Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2017, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2017, Qupperneq 40
40 menning Helgarblað 5.–8. maí 2017 Ó ratorrek er ný ljóðabók eft- ir Eirík Örn Norðdahl en undirtitillinn er Ljóð um samfélagsleg málefni. Þarna er til dæmis að finna ljóð um ástandið á Gaza, fátækt, betri heim og hryðjuverk. Það liggur beint við að spyrja Eirík hvort hann vilji skil- greina sig sem pólitískt skáld. „Já og nei,“ segir hann. „Ég vil ekki boða pólitík, en af því að ég er mjög pólitísk mannvera og upp- tekinn af samfélagslegum málefn- um, þá væri sá skáldskapur sem fjallaði ekki um slík málefni ekki minn skáldskapur heldur skáld- skapur einhvers annars. Hinn póli- tíski veruleiki verður að vera með í skáldskap mínum af því hann skiptir mig máli.“ Þú ert harður vinstri maður, er það ekki rétt? „Ég get alveg gengist við því að vera sósíalisti. En ég vil ekki endi- lega vera það í bókunum mínum. Þar hef ég öðrum skyldum að gegna. Í skáldskap sínum þarf höfundur ekki endilega að taka pólitíska af- stöðu en hann á að kanna heim- inn og veruleikann. Skoða hvað það þýðir að vera undirokaður, hvað það merkir að vera kúgari og gera það af heiðarleika. Skáldskapurinn á ekki að vera pólitískur í þeirri merkingu að hann fari í eina átt, en hann get- ur verið pólitískur í þeirri merkingu að hann fjalli um pólitíska hluti. Þar er númer eitt, tvö og þrjú að leggj- ast ekki í predikun. Ef maður ætlaði að skrifa þannig bækur gæti mað- ur eins unnið á auglýsingastofu. Þá er skáldskapurinn orðinn að farar- tæki fyrir málstað og um leið orðinn rammóheiðarlegur.“ Tækifærið er núna Þú segist vera sósíalisti. Hvernig líst þér á stofnun Sósíalistaflokks? „Ég meðlimur númer 473 í hon- um. Það sem mér finnst áhuga- verðast er að það sé verið að stofna flokk þremur og hálfu ári fyrir kosn- ingar. Þar þarf að fara fram eitt- hvert pólitískt starf sem snýst ekki bara um að koma fólki á þing. Ef ekki tekst að byggja upp það starf á næstu þremur og hálfu ári þá hefur flokknum mistekist. Þá er það bara þannig. En tækifærið er núna.“ Hverju viltu breyta í þjóðfé- laginu? „Ég held að meinsemdin liggi fyrst og fremst í efnahagslegum ójöfnuði. Það felst mikið vald í því að eiga peninga og því valdi er mjög misskipt í þjóðfélaginu. Við sjáum líka alls kyns félags- legar meinsemdir sem mér finnst að skáldskapurinn geti ekki horft framhjá. Það eru alls konar grá svæði og skerjagarðar sem skáld- skapurinn getur siglt um og það er mikilvægt að hann geri það.“ Eiríkur Örn verður 39 ára í sum- ar. Þegar blaðamaður spyr hann hvort hann haldi að hann muni eldast á þann hátt að hann verði ekki eins pólitískur og á unga aldri segir hann ekki mikla hættu á því. „Ég á kyn til að vera svona. Mjög margir í fjölskyldu minni, sérstak- Pólitísk mannvera Í nýrri ljóðabók eftir Eirík Örn Norðdahl er fjallað um ýmis samfélagsleg málefni lega föðurfjölskyldu, hafa verið sós- íalistar frá fæðingu fram á dánar- dægur.“ Hló að Vigni Eiríkur Örn fékk Íslensku bók- menntaverðlaunin árið 2012 fyrir Illsku sem óhætt er að segja að sé ögrandi skáldsaga. Hann er spurð- ur hvernig viðbrögð honum finnst hann fá við verkum sínum. „Ég fæ allt litrófið. Sumum þykir ég þreyt- andi og ég sýni því skilning. Ég get verið þreytandi. Ég er að reyna að gera tiltekna hluti sem þurfa ekki að vera allra. Þeir eru samt þarna og ég ætla ekkert að fara að breyta mér. Svo þarf ég heldur ekki að bera mig illa. Ég hef fengið Íslensku bók- menntaverðlaunin og það er alltaf verið að klappa mér á bakið.“ Skipti máli fyrir þig að fá Íslensku bókmenntaverðlaunin? „Já, ég skuldaði svo mikinn skatt að milljónin bjargaði mér fyrir horn! Ég var mjög lengi að skrifa Illsku. Mér fannst ég hafa spennt bogann mjög hátt og það hefði ver- ið hryllilegt hefði bókin floppað. Ég veit ekki hvað ég hefði gert. Ég vann að henni í fjögur ár og á tímabili var hún gjörsamlega búin að heltaka mig. Tilhugsunin um að þetta væri kannski ekki til neins varð óskap- lega þrúgandi á lokametrunum.“ Illska varð að leikriti sem sýnt var í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Vign- is Rafns Valþórssonar og fékk góð- ar viðtökur. „Bókin er þannig að það er ekki hægt að setja hana alla á svið. Ég hló að Vigni þegar hann sagði mér að hann ætlaði að gera leikrit upp úr henni. En svo fannst mér óskaplega gaman að sjá hvern- ig leikhópurinn gat leikið sér með hluti á sviðinu og gert svo margt sem hefði ekki getað verið í bók.“ Nær ekki sambandi við Reykjavík Lestu mikið og hvers konar bók- menntir lestu? „Ég les talsvert og í seinni tíð finnst mér mikilvægt að lesa hægt. Ég, sem krefst mikillar þolinmæði af lesendum mínum, les yfirleitt stutt- ar bækur. Ég er ekki viss um að ég væri minn besti lesandi hvað þetta varðar. Á tímabili las ég eiginlega ekkert nema mjög skrýtna framúr- stefnuljóðlist en hef skilið við það í bili. Nú les ég allan fjárann.“ Eiríkur Örn býr á Ísafirði þar sem hann ólst upp. „Ég bjó lengi erlend- is, bæði í Berlín og Helsinki og meira að segja stuttan tíma í Víetnam. Svo hef ég gert nokkrar tilraunir, tvær alvarlegar, til að búa í Reykjavík. Ég næ ekki alveg sambandi við þessa borg. Foreldrar mínir eru á Ísafirði, ég bý við hliðina á bróður mínum og systir mín er þarna í grennd. Margir æskuvinir mínir hafa flutt aftur til Ísafjarðar. Það er miklu meira við að vera nú en þegar ég var ungling- ur. Þarna eru kaffihús, stöðugar tón- listar- og leiklistarhátíðir og stutt á skíði. Ég vil hvergi annars staðar vera en á Ísafirði.“ n „Hinn pólitíski veruleiki verður að vera með í skáldskap mínum af því hann skiptir mig máli Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Sumum þykir ég þreytandi og ég sýni því skilning Eiríkur Örn Norðdahl „Það er alltaf verið að klappa mér á bakið.“ MyNd SigTRygguR ARi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.