Litli Bergþór - 01.08.2015, Qupperneq 26
26 Litli-Bergþór
Logafréttir
Samantekt:
Einar Á. E. Sæmundsen
Starfsár hestamannafélagsins Loga árið 2014 var með
nokkuð hefðbundnu sniði.
Aðalfundur Loga var haldinn í apríl og var nokkur
breyting á stjórn samkvæmt reglum félagsins.
Guðrún S. Magnúsdóttir hætti sem formaður og
einnig hættu Sigurlína Kristinsdóttir og Rúnar B.
Guðmundsson í stjórn. Eru þeirra störf þökkuð. Í stað
þeirra voru Einar Á. E. Sæmundsen kjörinn formaður
og Sólon Morthens, Líney Kristinsdóttir og Marta
Margeirsdóttir komu ný inn í stjórn en Hólmfríður
Ingólfssdóttir hélt áfram sínu góða starfi sem gjaldkeri
Loga.
Árið 2014 hófst með hinni vinsælu álfareið í Reykholti
á þrettándanum þar sem yngsta kynslóðin reið frá
sundlauginni að Friðheimum. Tveir knapar fóru fyrir
skrúðgöngunni og er þetta góð og skemmtileg venja.
Reiðhöllin á Flúðum er vel nýtt yfir vetrartímann og
hefur uppsveitadeildin unnið sér þar fastan sess. Mótin
voru þrjú síðasta vetur og keppt einu sinni í mánuði.
Deildinni hefur tekist að vekja á jákvæðan hátt athygli
á hestamennsku í uppsveitunum og náð vinsældum,
fyrir utan að afla reiðhöllinni nauðsynlegra tekna til
að styðja við reksturinn. Æskulýðsnefnd Loga ásamt
félögum í Smára og Trausta stóð einnig í ströngu við
að halda úti Uppsveitadeild æskunnar ásamt öðrum
uppákomum og eiga hrós skilið. Uppsveitadeild
æskunnar hefur orðið mikilvægur vettvangur fyrir
yngri kynslóðina þar sem hún fær athygli, hvatningu
og kennslu í reiðmennsku um leið og keppt er til
verðlauna. Æskulýðsdeildir Loga, Smára og Trausta
stóðu að skemmtiferð í Fákasel í apríl. Um 40 manns
lögðu leið sína með rútu í Ölfusið þar sem sýnd voru
hesthús, aðstaðan og leiksviðið sjálft.
Vetrarmót Loga og Trausta voru á sínum stað og
gengu ágætlega nema að síðasta mótið var flutt inn
í Reiðhöllina á Flúðum vegna veðurs og aðstæðna í
Hrísholti.
Miðvikudaginn fyrir páska var sameiginlegt töltmót
Loga, Trausta og Smára endurlífgað í reiðhöllinni og
gekk það vel. Það gekk misvel með námskeið ársins en
leikjanámskeið var haldið í Reiðhöllinni síðla vetrar
sem var vel sótt. Þar var riðið um að hætti kúreka og
indíána og leikið sér. Mjög skemmtilegt námskeið
sem dró ýmsa aðra á námskeið sem ekki höfðu komið
áður. Sólon Morthens hélt námskeið fyrir eldri krakka
sem voru í keppnishugleiðingum. Námskeiðið var
einstaklingsmiðað fyrir þá krakka sem vildu byggja
upp keppnishest og ætluðu sér að taka þátt í keppni
á árinu. Kennt var í Flúðahöllinni og að Kjóastöðum,
en þar voru Gunnar og Þóra svo rausnarleg að bjóða
fram reiðhöllina sína. Ekki reyndist nægileg þátttaka
í hinu hefðbundna reiðnámskeiði sem haldið er í
Hrísholti. Líkleg skýring er að fullseint var farið af
stað að kynna það og auglýsa og er það sök stjórnar að
einhverju leyti.
Í byrjun júní var velheppnaður fyrirlestur í samstarfi
við hestamannafélagið Smára þar sem farið var yfir
gæðingakeppni, reglur og áherslur ásamt því að rifjuð
var upp saga keppninnar. Fyrirlesarar voru Sindri
Sigurðsson og Ingibergur Árnason.
Árið 2014 var landsmótsár og því var að venju
haldin úrtaka Geysis, Smára, Loga og Trausta að
Gaddstaðaflötum. Þá varð ljóst hverjir urðu fulltrúar
Loga á Landsmótinu sem hófst í lok júní.
Fulltrúar Loga á Landmótinu 2014 voru:
Barnaflokkur
Sölvi Freyr Freydísarson og Glaður frá Kjarnholtum 1
Rósa Kristín Jóhannesdóttir og Frigg frá Hamraendum
Sólon Morthens og Jón Óskar Jóhannesson.