Litli Bergþór - 01.08.2015, Side 17
Litli-Bergþór 17
Geirþrúður Sighvatsdóttir
Meðfram Hlíðunum efst í Biskupstungum liggur
vegurinn frá Þingvöllum og Laugarvatni að Geysi og
Gullfossi, fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins,
auk þess sem hann þjónar fjölmennum sumar-
bústaðabyggðum og heimafólki.
Það eru ekki nema um 50 ár síðan þetta svæði
var eitt af afskekktustu stöðum sunnanlands. Gott
vegasamband komst ekki á með Hlíðunum fyrr en
1961 og rafmagn var lagt að þessum bæjum 1968.
Nú er árið 2015, og enn er þetta svæði á eftir í
þjónustu við íbúana. Án öruggs netsambands, sem
er forsenda þess að hér sé hægt að búa við nútíma
tölvuþjónustu. Hér er enginn ljósleiðari, bara ótryggt
loftnetssamband, sem dettur út í tíma og ótíma.
Þó eru hér stór ferðaþjónustufyrirtæki: Gullfoss,
Geysir, Úthlíð og Efstidalur. Hér eru útgáfufyrirtæki,
verktakar, bændur, sumarbústaðabyggðir o.s.frv. Það
er ætlast til þess að notuð séu „online“ forrit við flesta
atvinnustarfsemi og allir vilja geta notað netbanka,
tölvupóst svo ekki sé minnst á facebook, hlaða niður
bíómyndum, tónlist o.s.frv. En netöryggi er mjög
takmarkað og veldur pirringi og gráum hárum.
Stutt rannsókn á nettengingu bæja með Hlíðum
og upp að Geysi, gerð í apríl 2015, leiddi í ljós að
flestir eru tengdir Gagnaveitu Suðurlands, TRS, með
loftnetssambandi frá Torfastaðaheiði. Þeir kvörtuðu
allir undan tímabilum með lélegu eða óstöðugu
sambandi, þó oftast væri þokkalegt samband. Ekki væri
þó hægt að reiða sig á sambandið, sem er sérstaklega
bagalegt fyrir útgáfu- og ferðaþjónustufyrirtækin.
Úthlíðartorfan er reyndar tengd við gagnaveitu
Ábótans, sem líka er með loftnetssamband frá
Torfastaðaheiði og hafa þeir verið þokkalega ánægðir
með þjónustuna síðan í fyrrahaust. Aðrir bæir eru
með „punga“ frá Nova, Vodafone eða Símanum og
höfðu þeir sömu sögu að segja. Sambandið mjög
misjafnt, datt oft út. Það mun vera 3G sendir í Úthlíð
og 4G á Seyðishólum, en þeir detta út til skiptis, og
á „facebooktíma“ á kvöldin hefur oft ekkert samband
verið í vetur.
Það er kominn ljósleiðari í Reykholt og á Laugarvatn
og einnig liggur ljósleiðari í stöð í Laugarási.
Njóta því íbúar þessara þéttbýliskjarna háhraða
ljósnetstengingar. Ljósnetið nýtir koparþræðina frá
símstöð og nær háhraðatengingu í ákveðna fjarlægð
frá símstöðinni. Þeir sem eru utan þessa radíuss verða
að gera sér að góðu hið stopula loftnetssamband sem
lýst er hér að ofan.
Að sögn Valtýs, sveitarstjóra Bláskógabyggðar,
hefur ekki verið hægt að fá einstaka bæi tengda við
núverandi ljósleiðaraburðarvirki Mílu. Slík tenging
kostar töluvert og viðkomandi notandi þyrfti að borga
brúsann. Staðfesting fékkst frá Mílu um að ekki væri
á áætlun þeirra að leggja ljósleiðara í efri byggðir
Biskupstungna, þar sem sú tækni væri aðeins möguleg
í þéttari byggð.
Þetta er ástæðan fyrir því að sveitafélög eru nú
að skoða aðra möguleika á lagningu dreifikerfis í
ljósleiðara.
Samkvæmt upplýsingum frá Valtý, er einnig
vinnuhópur að störfum á vegum ríkisstjórnarinnar,
sem á að gera tillögur um ljósleiðaravæðingu
landsbyggðarinnar. Megi gott á vita.
Krafa okkar er að allir bæir í sveitinni verði
tengdir við ljósleiðara. Og það má ekki koma fyrir
að ljósleiðari sé lagður um sveitir landsins án þess að
gert sé ráð fyrir tengingu að bæjum á leið hans. Það er
mannréttindamál.
Íbúar í Bláskógabyggð, stöndum saman um kröf-
una um ljósleiðara fyrir öll heimili. Ef engin pressa
kemur frá okkur íbúunum gerist ekkert. Gerum
Bláskógabyggð að ákjósanlegri stað að búa á!
Facebook
Ritstjórn vill benda lesendum Litla-Bergþórs á Facebook síðu blaðsins. Gaman væri
ef fólk rifjaði upp gamlar sögur úr sveitinni - setti inn gamlar (og nýjar) myndir með
skýringum á við hvaða tilefni þær eru teknar og hverjir eru á þeim. Kannski verður
til grein í Litla-Bergþóri úr svona innleggi á síðuna.
Kveðja, ritstjórn Litla-Bergþórs.
Lítill pungur – lítið samband?
Úttekt á netsambandi með Hlíðum 2015