Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 240. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Bíómynd um unga stúlku Helstu kostir Dísarsögunnar eru á sínum stað | Menning Lesbók | Haustbækurnar koma  Bíótek og Austurbæjarbíó Börn | Gott að kunna að vera bæði hávær og blíður Íþróttir | Íslendingar léku sér að Búlgörum  Birgir og Björgvin í baráttunni „ÞAU eru á lífi, þau eru á lífi,“ hrópuðu rússneskir sérsveitamenn til örvænting- arfullra foreldra eftir að látið var til skar- ar skríða í gær gegn hryðjuverkamönn- unum, sem í næstum þrjá daga höfðu haldið mörgum hundruðum manna, að- allega börnum, í gíslingu í skóla í bænum Beslan í Suður-Rússlandi. Í allri ringul- reiðinni eftir árásina, miklum sprengju- gný og ákafri skothríð, hlupu börnin hljóðandi út úr skólanum, sum nakin en önnur á nærfötunum. Interfax-fréttastofan rússneska sagði í gær, að meira en 200 manns hefðu týnt lífi meðan á gíslatökunni stóð og í átök- unum í gær. Í gærkvöld var búið að bera kennsl á um 95 lík en talið er, að hryðju- verkamennirnir hafi verið búnir að taka marga af lífi áður en ráðist var gegn þeim. Farið var með á sjöunda hundrað manns á sjúkrahús, þar af á þriðja eða fjórða hundrað barna. Tíu arabar í hópnum Barist var við hryðjuverkamennina fram eftir degi í gær. Reyndu nokkrir þeirra að komast frá bænum en voru vegnir eftir mikil átök um hús, sem þeir flúðu inn í. Aðrir reyndu að dyljast innan um gíslana og þrír menn að minnsta kosti vörðust áfram í kjallara skólahússins. Voru þeir felldir. Talsmaður hersins sagði í gærkvöld, að þrír hryðjuverkamenn af 27 hefðu verið teknir lifandi en hinir skotnir. Áður hafði komið fram, að í hópnum hefðu verið tíu arabar en aðrir Tétsenar. Meginkrafa þeirra var, að Rússar færu frá Tétsníu. Þjóðarleiðtogar víða um heim for- dæmdu í gær hryðjuverkið í Beslan. Blóði drifin endalok gíslatöku í Rússlandi Allir hryðjuverka- mennirnir felldir eða handteknir  Særð/16 SAMKOMULAG hefur náðst milli Símans og eig- enda eignarhaldsfélagsins Fjörnis, sem á 26,2% hlut í Skjá einum, um kaup Símans á félaginu. Fjörnir á jafnframt félagið Íslenzkt sjónvarp, sem á útsend- ingarréttinn á ensku knattspyrnunni hér á landi. Í framhaldi af gerð kaupsamnings er gert ráð fyrir að á næsta ári verði m.a. enski boltinn og fleira efni selt í læstri dagskrá um stafrænt dreifikerfi Símans. Í tilkynningu frá Símanum kemur fram að félagið hyggist bjóða upp á stafrænar sjónvarpsútsendingar um hefðbundna símakerfið með DSL-tækni og bæta þannig nýtinguna á fjarskiptakerfi sínu. Gunnar Jóhann Birgisson, sem fer fyrir eigendum Fjörnis, segir að Íslenzkt sjónvarp sé hugsað sem efnisveita, sem kaupi og selji sjónvarpsefni. Enski boltinn sé þar á meðal, en meira efni bætist við á næstunni. „Við hugsum sérstaklega til þess að félag- ið muni selja þeim rásum, sem verða á hinu nýja stafræna dreifikerfi Símans, efni, þannig að þær geti staðið sig í samkeppni á fjölmiðlamarkaði og boðið upp á frambærilegt efni, sem hefur svo vænt- anlega þær afleiðingar fyrir Símann að fólk hefur áhuga á að verzla við fyrirtækið og kaupa afruglara hjá því,“ segir Gunnar Jóhann. Hann segir að ein forsenda samningsins sé sú að Íslenzkt sjónvarp fái aðgang að myndlykla- og áskriftarkerfi Símans. Hann segir það sannfæringu sína að samkomulagið efli Skjá einn í framtíðinni. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er hugsanlegt að fleiri fjárfestar komi að kaupunum ásamt Símanum. Samkomulag um að Síminn kaupi 26,2% hlut í Skjá einum Enski boltinn og fleira sjónvarpsefni í læstri dagskrá á fjarskiptakerfi Símans á næsta ári  Síminn fær/10 BILL Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var lagður inn á sjúkrahús í New York í gær þar sem gerð verður á hon- um svokölluð hjá- veituaðgerð. Full- yrti New York Times, að Clinton hefði fengið hjartaáfall. Aðgerðin verð- ur eftir helgi en CNN sagði, að hann hefði haft verki fyrir brjósti og verið mjög þreyttur síðustu daga. Eins og kunnugt er var Clinton staddur hér á landi í síðustu viku ásamt Hillary, eiginkonu sinni. Guð- mundur Þorgeirsson hjartalæknir sagði í gær, að eftir fréttum að dæma væri um að ræða þrengsli í fjórum kransæðum og framhjá þeim þyrfti að veita. Sagði hann, að hér væru að- gerðir af þessu tagi á bilinu 160 til 180 á ári. Ferlið hér að sögn Guðmundar er það, að eftir aðgerð fara sjúklingar á gjörgæsludeild og eru þar í einn sól- arhring. Eru þeir vanalega komnir heim eftir tíu daga og þá tekur við tveggja mánaða endurhæfing. Clinton fer í hjarta- aðgerð Bill Clinton MAÐUR hleypur burt með barn skömmu eftir að rússneskir sérsveitamenn réðust til atlögu við hryðjuverkamennina. Sagt er, að árásina hafi bor- ið þannig að, að sprengja, sem gíslatökumennirnir festu með límbandi undir loft í skólanum, hafi fallið niður og sprungið. Við það hrundi þakið og reyndu þá margir gíslar að flýja. Skutu hryðjuverkamennirnir á fólkið og til að bjarga því var ákveðið að láta til skarar skríða. Reuters Börnunum forðað burt SIGURÐUR G. Guðjónsson, útvarpsstjóri Íslenzka útvarpsfélagsins, sem rekur Stöð 2, Sýn og fleiri stöðvar, segir að samkeppnisyfirvöld hljóti að láta kaup Símans í Skjá einum til sín taka. „Maður reiknar með að samkeppnisyfirvöld taki nú á mál- inu og skipti Símanum upp þannig að sjónvarps- rekstur hans standi einn og sér,“ segir Sigurður. Heimildir Morgunblaðsins herma að þegar fréttist af samkomulagi Símans og Fjörnis í gær hafi forsvarsmenn Norðurljósa, móðurfélags ÍÚ, tekið það afar óstinnt upp og m.a. leitað til Björg- ólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs Lands- bankans, um að hann beiti sér fyrir því að kaup- samningur gangi ekki eftir, en bankinn er helzti lánardrottinn Íslenzka sjónvarpsfélagsins. Björg- ólfur vildi ekki tjá sig um málið í gær, að sögn talsmanns hans. Verði skipt upp GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, fengi 52% atkvæða ef nú væri kosið samkvæmt skoðanakönn- un, sem birt var í gær. Kemur þetta fram í könnun tímaritsins Time en hún gaf John Kerry, frambjóðanda demókrata, 41% atkvæða. Var könn- unin gerð er flokksþing Repúblik- anaflokksins stóð yfir í New York. Bush með gott forskot New York. AFP.  Hét/18 ♦♦♦ Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.