Dagblaðið - 29.04.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 29.04.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1977 — 96. TBL. RITSTJÓRN SÍOUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11. AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AOALSÍMI 27022 (lOlinur). Óhugnanlegt ástand við Kísiliðjuna: Þriðja þróin er að því komin að bresta — skrifstofan að hrynja —menn horfa á sprungurnar myndast íjörðunni „Þrærnar eru lífæð Kísilgúr- verksmiðjunnaroggera vinnslu mögulega á vetrum, því dæling efnis úr Mývatni fer aðeins fram að sumarlagi. Tvær af þremur þróm eru brostnar og svo margsprunginn botn þeirra að óvíst er hvort nokkru sinni verður hægt að nota þær. Nú eru að myndast smásprungur í veggi þriðju þróarinnar. Hún er full af kísilgúr og var eina efnið sem verksmiðjan átti óunnið. Dæling í hinar þrærnar átti að vera hafin, en hún dróst á langinn vegna veðurs. Fram- tíð Kísilgúrverksmiðjunnar er því mjög óviss. Útlitið er vægas't sagt svart.“ Þannig sagði Garðar Sverris- son, verkfræðingur verksmiðj- unnar frá í samtali í morgun. Hann lýsti ástandinu áfram: „Verksmiðjusvæðið allt er krosssprungið. Skrifstofubygg- ingin er mjög illa farin. Þetta hús, á 3. hundrað fermetrar og einnar hæðar, hafði nýlega fengið andlitslyftingu fyrir 5—6 milljónir. Nú hefur það sprungið og gliðnar og eru sumar sprungurnar orðnar 5—7 sentimetrar. Húsið er allt orðið skakkt, hurðir skakkar og gluggar eru að byrja að losna úr. Gliðnun hússins heldur áfram. Við mælum þetta af og til og frá því í gærkvöldi hafa sprungurnar breikkað um allt að 2 cm. Þak hússins er steypt og er það nú allt orðið kross- sprungið og erum við orðnir hræddir um plötuna. Ýmsar aðrar byggingar eru á staðnum, yfirleitt stálgrindar- hús á steyptum plötum. Plötur allra húsanna springa jafnt og þétt. Við höfum enn ekki kannað undirstöður sjálfra tækjanna. Aðalvatnsleiðsla til verk- smiðjunnar er í sundur á 2 stöðum. Reynt hefur verið að íera við hana en hún gliðnar jafnharðan sundur. Sima- strengurinn fór í sundur á 3 stöðum en viðgerð er lokið á honum. Það alvarlegasta er að þetta allt heldur áfram með jöfnum hraða og er enga grein hægt að gera sér fyrir hvar þetta endar. Við höfum verið að ræsa eina og eina vél og enn virðast þær vera óskemmdar, þær sem við höfum reynt. Skemmdirnar er ekki hægt að mæla í tölum en þær fara að skipta milljörðum. En mesta tjónið verður samt í því ef verk- smiðjan stöðvast, því það hefur ótaldar afíeiðingar hér i sveit og á Húsavík. Sérfræðingar eru ýmist komnir eða að koma til að líta á hlutina og athuga hvort eitt- hvað megi við gera.“ Þessi hrikalega lýsing helzta tæknimanns verksmiðjunnar þarfnast ekki frekari skýringa. -ASt. STÓRARSPRUNGUR íNÁMA SKARÐIOG NÁMAFJALLI — Hús í Reykjahlíðarhverfi að eyðileggjast, annaðað skemmast v „Sprungumyndun heldur hér látlaust áfram,“ sagði Garðar Sverrisson verkfræðingur Kísiliðjunnar í samtali við DB. „Núna í morgun eru að mynd- ast stórar sprungur í Náma- skarði. Þær ná upp i Náma- fjall. Þær sjást héðan frá verk- smiðjunni og sums staðar legg- ur gufu upp úr þeim. Létt- steypan heitir fyrirtæki, sem er hérna skammt frá verksmiðj- unni. Þar rétt við er t.d. gufu- strókur upp úr sprungu. Eitt hús í Reykjahlíðarhverfi er orðið illa farið. Það skemmdist líka í síðásta gosi. Nú er það enn verr farið en áður. Þar býr Þorsteinn Ólafs- son, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar, en áður bjó þar Björn Friðfinnsson. Þetta hús er orðið krosssprungið nú og tekið að skekkjast. Þá eru að myndast sprungur í símstöðinni. Það er ekki alvar- legt, ennþá aðallega í tröppum, sagði Garðar. Garðar kvað fólk í hverfinu taka þessu með rósemi. Einhverjir fóru með börn, sem urðu hrædd, á aðra staði í sveitinni. Þá lék allt á reiðiskjálfi hér og uppi í verk- smiðju voru þetta eins og sprengingar beint undir fótum manna, svo nálæg eru upptök verksmiðjunni. -ASt. Þannig krossspringur jörðin um alla Mývatnssveit og er ekkert lát á gliðnun i jörðinni. Sumar sprungurnar eru stórar, aðrar smáar. Hér er ein á veginum nálægt Kisiiiðjunni. Hún er tekin frá norðri til suðurs og má greina Hverfjall í baksýn. — Ljósmynd Erlingur Sigurðarson. Konurnar eiga senuna—en karlarnir fá að sprikla íhádeginu — bls.8 íslendingar í bjórbænum Miinchen: bjór, — bls. 9 „Stemma þarf stigu við hernaðar- bandalögum, Alþýðubandalaginu og Varsjárbandaíaginu” - Sjá bis. 8 Amin, Desai og Ram — þeir eru allir á íslandi! - bis. 5 Maðurinn gegn bákninu KjaUari á föstudegi Vilmundur Gylfason ábls.ll Um íslenzk deilumál: Lausnir sem báðir aðilar geta unað — leiðari á bls. 10

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.