Tíminn - 24.12.1956, Blaðsíða 16

Tíminn - 24.12.1956, Blaðsíða 16
16 ★ JÓLABLAÐ TÍMANS 1956 * á hótelherbergi sín, umferðin virt- ist stöðugt fara minnkandi, fólkið hvarf smám saman af götunum. ■ Annars er umferðamenning eyj- arskeggja hin furðulegasta. Þeir eiga mikinn fjölda af amerískum bifreiðum. Göturnar eru afar f þröngar, og mjög lítið um umferða- } ljós. í hvert skipti sem bifreið nálg- F ast götuhorn, sem eru mörg í borg- f inni, þeytir bifreiðastjórinn horn sitt svo undir tekur í nágrenninu >— ef ekki heyrast aðrar eins drun- ur hinum megin við blindhornið i ekur hann áfram fyrir hornið á ! 'ullum hraða eins og ekkert hafi 1 Iskorizt, en ef annar bíll er á leið- inni, er stigið svo fast á hemlana svo að ískrið glymur og bergmálar f i öngsundunum. Verður úr þessu | hinn furðulegasti samsöngur, sem f hljómar heldur annarlega í eyrum f ókunnugra, en innfæddum finnst f sýnilega ekkert til koma. r f 'Jafnvel nœturKlubbarnir I tœmdust. Eftir því sem leið á kvöldið í minnkaði umferðin meir, götusal- f arnir virtust vera eitthvað miður sín, leigubílstjórar voru með ró- f legra móti — hreint ekki svo á- leitnir og jafnvel næturklúbbarnir virtust ekki vera svo þétt setnir, sem gera hefði mátt ráð fyrir. Ein- ! hver annarlegur andi ríkti yfir | allri borginni. Ef einhver gerði til- I raun til að taka myndir, komu her- menn á vettvang og gerðu filmur j og myndavélar upptækar og oft varð ég vitni að því, að þeir dreifðu f mannfjölda á götuhornum. j Rétt fyrir miðnætti heyrðust mikl ar drunur og dynkir skammt frá ] hótelherbergi mínu og ferðafélaga | minna, sem virtist koma frá ráðhús | inu og síðan heyrðist greinileg skot- ! hríð. Skömmu síðar varð allt kyrrt og hljótt að undanteknum hinum f furðulegu hljóðmerkjum bilanna, í sem óku með ofsahraða fram og ! aftur um borgina. Síðar kom i ljós, í að hinn annarlegi svipur á borginni og allur þessi hermannafjöldi áttl sér góðar og gildar skýringar. Við þóttumst hafa skilið það í kvöld- j blöðunum með htnni takmörkuða spönskukunnáttu okkar, að þetta kvöld hefði yfirmaður leynilög- reglu einræðisherrans verið myrt- ur og væri morðingjanna leitað. En það var meira sem hér lá að baki, en ekki varð það llióst fyrr fyrr en komið var hálfa leið frá eynni. Auður og örbirgð. Einhvernveginn varð ekki kom- izt hjá því að álykta, að ásamt miklum auði fárra væri hér ægi- leg fátækt — hér voru glæsileg hverfi auðmanna, en stór og öm- urleg fátækrahverfi. Auður og ör- birgð mætast sannarlega í sumum hlutum Havana. Óhrein og illa klædd börn leika sér í öngstræt- unum, en auðmennirnir aka þar fram og aftur í gullslegnum Cadil- lac-bifreiðum með einkabifreiða- stjóra. Það er ákaflega algeng sjón í borginni og eitthrað annað, en menn eiga að venjast yfir í Banda- ríkjunum, þar sem allir eiga bíla, en aka þeim sjálfir allflestir. Ferðafélagar mánir voru allir Bandaríkjamenn, sem aldrei fyrr höfðu komið út fyrir land sitt. Bjuggum við á ævafornu hóteli í gamla hverfinu. Kvað þetta vera eftirieetishótel rittiöfundarins Hem ingway’s, og mun hann hafa ritað bók sína „Vopnin kvödd* á þessu hóteli. Þykir mörgum túristum þetta hin feikilegustu tíðindi og senda út marga tugi póstkorta til að skýra frá þvi, að þeir hafi sofið í sama herbergi og Hemingway rit- aði bækur sínar. Náttúrufegurðin er mikil utan við borgina og baðstrendur með miklum ágætum, en því miður tókst okkur ekki að skoða aðra hluta landsins sem skyldi — verð- ur það að bíða betri tíma. Áður en varði, var helgin á enda — það var kominn mánudagur og tími tii að halda á brott. „Svo þú ert Kanadamaður“. Ungur maður, dökkur yfirlitum, sat við hliðina á mér í flugvélinni yfir til Florida. Hann hélt á stór- um gítar í kjöltu sinni. Annan far- angur hafði hann ekki. Við fórum strax að spjalla saman. „Svo þú ert Kanadamaður“, seg- ir hann, „mér heyrist það á fram- burðinum". „Nei, ekki er það nú — ég er frá íslandi“, svaraði ég. „íslandi, þar hlýtur að vera kalt“. „Ekki svo slæmt“, svaraði ég — „heitara en í New York“. „Ég hef heyrt, að þróunin hafi verið ör hjá ykkur síðustu árin — var það ekki annars íslendingur þessi Eiríksson, sem fann landið okkar, þó að ég sé kaþólskur dett- ur mér ekki í hug að halda því fram, að það hafi verið Kolumbus, sem fann Ameríku, það var þessi Eiríksson og enginn annar“. „Jæja, svo þú ert Bandaríkja- maður, ég hélt, að þú værir eyjar- skeggi, en hvað var eiginlega að gerast í Havana um helgina?“ Það var uppreisn á ferðum. „Já, Bandaríkjamaður er ég, en fæddur á Kúbu og þar eru for- elörar mínir — um helgina var gerð byltingartilraun í Havana, byltingarsinnar reyndu að steypa Batista af stóli, heir myrtu yfir- mann leynilögreglunnar, reyndu a5 komast undan, margir þeirra sluppu, en 15 þeirra voru skotnir til bana í sendiráði Haiti í fyrra- dag — svo köstuðu þeir sprengju á ráðhúsið rétt eftir miðnætti — aðalforystumaður byltingarsinna er nú í Ameríku til að reyna að afla fjár og vopna til að steypa ein- veldinu — hann vill frjálsar kosn- ingar í landinu og afnám einræðis- ins. Búizt, er við að fleiri tilraunir til stjórnarbyltingar verði gerðar á næstunni, því að margir vilja losna við Batista, en hann hefir her og lögreglu á bak við sig og beitir óspart hervaldi“. „Mér þykir þú segja fréttir —• annars er það fjandi hart að hafa verið viðstaddur byltingartilraun, en vita þó ekki af henni — en hvað viltu annars segja mét ur\ stjórnarfarið?" „í landinu mínu gamla er auðn_ og örbirgð, þar eiga ríkis landeig- endur mest alla eyna, en ráða til sína bláfátæka leiguliða, Batista er einræðisherra, stjórnarfarið er slæmt, anzi slæmt, skal ég segja þér“. _______________ ^ —...... „ — Með fólkinu — 1 með fólkinu ..." Það voru örfáir dagar til kosn- inga og ég spurði hann um kosn- ingabardagann á Florida. „Ég er með Stevensson og það eru flestir á Kúbu líka — hann er með okkur fátæka fólkinu — hann þekkir okkur, við ætlum að klósa hann, annars er Eisenhower góður líka, en flokkur hans er ekki okkar flokkur". „Hvað ertu annars að gera með þennan gítar?“ spurði ég. „Ég skrepp alltaf nokkrum sinn- um á ári yfir til gömlu, góðu Kúbu. Ég leik og syng með gömlum félög- um mínum, ég ferðast frá einum bænum til annars og leik á gítar- inn minn, ég er farandhljóðfæra- leikari, ég forðast fínu staðina, fína fólkið, á Kúbu er fólkið fá- tækt, mjög fátækt, en það er gott fólk með góð hjörtu. Ég vil lifa með fólkinu, með fólk- inu....“ — Vélin var nú komin yfir syðsta odda hins fagra Florida-skaga — og innan skamms snertum "ójS bandaríska grund á ný. Ég kvaddi þennan sessunaufi minn. — „Færðu íslenzka fólkinu mínar beztu kveðjur, sagði hann, þar hlýtur að vera gott fólk, þang- að vildi ég fara með gítarinn minn“. Ferðinni til lýðveldisins Kúba var lokið, enn stjórnar Batista landi og lýð, en kannski fáum við bráðum að heyra um nýja stjórn- arbyltingu, og ef hún tekst þá fer gítarleikarinn okkar áreiðan- lega aftur til heimalands síns, til fátæka fólksins með hjörtun góðu. h. h. I í I VV.VAY.V.V.V.V.VAV.V.W.V.V.V.V.V.V/AV.’.VAVrV.V Súgfiröinga Suðureyri — Súgandafirði UMBOÐ FYRIR: Samvinnutryggingar g.t. Andvöku g.t. TEKUR í UMBOÐSSOLU: Margar innlendar framleiðsluvörur. SELUR: Allar tegundir búðarvara. Gleðileg jól, jarsælt koviandi ár! Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Kanpfélag Súgflrilni P.'.W.V.V.V.V.VV.’.V.V.V.V.V.VA'AVi/AWTAV.VAVA'.'.W.V Veðursæld er mikil á Kúba og njóta íbúar og ferðamenn hitabeltissólarinnar á baðströndunum allt árið um kring. Sökum hinnar kyrru veðráttu er mikið gert af því að sigla á skemmtibátum og snekkjum af öllum stærðum við hina löngu strandlengju. Á myndinni sést skemmtisnekkja í höfn á norðurströndinni, skammt frá Havana.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.