Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 32
32 Litli-Bergþór
Það kom í hlut Skálholtssóknar að sjá um þorrablótið í
Tungunum þetta árið. Fyrir fjórum árum, þegar skipað
var í þorrablótsnefndina fyrir árið 2015, var það í langri
framtíð. En viti menn! Fyrr en varði blasti alvaran við,
það var komið að þessu. Nefndin, sem í voru 5 manns,
kom fyrst saman í október til að leggja á ráðin. Fyrsta
verkið var að ákveða dagsetningu þorrablótsins og
huga að hljómsveit.
Dagsetningin varð 23. janúar og hljómsveitin
Karma ráðin til að leika fyrir dansi. Það er hefð fyrir
því í Skálholtssókn að hefja undirbúning þorrablóts
með því að boða alla íbúa til félagsvistar. Þar eru
málin reifuð yfir spilunum og hugmyndum velt upp.
Allir, sem vilja, eru þátttakendur í undirbúningnum.
Svo fóru í hönd hugarflugsfundir og smátt og smátt
tók dagskráin á sig mynd. Það, sem var öðruvísi við
dagskrána þetta sinn var það, að teknar voru upp heilu
kvikmyndirnar og sýndar á tjaldi á þorrablótinu. Mikil
Þorrablót 2015
vinna lá að baki þessum upptökum t.d. voru upptökur
einn daginn í 12 klukkutíma í rysjóttu veðri. En þetta var
gott innlegg í reynslubankann. Hlé var gert á æfingum
rétt yfir jólin en vinna hófst að nýju 30. desember og
Fulltrúar uppsveitahreppanna skiptast á skoðunum
um áframhaldandi hrepparíg. F.v. Ingvi á Spóastöðum,
Loftur frá Iðu, Benedikt Skúlason, Guðmundur á Iðu og
Böðvar Þór Unnarsson á Ljósalandi.
Kjörnefnd lýkur talningu atkvæða í sveitarstjórnarkosn-ingu. F.v. Hólmfríður
Ingólfsdóttir, Elinborg á Iðu, Jens Pétur, Sigrún á Engi, Bryndís á Helgastöðum,
?, Ingibjörg á Teig og Hildur á Spóastöðum.
Kvikmyndaatriði þar sem gert var grín að ferðaþjónustu
í Tungunum. F.v. Íris Blandon í hlutverki leiðsögumanns
en næstar eru Bryndís og Hildur á Spóastöðum sem
lánlausir túristar.
áfram var haldið eftir áramót.
Leikþættir voru skrifaðir,
sem leiknir voru á sviði, og
söngtextar urðu til. Miðasala var
auglýst í tvo daga í vikunni fyrir
blótið, en uppselt varð strax á
fyrri deginum. Þá fóru af stað
miklar og heitar umræður, bæði
í heita pottinum og á fésinu.
Ótrúlegust samsæriskenningar í
gangi. En þegar farið var að raða
upp borðum daginn fyrir blótið
þá fundust nokkur laus sæti svo
hægt var að tæma biðlistann.
„Þröngt mega sáttir sitja“ Það
er nú bara einu sinni þannig
að félagsheimilið okkar rúmar
ekki ótakmarkaðan fjölda. Svo
rann stundin upp. Allt fór fram
Benni, Böðvar Þór og Ingvar á Spóastöðum gera grín
að vinnumenningu við byggingarframkvæmdir.