Tíminn - 24.12.1956, Qupperneq 10

Tíminn - 24.12.1956, Qupperneq 10
1D ★ JÓLABLAÐ: TÍMANS 1956 * SÍMAR 7080 & 2678 varpið. Stundum skildi Mikki það eftir í gangi þegar Sámur var skil- inn einn eftir heima og eitt kvöld- ið hafði hann séð úrslitakeppni á hundasýningu. Engin siðprúð hefðarmær á 19. öld sem skyndilega hefði komið inn á nútíma fegurðarkeppni hefði hneyklast innilegar en Sámur við sjónvarpstækið þetta kvöld. Hárin risu eftir endilöngum hryggnum á honum og augun ætluðu út úr höfðinu á honum. Að hugsa sér að láta rannsaka á sér fæturna, mæla á sér skottið og gagnrýna í sér tennurnar frammi fyrir aragrúa af áheyrendum ekki aðeins í einum samkomusal heldur á hverju heim- ili í öllu samveldinu — allt þetta ógnaði honum allt að innsta grunni sálarinnar. Og eftir þetta kvöld var hann tröllriðinn af ótta við að þurfa að koma sjálfur fram, að þurfa að láta eins og bjáni í sjónvarpinu til að skemmta dauðleiðum hundum um allt landið. Hann titraði af skelfingu í hvert skipti sem honum kom þetta í hug. Nú sló klukkan, hana vantaði ennþá fjórðung i tólf. Sara söng ennþá en það var greinilegt að hún var að ljúka við að búa sig. Sámur fann lyktina af ilmvatni hennar og vissi að hún var að koma. Hann leit á Mikka og samúð hans var svo mikil að hann skynjaði óhamingju hans enn átakanlegar en Mikki sjálfur. Nú var hann ekki hrædd- ur lengur. Hann reis upp á aftur- lappirnar og studdi sig við hnéð á Mikka og safnaði saman allri þeirri orku sem hann átti í eigu sinni. Ég elska þig, sagði hann hátt og skýrt. Mikki virti hann fyrir sér þung- lyndislegum augum. Hann strauk hundinum um mjúkan kollinn og fitlaði við silkimjúk eyru hans. Ég veit það, gamli minn, sagði hann annars hugar, ég veit að þú gerir það. Þeir sátu grafkyrrir. Mikki hafði næstum látið huggast og Sámur var mállaus af gleði yfir að hætt- an var liðin hjá, þegar Sara kom inn nokkrum mínútum síðar. Hún staðnæmdist í dyrunum og leit for- vitnislega í kringum sig, sakbitin og skömmustuleg eins og lítil telpa. "Hún var skínandi fögur. (Rétt eins og hún — hún sem ég elska, hugs- aði Sámur.) Að lokum gekk hún til Mikka. Við hvern varstu að tala? Ein- hver var hér, ég heyrði til þín. Mikki virti hana rólega fyrir sér. Ég var að rabba við bezta vin minn, sagði hann virðulega. Hann er prýðilegur félagi og miklu skemmtilegri félagsskapur en ein- hver ruslaralýður í kjallarakompu niður við fljót. Það fer vel um okk- ur, er það ekki Sámur? Sámur var of yfirbugaður til að svara. Hann opnaði munninn og reyndi en kom ekki upp einu ein- asta orði. Sara skellti upp úr. Hún faðmaði Mikka að sér og settist á hné honum og gældi við Sám með fætinum. Elskurnar mínar, sagði hún, þið eruð dásamlegir bjánar. En þetta þýðir ekkert, Mikki. Ég elska þig meir en nokkur annar í heiminum. Þú ert svo mikill bjáni. Hver annar en þú gæti setið hér og gert Sámi upp rödd til að hafa einhvern að tala við? Allt í lagi. Þið vinnið. Við skulum vera heima. En hvað voruð þið að segja hvor öðrum, leyndar- mál? Við töluðum um fjölskyldulíf, sagði Mikki. Sámi leiðist að sitja alltaf einn heima og horfa á sjón- varp. Sámur dillaði skottinu til sam- þykkis. Það var einmitt þetta sem honum geðjaðist við Mikka. Hann skildi mann og kom aldrei upp um leyndarmál. Kannski hefði hann haft orð á þessu ef klukkan heíöi ekki slegið tólf rétt í þessi* ostur ostur ostur 45% 40% 30% Gráðaostur Smurostur Góðostur Rjómaostur Mysuostur Mysingur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.