Litli Bergþór - 01.08.2015, Page 28
28 Litli-Bergþór
Það var haustið 1972 sem ég man að Loftur S. Loftsson
kom í Reykholtsskóla og bauð þeim sem áhuga hefðu,
að læra á píanó eða blokkflautu. Þetta er einn af þessum
eftirminnilegu dögum í skólanum. Loftur mætti í
hjólastól og talaði um tónlistarnám. Ég fór heim og
sagði mömmu frá þessu og að sjálfsögðu áttum við
systur, Ingunn og ég, að læra á hljóðfæri. Næstu árin
skruppum við úr kennslustundum í grunnskólanum
einu sinni í viku, renndum okkur niður brekkuna á
klaka eða blautu grasi, yfir príluna á girðingunni og
niður í Aratungu í píanótíma til Lofts.
Loftur hóf kennslu við Tónlistarskóla Árnesinga árið
1969 og var lengst af eini tónlistarkennarinn í Reykholti
auk mömmu, Margrétar Grünhagen á Miðhúsum, sem
kenndi stundakennslu á blokkflautu af og til á árunum
1973 - 1983. Kennslan fór fram í Aratungu eins og
lengst af síðan. Þar sem Loftur var bundinn við hjólastól
og lítt farið að huga að aðgengismálum fatlaðra, fór
kennslan oft fram í fatahengi félagsheimilisins. Þó
man ég líka eftir tímum uppi á sviðinu. Hef ég oft
í seinni tíð dáðst að þrautseigju Lofts við að kenna
við erfiðar aðstæður og vonlaust aðgengi auk þess að
keyra um sveitavegina í öllum veðrum (löngu fyrir
tíma malbiks og farsímanna).
Ég lærði á píanó í tvö ár, en færði mig svo yfir á
blokkflautu (flestir taka þetta í annari röð J). Mér
fannst óþarfi að fylgja í fótspor Hjálms bróður sem var
langt kominn í píanónámi og valdi því hitt hljóðfærið
sem bauðst. Loftur spilaði með mér í gegnum heilu
sónöturnar eftir barokktónskáldin Händel, Telmann,
Corelli, Barsanti og fleiri, og nútímatónlist á milli.
Hátindi frægðarinnar á grunnskólaárunum náði ég
þegar við Harpa Hreinsdóttir frá Laugarvatni spiluðum
saman sónötu eftir Händel fyrir blokkflautu og píanó
í Selfossbíói.
Leiðin lá í Menntaskólann að Laugarvatni og
skrapp ég þá af og til í blokkflaututíma til Sigríðar
Pálmadóttur sem kenndi við Tónmenntaskóla
Reykjavíkur. Árið 1980 fluttist svo Camilla Söderberg
blokkflautuleikari til landsins og hóf kennslu við
Tónlistarskólann í Reykjavík. Það sama haust flutti
ég til Reykjavíkur og hóf blokkflautunám hjá henni
sem lauk með blokkflautukennaraprófi vorið 1986.
Ég kenndi í Reykjavík (og eitt ár á Húsavík) næstu
ár á eftir, en flutti 1995 á Selfoss og var ég þá aftur
komin í Tónlistarskóla Árnesinga, nú sem kennari.
Fyrsti nemandi minn á Selfossi var Tungnadaman
Svanhildur Lilja Ingólfsdóttir úr Laugarási og
síðan hafa fleiri fylgt í kjölfarið. Með þessum góðu
nemendum hef ég fengið af og til tækifæri til
að leika í Tungunum, s.s. fyrir eldri borgara
í Reykholti og á tónleikum og skólaslitum
tónlistarskólans.
Árið 2000 var ég fengin til að taka að mér að vera
aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga og
er það þriðja aðkoma mín að tónlistarskólanum.
Og nú tekur aðstoðarskólastjórinn við
frásögninni.
Frá þeim tíma sem ég var nemandi við skólann
hefur mikið vatn runnið til sjávar og nýir
kennarar komið að tónlistarkennslu í Reykholti.
Tónlistarskólinn
og Tungurnar
Helga Sighvatsdóttir segir frá tengslum
sínum við Tónlistarskóla Árnesinga.
Sunneva Kristin Nilsdóttir, Kjartan Helgason, Ragnar Dagur
Hjaltason og Loftur Erlingsson kennari.
Systurnar Freyja Hrönn og Freydís Halla.