Litli Bergþór - 01.08.2015, Síða 16
16 Litli-Bergþór
Sunnudaginn 19. apríl hélt Björgunarsveit Biskups-
tungna uppá 30 ára afmæli sitt og í tilefni af því buðum
við gestum til kaffi- og vöffluveitinga í húsi okkar að
Bjarkarbraut í Reykholti. Margir heiðruðu okkur með
heimsókn og fylgdu þar margar vel þegnar gjafir, sem
nýtast okkur í starfi sveitarinnar. Tókst dagurinn mjög
vel í alla staði.
En allt byrjaði þetta árið 1985. Það ár, þann 16. mars,
var haldinn í Aratungu stofnfundur Slysavarnadeildar
og Slysavarnasveitar Biskupstungna. Með stofnun
félaganna var verið að leggja grunn að nauðsynlegu
starfi við slysavarnir og leit/björgun fólks. Allt frá
fyrstu árum félaganna hefur verið safnað fé til kaupa
á nauðsynlegum búnaði, til kaupa á bifreið og síðar til
byggingar húsnæðis.
Árið 1996 var einmitt stór áfangi í starfi félaganna
en það árið var Björgunarmiðstöðin að Bjarkarbraut
vígð við hátíðlega athöfn. Þetta þrekvirki að koma
húsi yfir félögin. Dýrt verkefni sem tók langan tíma.
Margir lögðu hönd á plóg og unnu ófáa tíma við
Björgunarsveit
Biskupstungna
30 ára
í allskonar verkefni sem sinna þarf vegna reksturs,
vinnu og útköllum hjá þessum félagsskap og ALLT er
þetta unnið í sjálfboðastarfi. Sem dæmi um þann tíma
sem félagsstarfið tekur þá voru á síðasta ári (2014)
skráðir yfir 1400 tímar hjá 22 virkum félögum.
Enn og aftur viljum við þakka stuðning ykkar
sveitunga við félagið, án ykkar væri ekki mikið um
starfsemi í okkar félagi.
Fyrir hönd Björgunarsveitar Biskupstungna.
Kristinn Bjarnason, formaður.
smíðar á húsinu og sveitarfélagið ásamt einstaklingum
og félögum lögðu sitt að mörkum til að þetta gæti allt
gengið upp.
Síðan árið 1999, á aðalfundum Slysavarnadeildar
og Slysavarnasveitar Biskupstungna, voru félögin
sameinuð í eitt félag sem fékk nafnið Björgunarsveit
Biskupstungna.
Margir hafa starfað með og við hlið okkar í
Björgunarsveitinni. Fjöldi vinnustunda hefur farið Afmælisgestir nutu veitinganna í húsnæði björgunar-
sveitarinnar.
Kristinn Bjarnason, formaður, og Magnús Skúlason
bjóða gesti velkomna.
Vöfflubakstur unglingadeildarinnar.