Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977 37 Aðallega abstrakt en gætir oft áhrif a frá náttúrunni Rætt við Guðmund Benediktsson myndhöggvara Sem kunnugt er stendur nú yfir haustsýning Félags ís- ienzkra myndlistarmanna að Kjarvalsstöðum og lýkur henni að kvöldi sunnudags 23. október. Eru verk eftir 41 lista- mann á sýningunni og meðal þeirra er Guðmundur Bene- diktsson myndhöggvari. Blm. Mbl. leit við á vinnustofu Guð- mundar og tók hann tali, en þar var hann að vinna að verki úr eir, sem er eitt þeirra efna er hann notar einna mest. Guðmundur Benediktsson er lærður trésmiður, þúsgagna- smiður, og lauk hann prófi frá Iðnskólanum 1940 og starfaði eftir það í nokkur ár við hús- gagnasmiði, rak verkstæði með bróður sínum. Auk þess sem hann smíðaði, teiknaði hann húsgögn. Um þrítugt, eða árið 1950 hóf hann nám í Myndlist- arskólanum hjá Asmundi Sveinssyni. — Ég var þar við nám í ein 5 til 6 ár, sagði Guðmundur og gekk ég svo í Félag íslenzkra myndlistarmanna árið 1957 og hef því veriö þar félagsmaður í rétt 20 ár. Á þessum árum lagði ég húsgagnasmíðina alveg á hílluna og hóf smám saman að vinna eingöngu að höggmynda- gerðinni og hefur það verið mitt :ðalstarf undanfarin ár. Auk þess að vinna að list sinni hefur Guðmundur starfað mikið í F.Í.M. og m.a. sett upp sýningar: — Það er gaman á fást við að setja upp sýningar, en ég hef gert nokkuð af því að undan- förnu og hef ég gaman af að Á myndunum tveim eru eirmyndir, sem Guðmundur hefur gert á þessu ári en allar þessar myndir eru á sýningunni á Kjarvalsstöð- um. Guðmundur Benediktsson myndhöggvari er hér við störf á vinnu- stofu sinni við Laufásveg 1 Reykjavík. Ljósm. Rax. starfa þannig með myndlistar- mönnum, bæði málurum og myndhöggvurum. Við vorum til skamms tíma fáir, en það er alltaf að fjölga í félaginu, það eru orðnir nokkuð margir, sem leggja leið sína í myndlistar- skóla og það er nauðsynlegt og gott að halda sambandi við fé- lagana. Guðmundur hefur tekið þátt i fjölda sýninga, bæði samsýn- ingum F.Í.M. hér á landi, svo og samsýningum erlendis, norræn- um sýningum, sýningum i Bandaríkjunum, Hannover i Þýzkalandi og Rostoek í Þýzka alþýðulýðveldinu. Um verk sín og efnivið sagði Guðmundur: — Þetta er aðallega skúlp- túr, ég var áður með mynd- rænni verkefni, en hef síðan farið meira út í skúlptúrinn. Hef ég aðallega unnið i tré og M.vndin, sem Guðmundur stendur við, nefnist Skúlptúr og er úr eir. siðar í járn og eir, sem er aðal- efniviðurinn hjá mér núna og hefur verið tvö síðustu ár, eins og verkin á sýningunni bera með sér, þaú eru öll úr eir og unnin á þessum tveim siðustu árum. Abstrakt á aðallega upp á pallborðið núna hjá mér, en ég hef gaman af að rölta um i náttúrunni og sæki verkefni stundum þangað, eða áhrifa gætir stundum frá því getum við sagt. — Vinnudagurinn er nokkuð reglulegur hjá mér, það gengur bezt þannig, en það ruglast kannski eitthvað þegar ntaður er að fást við önnur verkefni um leið. Listasafn íslands á tvær myndir eftir Guðmund Bene- diktsson og hefur mátt sjá þar m.a. á göngum Þjóðleikhússins, skólar hafa keypt verk hjá hpn- um og hann hefureinnig selt til Danmerkur. Að lokum er Guð- mundur Benediktsson spurður I ramhald á hls. t>3 1. des. nefnd stúdenta: „Menntun og mannr éttindi ’ ’ eða „Kvenfrels- isbarátta” MORGUNBLAÐINU hefur borizt fréttatilkynning frá kjörstjórn 1. des. nefndar í Háskóla Íslands: Kosning til 1. des. nefndar 1977 fer fram í Sigtúni við Suðurlands- braut laugardaginn 22. október nk. I framboði eru tveir listar, A- listi VÖKU og B-listi VERÐANDI. VAKA býður fram efnið MENNTUN OG MANNRÉTT- INDI og nefndarmenn: 1. Anna Sverrisdóttir, 2. Auðunn Svavar Sigurðsson 3. Einar Örn Thor- laeius, 4. Kristinn Árnason, 5. Otto Guðjónsson, 6. Stefán Jóns- son, 7. Sveinn Geir Einarsson. VERÐANDI býður fram efnið KVENFRELSISBARATTAN og nefndarmenn: 1. Aðalheiður Steingrímsdóttir, 2. Guðrún Pálina Héðinsdóttir, 3. Jón Ingi Sigurbjörnsson, 4. Mörður Árna- son, 5. Svava Guðmundsdóttir, 6. Þórunn Reykdal, 7. 'Örn Daniel Jónsson. Fundurinn hefst kl. 14 með framsöguræðum beggja lista. Síð- an hefjast almennar umræður. Kosning hefst kl. 15 og stendur þar til mælendaskrá er tæmd, en húsinu verður lokað kl. 17. Stúdentum er bent á að hafa með sér stúdentaskírteini. Kjörstjórn 1. des. nefndar 1977. RENAULT KRISTINN GUDNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 STOR - STÆRRI - STÆRSTUR REIMULT SEnDIBÍIHR Hvort sem flutningsþörfin er lítil eða mikil þá er hægt að fá Renault sendiferðabíl sem hæfir þörfinni. Við getum útvegað sendiferðabíla með burðarþoli frá 420 kg til 1000 kg. Renault sendiferðabílar eru á mjög hagstæðu verði og rekstrarkostnaður er í lágmarki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.