Tíminn - 03.07.1964, Qupperneq 6
RITSTJÓRI. OLGA AGÚSTSDoTTIR
LISTIN AO SMYRJA BRAUD1
vikma
Smurt brauð er alltaf viDsælt og hrein list að búa það tJL Danir eru meistarar á því
5VÍÍ0, og allir, sem hafa komið til Danmerkur, minnast með ánægju smurða brauðsins. Á
sumum matsölustöðum eru á matseðlinum allt að því 200 mismunandi brauðtegundir En það
er ekki einungis á matsölustöðum, þar sem smurt brauð er fáanlegt, á dönsku heimilunum
er smurt brauð algengur matur. Þegar brauð er smurt, verður að hafa eftirfarandi í huga:
Brauðsneiðarnar mega efcki vera of þykkar, og það verður að smyrja þær jafnt og vel
út á alla kanta. Áleggið þarf að vera vel úti látið og þekja alla brauðsneiðina. Þó má á-
leggiö ekki vera yfirdrifið, og það verður að fara vel saman.
öðruvísi er því varið með ameríska brauðið. Áleggið er oftast nær hakkað og
blandað í það majonesi, síðan er önnur brauðsneið sett ofan á og þetta er borðað án matar-
áhalda.
Hér á eftir birtum við myndir og uppskrift af danskri brauðtertu.
Hver mnndii ekld vilja skarta í
þessum baSslapp í Nanthóls-
víkinni í sumar. Þetta er það
síðasta í baðfatatizkumii og
saumað úr tveimur handklæð-
um úr frotté. Sniðið er ósköp
einfalt, öðrum inegin eru hand-
klæðiin alveg saumuð saman,
en á hinrti hliðinni er dtjörf
ldauf, sem minnir einna helzt á
kjólana hennar Suzy Worng.
Svona baðsioppair og kjólar
eru saumaðir úr litríku frotté,
og snfðið fer allt eftir hug-
myndaflugi og dugnaðl við
saumaskap.
i i
1
J
r /
|i|ip!
]j(l
'i'
j
líii ii!-! i’
jii;"
i ' ýi'
illiiiijiiiii]
_...........!
iiiPi
í i
Brauöterta
Eftirfarandi myndir sýna,
hvemig brauterta er búin til.
1. Skerið franksbrauð og rúg-
brauð í þunnar sneiðar á
lengdina.
2. Blandið fínsöxuðu kjötá-
leggi eins og skinku, saman
við smjörið og bragðbætið
með svolitlum pipar, eða
notið ostasmjör, sem er
lagað úr gráðaosti og
hrærðu smjöri.
3. Einnig má nota rækju-
smjör, en þá er fínsöxuð-
um rækjum blandað sam-
an við hrært smjör.
1 :
4. Smyrjið þykku lagi af osta!
smjöri á franskbrauð. Lát-1
ið þar ofan á rúgbrauðs-;
sneið og smyrjið hana með
skinkusmjörinu. Því næst;
er þykku lagi af rækju-l
smjöri smurt ofan á hveiti;
brauðið og það lagt ofan á, |
að endingu er rúgbrauðs-
sneið sett efst.
5. Skerið burtu alla kanta.
6. Smyrjið með ostasmjöri
efstu sneiðina.
7. Sprautið ostasmjöri á kant
ana. Raðið eggjum eftir
•miðjunni á tertunni og setj-
ið á þau kavíar.
8. Raðið rækjum meðfram
eggjunum og skreytð með
persilju, og raðið hálfum
gúrkusneiðum á hliðarnar.
Óhætt að
þvo sér
Það eru ekki allir hlutir, sem
hafa þolað vatn, og það hefur jafn-
vel verið talið af fegrunarsérfræð-
ingum, að hættulegt væri að þvo
sér í framan. En samkvæmt nýj-
ustu fréttum, er þetta orðið úrelt.
Vatnið er orðið móðins aftur.
, Allir mögulegir sérfræðingar
eru farnir að mæla með vatninu
sem því eina rétta, og getur fólk
(Framhaid a 11. siðu).
l '
II II Ii: :■ : i
Karlmenn eru örlátir
Karlmenn eyða meiri peningum f gjafir heldur en
konur, þær eyða aftur á móti meiri tíma til þess að
velja gjafirnar. Þetta höfum við allt eftir amerískum
rannsóknum. Þegar karlmenn eru á aldrinum 35—44
ára, eru þeir veikastir fyrir því að kaupa gjafir handa
kærustum, eiginkonum, mæðrum og vinkonum. Gjafa-.
aldurinn hjá konunum er aftur á móti 15-24 ára, og þær
kaupa ekki nærri því eins margar gjafir handa sínum
aðdáendum eins og karlmennirnir. Konur kaupa tölu-
vert af gjöfum handa börnum og jafnvel öðrum konum.
Það hefur líka sýnt sig, að karlmenn eru ekki eins
feimnir við að kaupa undirföt handa konunni og áður
var, og þeir eru jafnvel farnir að muna númerið á
undirfötum þeirra. Því hefur oftast verið haldið leyndu,
hve mikið gjöfin kostar, en nú virðist þetta ekki skipta
neinu máli lengur, því að allir geta komizt að raun um,
hve mikils virði hluturinn er, og því gleyma menn oft
að taka verðmiðann af.
Þessi sumarhattur fékk verðlaun
! í Svíþjóð á móti, sem húsmæður
! í Malmö héldu nýlega þar var
keppt um það, hver gæti búið til
frumlegasta og skemmtilegasta
hattinn Svanahattur þessi er bú-
^in til úr uppblásnum plastsvani,
sem er raunverulega barnaleik-
ifang, makkarónuköku og svo
skreyttur á hliðum og i kringum
hálsinn með marens. Býsna góð
hugm*ynd.
T í M I N N, föstudaginn 3. júlí 1964