Tíminn - 24.12.1956, Qupperneq 1

Tíminn - 24.12.1956, Qupperneq 1
Jólahugleiðing ÐARVEG eftir séra Árelíus Níelsson „Fyrir náð Guðs mun Ijós af hœðum vitja vor, til að lýsa þeim, er sitja í myrkri og skugga dauðans, til að beina fótum vorum á friðarveg“. Lúkas. Fingvr jólaengilsins slá alla mildustu og göfugustu strengi mannssálnanna. Enginn strengur ómar pó bjartar á peirri hörpu en vonarstrengur friðarins. Friður, friður á jörðu er mannkynsins Ijúfasti framtíðardraumur. Fátt hefur samt orðið meiri blekking og vonbrigði viðkvœmri sál. En friðarpráin er eilíf. Hún getur ekki dáið, prátt fyrir öll vonbrigði, alla ósigra. Með fœðingu Krists, með boðskap spámannanna eignaðist pessi prá nýja vœngi, nýjan Tcraft. Með hverri kynslóð hefur hún risið hœrra og hærra, líkt og alda lífsins sjálfs. Ljós jólanna, dýrmœtasta náðargjöf alföður gaf vissu hverri trúaðri sál, vissu um að friðarvon mann kynsins hlyti að rœtast. Allar stjórnmálastefnur hafa tileinkað sér eitthvað af pessu Ijósi hœðanna. Án pess mundu pœr engri próun ná. En margar stefnur og hugsjónir hafa svo gleymt pessu Ijósi, jafnvel talið pað tefja framgang sinn og framkvæmdir. En pá hefur allt hverfzt peim til óheilla. Án Ijóssins af hœðum, trúarljóssins í sálunum verður aldrei fetað um friðarvegu og framfara í veröldu vorri. Það sannar öll saga mannkyns. Öll heimsdýrð, hvort heldur í austri eða vestri, sem œtlar sér að vermast við önnur Ijós, piggja Ijóma sinn frá mýrarljósum mannlegrar skammsýni hlýtur að hjaðna og hverfa út í myrkrin sem hjóm. Og pœr pjóðir, sem œtluðu sér að vermast og ganga um við Ijós manndýrkunar og kraft frá hásæt- um guðlausra valdhafa, pœr sitja óðar en varir í myrkri og skugga dauðans, sé pað ekki í dag, pá verð- ur pað á morgun. Stórveldi hjaðna og hníga, drottnar heimsins berjast og hverfa, en Ijósið af hœðum héldur áfram að skína öllum peim, sem prá pað og óska að ganga við birtu pess. Morgunstjarna pessa Ijóss Ijómaði hin fyrstu jól og pað lýsir frá boðskap Krists hinum pjökuðu og pjáðu. Fyrr eða síðar mun pað „lýsa peim, sem Ijósið prá en lifa í skugga“. Sólin slokknar ekki, pótt skammdegisskýin byrgi hana. í Ijósi guðstrúarinnar rœtast heitustu bœnir mannlegra vara. í pví Ijósi einu verður hatrinu hafn- að og hjálp veitt. Það logar á arni hinna sameinuðu pjóða. Það birtist í hverri bæn hræddrar móður, hverri gjöf hinum örbirga til handa, hverri löggjöf, sem eflir réttlœtið, hverri ræðu, sem eflir sannleiksást, hverri fórn, sem eflir frelsi, jafnrétti og bræðralag manna og pjóða. Það eitt, Ijós guðstrúarinnar, litla jólaljósið, sem skín í myrkrinu, milt, hógvært, kveikt af englahönd- um barnslegs sakleysis, brosandi í samhljóman við friðarbæn mannshjartans, pað eitt getur beint fótum manna á friðarveg, veginn til sannrar farsældar og framsækni. Reyndu að ganga við birtu pessa Ijóss pú leiðtogi og kennari, stjórnmálamaður, blaðamaður, einkum pið, sem gefið tóninn í hinni miklu symfóníu samfé- lagsins. Án pessa Ijóss leiðir blindur blindan og báðir falla í grö4;. Horfði inn í sál pína. Horfðu svo til himins. Ertu áreiðanlegc búinn að kveikja jólaljós sálar pinnar við Ijósið af hœðum, Ijós kœrleikans, Ijós Guðs. Sé svo, pá getur pú öruggur haldið fram í bar- áttunni fyrir bættum heimi og fegri veröld, pú munt pá beina fótum manna á friðarveg. GLEÐILEG JÓL! Árélíus Níélsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.