Tíminn - 24.12.1956, Blaðsíða 26

Tíminn - 24.12.1956, Blaðsíða 26
26 * JÓLABLAÖ TÍMANS 1 95.6 ★ í bókasafni Grímseyinga. Flestar tegundir hans eru farfugl- ar. í Grímsey hafa verið taldar nokkuð yfir 60 tegundir fugla og vitað er með vissu að það verpa 22 fuglategundir. Fuglamergðin er svo mikil af nokkríim þessara tegimda, ' að segja má að eýjan sé hernumln af fugli yfir súinarmánuðina' Áoál- ' lega á þetta þó við um biörgin. Fýll er eini bjargfuglinn, sem ekki kveður að haustinu, heldur | dvelur í eynni yfir veturinn. Þá er líka rúmt um hann í bjarginu. — ' Stuttnefja er sá bjargfugl, sem 'nyt- 1 samastur er fyrir búskap eyjabúa, en lundinn er líka arðsamur c.g | verpir ekki í bjarginu sjálfu, held- ' ur í brekkum við bjargbrúnina. Þegar fuglinn kemur i bjargið að vorinu má segja að Grímsey fái 1 nýjan svip. Eftir það verður aldrei j þögn, eða kyrrð í loftinu við biörg- I in, sem dag og nótt bergmála af ! sífelldum klið og vængjataki. f Við eggjatökuna er sigið í björg- i in og hefir það lengi verið íþrótt f frækinna Grímseyinga, sem sumir hafa líka borið beinin undir björg- t unum, þegar þessi karlmennsku- raun hraustra og hugdjarfra | manna hefir endað með harmleik. I Spánverjar segja, að í uppeldinu ! megi það aldrei gleymast, að gæj ast ! inn um dyr dauðans. Víst er um það, að meðan sigið er í björg í Grímsey fer æskan þar ekki á mis t við þá uppeldisskyldu. Þannig fara saman lífsskoðanir, sem mótast við aðstæður fólks, sem býr norðan við ■ heimskautsbaug í Grímsey, og suð- ur á sólheitum ströndum Spánar, ! þar sem blóðið er ótaminn eldur í ! ungu hjarta. Margar eru sögurnar til um glímu Grímseyinga við björgin. Lengi var það trú fóiks að tröll byggju í björgunum og yrðu slys við bjargsig af þeirra völdum, er þeim ! þótti orðið ónæðisamt um of af mannavöldum, við bæjardyrnar. Alkunn er sagan um loppuna loðnu, sem kom út úr björgunum og skar i á þráðinn. Gegn hinni loðnu loppu | dugði ekkert nema bænir og helg- ur söngur. Saga er sögð af presti einum sem á þrettándu öld seig ! sjálfur í bjargið, þar sem slys höfðu j orðið tíð. Hann lét syngja sálma j hátt og snallt á bjargbrún á meðan i hann dvaldi niðri. Sagt er að á meðan hafi hann brotið með bar- efli hvössustu eggjarnar í bjarginu, sem voru hin raunverulega orsök slysanna. Enn þann dag í dag hafa menn þá trú að ekki sé gæfulegt að síga í þá hluta bjargsins; söm ekki hafa. hió'tið blessun biskups frá fornu fari. Fvrr á tímum var fugla og eggja- tekjan einn mikilvægasti bjargræð isvegur Grímseyinga. Samkvæmt jarðamati er fuglatekjan metin 6190 og eggin 4580. Fyrr á öldum voru þessar tölur þó margfallt hærri. Hver bær é. sinn hlut í bjarg- inu og samkvæmt gömlum skiþta- reglum í Grímsev fær sigmaður þriðjung aflans úr biörgunum. Á sumrin, þegar eggja og fugla- tekjunni er lokið úr björgunum er venja að efla til mikillar veizlu, og gleðskapar. Borðar þá hver eins og hann getur af eggjum og síðan er dansað og sungið fram undir morg- un. Aflinn er síðan búinn til vetr- argeymslu á heimilunum. Eggin geymd í mjölsekkjum, svo ekki komi að þeim loft en fuglinn salt- aður niður í tunnur. í Grímsey eru vetrarnæturnar langar og dimmar og skammdegis- kvöldin löng. Ef til vill er það ein- mitt hinum löngu skammdegis- kvöldum að þakka að í Grímsey hefir þróast merkileg og sérstæð menning í þjóðlegum stíl. Um alda- raðir var manntafl þjóðaríþrótt Grímseyinga og stóðu þeir lengi flestum íslendingum framar í þess ari hugvitssömu íþrótt, sem jafn- framt var þeim góð dægradvöl í skammdeginu við norðurskaut. Margar sögur eru til um Gríms- eyinga að manntafli og erlendum ferðamönnum, sem til landsins komu á átjándu og nítjándu öld, fannst mikið koma til þessa hæfi- leika eyjarskeggja og kölluðu Gríms ey paradís skákíþróttarinnar við norðurpól. Á miðöldum er sagt að gengið hafi verið út frá því sem vísu, að allir Grímseyingar kynnu góð skil á manntafli og erfitt væri að máta þá. Fræg er sagan um fjórtán ára strák úr Grímsey, sem kom til Hóla, meðan þar var biskupssetur og höf- uðból íslendinga norðan fjalla. — Hinn ungi Grímseyingur kunni ekki að umgangast höfðingja, eins og menn ætluðust til'á meginlandinu. í Grímsey voru allir jafnir. Meðan faðir hans, sem drengur var í fylgd með að Hólum, beið eftir viðtali við höfðingja staðarins gékk bisk- upinn um stofurnar þar sem gestir biðu. Stóðu þá allir upp og tóku virðulega ofan fyrir biskupi. Þegar biskup var farinn spurði drengur hver sá hinn mikli maður hefði verið. Hann hlýtur að vera góður taflmaður úr því menn bera svo mikla virðingu fyrir honum, sagði strákur. — Hvaða vitleysa, sögðu þá nærstaddir. En hinn ungi Grímseyingur færði enn rök fyrir sínu máli og sagði, að ekki gæti hjá því farið að biskup væri frábær af- reksmaður í manntafli, því prest- urinn heima í Grímsey væri næst bezti taflmaðurinn á eynni. Biskupi bárust þessi ummæli til eyrna og lét hann senda eftir hin- um unga Grímseyingi og færa hann fyrir sig. Hann spurði drenginn um orðaskiptin sem átt höfðu sér stað. Sagðist drengurinn hafa spurt staðarmenn hvort biskup væri ekki snjall taflmaður, því ef þú teflir vel, þætti mér gaman að tefla við þig bætti strákur við. Nú vildi þannig til að biskup var einmitt ágætur taflmaður og fannst talsvert koma til skákíþróttar sinn ar. Lét hann þegar í stað færa sér taflborðið og mennina, hóf að tefla viö Grímseying og hætti ekki fyrr en hann var búinn að tapa þremur skákum. — Hver hefir eiginlega kennt þér manntafl strákur, er sagt að biskup hafi þá sagt. Strákur sagðist hafa lært af föður sínum og fólki hans heima í Gríms ey, þar sem oft væri setið aö mann- tafli á löngum vetrarkvöldum. Ég held nú samt að þú hafir gleymt bænum þínum og lært manntafl af kölska sagði biskup og var bitur í skapi vegna hrakfar- anna. Ef satt væri, segir þá strákur, ætti ég líka að geta mátað kölska, því ég máta prestinn okkar, sem er helgur maður og vígður, og mátar alla á eynni nema mig. Þegar bikup sá að drengúr kunni þannig fleira en tefla og gat svar- að vel fyrir sig, sendi hann strák á skóla og geröist hann síðan prestur, sem þá þótti mest virðing í landi hér. Það frægðarorð, sem um aldir hefir farið af skákíþrótt Grímsey- inga hefir sennilega oröið til þess að Gr'msey eignaðist mikinn vin og velunnara i lok síðustu aldar. Var það hinn auðugi ameríski fslands- vinur Willard Fiske. Hann kom aldrei sjálfur til Gríms- eyjar, en sá til eyjarinnar frá skipi er hann sigldi með norður fyrir land. Fannst honum mikið koma til þess fólks, sem byggði Grímsey norður við heimskaut og safnaði ekki veraldlegum auði, en haíði yndi af. góðum bókum og mann- tafli. Sjálfur var Fiske mikill skák- unnandí og skrifaði bók um mann- tafl á íslandi. Sendi hann til Gr'ms eyjar forkunnnr vönduð manntöfl á hvert heimili á eynni og voru taflborðin með reitum úr marglit- um marmara sunnan frá Róm. Þessum ágæta vini Grímseviar varð oftar hugsað til Gr.ímseyinga og gaf hann, eftir sinn dag, stóra fjárhæð, sem ávaxtast skyldi til bókakaupa handa bókasafni eyiar- skeggja. Auk þess gaf hann mikið safn úrvalsbóka, einkum um ferða- lög. veiðiskap og sjósókn. Bókasafn þetta er vandlega geymt í skápum í skólahúsinu við kirkjuna og þar er rneðal annars hægt að sjá tvö hundruð ára gamlar franskar bæk- ur um veiðitækni og fróðlegt að bera saman myndirnar af fiski- krókum þeirra tima við nælonnet og vélspil nútímans, Grírnseyingar meta mikils minningu þessa vel- FORSÍÐUMYNDIN. Frá Ur.msey. — iUsogarðar. Nyrzti kirkjustaðar á íslaiulj.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.