Eftir sem áður er Svíþjóð norrænt velferðar-
ríki þar sem öllum er tryggð menntun,
heilbrigðisþjónusta og lágmarksframfærsla .
Vinstri stjórnin hefur örugglega ekki Sví-
þjóð í huga þegar talað er um norræna vel-
ferðar stjórn . Skatta- og útgjaldagleðin skilar
engu nema minni velferð til framtíðar, nokkuð
sem aldurhnignir og þreyttir vinstri sinnaðir
stjórnmálaleiðtogar láta sig litlu skipta .
Snúið af leið
Í kosningunum í vor er mikilvægt að styðja við bakið á stjórnmála mönn um
(og flokkum) sem tala máli raunveru legra
breytinga . Lækka verður skatta og fyrst
þá sem helst letja til fjárfestinga og at-
vinnusköpunar:
• Tryggingagjaldið þarf að lækka
• Jaðaráhrif tekjuskatts þarf að minnka
• Fjármagnstekjuskattinn þarf að lækka og
einfalda reglur um arðgreiðslur til eigenda
smærri fyrirtækja
• Auðlegðarskattinn ber að fella niður, enda
stjórnarskrárbrot
• Lækka þarf virðisaukaskattinn, fækka
undanþágum og minnka flækjustigið
En það verður líka að krefjast þess af tals-
mönnum lægri skatta að útskýrt verði með
hverjum hætti komið verði á hallalausum
fjárlögum . Það tekur tíma fyrir atvinnulífið
að taka við sér og skila með því hærri
skattstofnum . Lækkun skatta mun því,
til skamms tíma, skila ríkissjóð minni
tekjum . Og til að mæta því verður að koma
til niðurskurður . Sá niðurskurður verður
óhjákvæmilega að koma niður á millifærslu-
og bótakerfinu samhliða stórfelldum niður-
skurði á öðrum kostnaði .
Eigum við stjórnmálamenn sem þora að
takast á við þær breytingar sem þörf er á til
að fjárfesta megi í farsæld til framtíðar?
V instri stjórnin hefur örugglega ekki Sví þjóð í huga þegar
talað er um norræna vel ferðar-
stjórn . Skatta- og útgjaldagleðin
skilar engu nema minni velferð
til framtíðar, nokkuð sem
aldurhnignir og þreyttir
vinstri sinnaðir stjórnmálaleiðtogar
láta sig litlu skipta .