Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 10
10 Litli-Bergþór
Kvenfélag Biskupstungna
Litið yfir farinn veg 2014 og það sem af er 2015
Aðalfundur félagsins var haldinn í Bergholti þann
23. mars sl. og að venju var lesin upp ársskýrsla
stjórnar við það tilefni. Kosið var í stjórn og nefndir
og ýmislegt skrafað yfir kaffinu. Hér á eftir fer yfirlit
yfir starf félagsins á árinu 2014 og það sem af er þessu
ári.
Í stjórn árið 2015-2016 sitja: Svava í Höfða formaður,
Geirþrúður á Miðhúsum ritari, Bryndís á Helgastöðum
gjaldkeri, Agnes á Galtalæk meðstjórnandi og
varaformaður og Oddný á Brautarhóli meðstjórnandi.
Varakonur í stjórn eru Herdís Friðriksdóttir og Sig-
urlaug Jónsdóttir, báðar búsettar í Reykholti.
Veitinganefnd er í höndum Sirríar á Vatnsleysu,
Sigrúnar á Engi og Jórunnar á Drumboddsstöðum.
Varamaður er Oddný á Brautarhóli.
Skógræktarnefnd skipa: Sigga Jóna í Hrosshaga,
Herdís í Reykholti og Agnes á Galtalæk.
Aðrar nefndir starfandi hjá félaginu í ár eru sum-
armarkaðsnefnd, afmælisnefnd vegna 100 ára
afmælis kosningaréttar kvenna, ferðanefnd og
jólamarkaðsnefnd.
Félagar Kvenfélags Biskupstungna árið 2014 voru 53
talsins, þar af fimm heiðursfélagar.
Tvær félagskonur létust 2014, þær Ingibjörg Guð-
mundsdóttir frá Spóastöðum sem lést í janúar og
Þuríður Sigurðardóttir sem búsett var í Reykholti sem
lést í júlí. Þá lést Margrét Guðmundsdóttir á Iðu í apríl
á þessu ári.
Venjan er að halda fjóra félagsfundi á ári og var svo
í fyrra. Stjórn fundar oftar og hittist hún sjö sinnum
í fyrra. Ég gerði það að gamni mínu að taka saman
upplýsingar um vinnu félagskvenna á síðasta ári.
Þær eru ekki nákvæmar en líklega er þetta þó vanmat
frekar en hitt bæði á vinnuframlagi og bakstri.
Félagið sá um fjórar erfidrykkjur á síðasta ári og
var með kaffiveitingar bæði á sumarmarkaði og
jólamarkaði, auk þess sem bakað var fyrir kökubasar
á jólamarkaði.
Mikið var bakað að venju og mun út úr þeim bakstri
hafa komið um það bil 181 terta, 1050 pönnukökur og
720 kleinur á árinu. Auk þessa voru smurðar um 400
flatkökur.
Vinnustundir hafa verið um það bil 315 eða 39
vinnudagar, ef miðað er við átta stunda vinnudag, en
það samsvarar því að ein manneskja hafi unnið í heilan
mánuð að þessu. Ekki slæmt, verð ég að segja.
Tekjum af þessari fjáröflun er varið til að styrkja ýmis
málefni og í fyrra greiddum við út rúmlega 600.000
krónur. Í ár erum við búnar að kaupa nýja stóla í
kaffistofuna í Bergholti. Þá fengum við á góðum
kjörum hjá innansveitarmanninum Einari Þórkatli
Einarssyni á Litla-Fljóti, sem rekur Stáliðjuna.
Félagið hefur til umráða dálítinn skógarreit á
Spóastöðum og sér skógræktarnefnd félagsins
um hann. Á síðasta ári voru það, Sigríður Jónína
Sigurfinnsdóttir, Herdís Friðriksdóttir og Íris
Svavarsdóttir sem sátu í þessari nefnd. Átta konur
lögðu leið sína í skógarreitinn vorið 2014, þökulögðu
undir borðinu sem þar er og í kringum það, báru
áburð á tré eftir þörfum og drukku síðan saman kaffi
og nutu skógarreitsins í indælu veðri. Samkoman var
endurtekin í vor og er ávallt gaman að koma í reitinn
og njóta hans. Ef þið vitið ekki hvar þessi reitur er þá
getið þið þekkt hann á lítilli, fallegri göngubrú sem
sést frá aðalveginum. Það er öllum heimilt að fara í
reitinn og ganga þar um og nýta sér borðið og bekkina
sem þar eru í lundi. Fólk er bara beðið um að ganga
vel um.
Texti:
Svava Theodórsdóttir
Í Búrfelli var tekið höfðinglega á móti kvenfélags-
konum, og sýndi Böðvar okkur m.a. Búrfellskirkju.