Morgunblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON'
Sýning
Alfreðs
Flóka
Alfreð Flóki Nielsen hefur
enn einu sinni kveðið sér hljóðs
með sýningu á teiknilist sinni,
og sem fyrr er Bogasalur vett-
vangur sýningarinnar. Flóki
hefur verið að breytast á und-
anförnum árum og hefur vikk-
að svið teiknitækni sinnar. Sýn-
ingin í Bogasal er þó unnin í
svipaðri tækni og sú næst á
undan og kemur því eðlilega
ekki eins á óvart. Fyir vikið
verða áhrifin ekki eins sterk
þótt myndirnar séu engu síðri.
Á þessari sýningu er það mjög
áberandi þáttur í myndgerð
Flóka hvernig hann hleður
smáatriðum i kringum „fígúr-
ur“ sínar í þeirri viðleitni að
segja sögu, en hér er hann
ósjaldan á hálum ís, því að vió
það veikir hann heildaráhrif
myndanna. Hann kann ágæt-
lega að framkalla mystísk áhrif
í andlitum en þessi mystík tap-
Teikning eftir Flóka.
ar krafti vegna fyrrnefndrar of-
hleðslu. Stundum óskar maður
sér, að „fígúrurnar" væru einar
sér á blöðunum þvi að þær
standa fyllilega fyrir sínu, og
það þarf enga fulga né snáka til
að magna áhrifin. Ég hef oft
bent á það í skrifum mínum um
þennan listamann, að mig furð-
aði stórlega á þvi, að hann
skyldi ekki hagnýta sér grafík-
tæknina því slíkt væri upplagt
vegna hinnar sérstöku teikni-
tækni er hann hefur tileinkað
sér. Og ég leyfi mér að undir-
strika þessa skoðun mína enn
einu sinni, það væri upplagt til
nýrra landvinninga innan hins
furðulega myndheims er Flóki
hefur verið trúr í gegnum árin.
I sýningarskrá hefur Flóki
valið að vitna í Gérard de Ner-
val og hugleiðingar hans um
drauminn. „Draumar okkar eru
annað lif. Það vekur mér ætið
hroll að fara innan um þessi
fílabeins- eða hornlögðu hlið,
sem skilja okkur og hina ósýni-
legu veröld. Fyrstu andartök
svefnsins eru ímynd dauðans;
dámóða lykur hugsanir okkar
og við getum alls ekki ákvarðað
augnablikið þegar sjálfið held-
ur í nýju formi áfram ætlunar-
verki tilverunnar. Smám saman
birtir í óskýrum neðanjarðar-
hellum og hinar bleiku, þung-
búnu og hræringarlausu verur,
sem i undirheimum búa, greina
sig frá skuggunum og nóttinni.
Þá fær myndin lögun, ný birta
lýsir upp þessa svipi og gæðir
þá hreyfingu. Hin andlega ver-
öld opnast okkur.“
Svo mörg eru þau orð ...
Myndkynning
Alþjódleg grafík
Eyvindur Mohr: Málverk
F0ROYAR
Móiníngur «ftir Byv. Mohr
FlRST OAY COVE P.
Fyrstadagsumslag með mynd af málverki og áritun færeyska málar-
ans Eyvinds Mohr.
Að Kjarvalsstöðum stendur
yfir um þessar mundir önnur
sýning félagsins Myndkynning-
ar, en eins og mörgum mun í
fersku minni sýndi félagið
grafík á sama stað og svipuðum
tíma sl. ár. Það er þarft verk og
þakkarvert að dreifa erlendri
grafík hérlendis og gild list-
miðlun. Að þessu sinni er hér
um að ræða 61 grafíkmynd eftir
velþekkta listamenn, aðallega
þýska, auk heimskunnra nafna
líkt og Vasarely, Calder og Erró
og eru myndirnar yfirleitt
þrykktar i 100—150 eintökum
árituðum og tölusettum af lista-
mönnunum, — en að öðru leyti
eru þær unnar af fagmönnum á
verkstæðum undir eftirliti og
stjórn listamannanna. Þetta
eru mjög algeng vinnubrögð nú
á tímum og fjölmargir hagnýta
sér þau til að dreifa list sinni,
því að upplagið gerirþað að
verkum að verðið verður mjög
viðráðanlegt fyrir almenning.
Það er ágætt og þroskandi
hlióarstarf fyrir myndlistar-
menn að vinna á þennan hátt í
grafík og félagið Myndkynning
á þakkir skildar fyrir að kynna
þessa hlið gr'afík-myndgerðar.
Gaman væri ef einhver réðist
til að koma íslenzkum mynd-
listarmönnum i samband við
slík verkstæði erlendis. Að vísu
skal viðurkennast, að slík
Sjálfsmynd Eyvinds Mohr.
vinnubrögð við myndgerð eru
ekki jafn verðmæt og þau er
listamaðurinn vinnur allt
verkið sjÉlfur, en þau eiga eigi
að síður fullan rétt á sér sem
listdreifing.
Eins og í fyrra skiptið á
Guðmundur Erró flest verk á
sýningunni (20). Ugo Dossi er
með 10 (skák-myndröð) en aðr-
ir færri.
Fyrirtækið Myndkynning
hefur fengið Erró til að gera
sérstaklega 3 myndir fyrir sig
og eru þær því nýjar af nálinni
og seldar á hóflegu verði. Er
hér einstakt tækifæri til að
eignast mynd eftir þennan
listamann.
1 tilefni þessarar sýningar
hefur félagið boðið færeyska
málaranum Eyvind Mohr að
sýna málverk sin og var lista-
maðurinn sjálfur mættur á
staðnum. Sýnir hann 19 mál-
verk flest af landslagi.
Eyvindur Mohr er sjálf-
lærður myndlistarmaður á
miðjum aldri og einn af fáum
er framfæri hafa af að mála
einvörðungu í heimalandi sínu.
Hann hefur brotist áfram af
miklum dugnaði og m.a. byggt
hús með eigin höndum, hvorki
meira né minna en með 24
herbergjum, og einum
sýningarsal þar sem haldnar
eru reglulega myndlistar-
sýningar. Það fer ekki á milli
mála að hér er færeyskur-
málari á ferð með ríka kennd
fyrir landi sínu og þeirri 1
veðráttu er landsmenn búa við,
t.d. ber ein áhrifamesta mynd
sýningarinnar nafnið „Famjin“
(Öveður). I svipuðum gæða-
flokki eru og t.d. myndir likt og
„Elduvík" (6), „Frá Elduvík“
(7) og „Einsemis" (17).
Eyvindur hefur dvalið í Róma-
borg um tíma, en þær myndir
er hann sýnir þaðan eru naum-
ast eins persónulegar og þær er
hann hefur unnið á heimavelli.
En dvölin í Róm hefur haft
mikil áhrif á persónu lista-
mannsins og kann það að koma
óbeint fram í myndum hans.
Hér er kærkominn gestur á
ferð og vonandi verða nokkrar
mynda hans eftir á tslandi að
sýningunni lokinni —listasöfn-
in mættu t.d. stuðla að þvi.
Þoturnar
reyndust
gallalausar
FYRIR nokkru var frá því skýrt,
að McDonnell Douglas flugvéla-
verksmiðjurnar og bandarfska
flugmálastjórnin hefðu fyrirskip-
að nákvæmar skoðanir á DC-8
flugvélum vegna þess að sprung-
ur hefðu komið fram í vissum
burðarhlutum flugvélanna.
í fréttatilkynningu frá Flug-
leiðum h.f., sem Morgunblaðinu
barst i gær, segir að félagið eigi 3
DC-8-63 þotur og hefði að auki
haft tvær slíkar á leigu. Strax og
þessar fréttir bárust ákvað félag-
ið að láta fara fram nákvæma
skoðun á öllum fimm DC-8 þotun-
um og var þeim því flogið einni
eftir aðra til Parísar, þar sem þær
voru skoðaðar á vegum franska
flugfélagsins UTA.
Skoðun á siðustu þotunni er nú
'lokið og varð niðurstaðan sú að
allar þoturnar reyndust heilar og
ógallaðar. Gátu þær þvi allar
haldið áfram flugi samkvæmt
áætlun. Talið er, a ef fyrrgreind-
ur galli hefði fundizt í þotunum,
hefði viðgerð á hverri um sig tek-
ið 4 til 8 vikur.
Samninga-
fundur í dag
SAMNINGANEFNDIR BSRB og
ríkisins hafa verið kallaðar á fund
Loga Einarssonar sáttasemjara í
Lögbergi klukkan 14 i dag. Aðil-
arnir ræddu siðast við í rúma
fjóra klukkutima á fimmtudaginn
og sagði Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, að fundi loknum, að
á þeim fundi hefði ekkert miðað i
samkomulagsátt. Stjórn og
samninganefnd BSRB koma sam-
an á fund síðdegis á mánudaginn
og verður þar rætt um stöðuna í
samningamálunum.
Laus úr gæzlu
ANNAR tveggja manna, sem úr-
skurðaðir voru í gæzluvarðhald i
vikubyrjun vegna rannsóknar á
nýju fíkniefnamáli, hefur verið
látinn laus. Hinn maðurinn situr
hins vegar áfram í gæzluvarð-
haldi.
Telex-
lands-
keppnin
við Finna
ámorgun
TELEX-LANDSKEPPNIN milli
tslendinga og Finna fer fram á
morgun. Teflt verður á 8. borðum
og verða íslenzku keppendurnir í
sal Utvegsbankans í Reykjavík.
Taflið hefst klukkan 9 á sunnu-
dagsmorgun.
ísland teflir fram sínu sterk-
asta liði, enda töluverðir mögu-
leikar að komast áfram í keppn-
inni. Friðrik Ölafsson verður á 1.
borði, Guömundur Sigurjónsson á
2. borði, Ingi R. Jóhannsson á 3.
borði, Jón L. Arnason á 4. borði,
Helgi Ölafsson á 5. borði, Margeir
Pétursson á 6. borði, Ingvar
Asmundsson á 7. borði og Magnús
Sólmundarson á 8. borði. Vara-
menn verða Björgvin Víglunds-
son og Bragi Halldórsson.
Keppnin fer fram á þann hátt
að leikirnir eru sendir milli landa
með fjarrita. Á keppnisstöðunum
á islandi og i Finnalndi veróa
staddir fulltrúar andstæðingsins
til að fylgjast með því að allt fari
eftir settum reglum.