Tíminn - 17.07.1964, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.07.1964, Blaðsíða 6
 VILHJÁLMUR Hjálmarsson er einn af þessum galvösku „vormönnum fslands“, sem fara til náms í framandi Iöndum og vekja þar athygli fyrir náms- gáfur og dugnað. Hann er nú nýbakaður arkitekt með hæsta próf, sem gefið er í College of Art í Edinborg, og að auki með heiðurspening frá Edinborg upp á vasann. Hann valdi sér ráðhúsið í Reykjavík sem próf verkefni. Og vegna þessa alls herjuðum við út viðtal við Vil- hjálm, um skólann og prófverk- efnið, um byggingarlist á fs- landi og í heiminum og sitt- hvað fleira af þessu tagi, sem á góma bar I leiðinni. Þannig er rá'ðhúsið, sem Vilhjálmur fékk svo glæsilegan vitnisburð fyrir. Lengst til hægri sést, hvernig hann hugsar sér tjörnina framlengda að Alþingishúsinu. Aðaltorgið er upphækkað, og undir þvi er geysimikil bílageymsla. í lágbyggingunni eru veizlusalir, fundarsalir og fleira til almennrar notkunar, auk þess sem borgarstjórinn hefur aðsetur sitt í einum hiuta hennar. í hábyggingunni eru allar skrlfstofurnar. flugvöllurinn hverfi, Reykjavík er nauðsyn á flughöfn, en e. t. v. þarf e'kki svona langar braut ir í framtíðinni. Þá setti ég fram hugmynd um borgarbóka safn sunnan Kirkjustrætis og svokallað „Public Auditorium“. Við Alþingishúsinu má ekki hrófla, en það er löngu orðið of lítið fyrir þingstarfsemina. Margt kemur til greina um framtíðarnotkun þess. Hug- myndir um að breyta því í Hæstarétt eða byggðasafn Revkjavíkur gætu staðizt. Ég held við sleppum lýsingu á ráðhúsinu sjálfu, þa'ð væri mik ið mál og hefur enga þýðingu. — Þetta hefur verið geysimik ið og vandasamt verkefni — Já, það kallaði svo imargt á mann í einu. — Hvað finnst þér annars um staðsetningu ráðhússins? — Staðsetningin er á margan hátt mjög skemmtileg. En það verður dýrt að byggja þarna og mörg hús, sem verða að Teíknaði ráðhús í Reykjavík verðla unaði og — Fyrst var það skólinn: — Hann tók mig fimm ár, fyrri hluti 3 ár, seinni hl.uti 2 ár. í sumarleyfum og jólaleyfum vann ég hér heinna, meðal ann ars hjá Húsnæðismálastofnun- inní, en þar vinn ég núna T þessúm skolá, sem Háskólinn. borgin og Scottish Academy og fleiri standa að, eru ýms- ar listgreinar kenndar, auk arkitektúrs, og kennslufyrir- komulag er þar eiginlega líkara og í menntaskólum hér en í Há- skólanum Við þurftum að stunda skólann og taka próf ár lega og standast þau til að geta haldið áfram. Ég kunni þessu vel, hið akademiska frelsi getur reynzt manni jafnvel fjöt ur um fót. það veitir ekki af aðhaldi við langskólanám — Þetta er ríkur skóli. Það er Skota einum að þakka. Andrew hét hann. — Hann fór til Ameríku og auðgaðist vel, en sneri aftnr til Skot lands í ellinni, og þegar hann hann dó, ánafnaði hann þess- um skóla megnið af ríkidæmi sínu. Þetta er því einn ríkasti listaskóli í Evrópu og veitir marga styrki Ég fékk t d ferðastyrk eftir annað árið og dvaldist í London á vegum skipulagsstofnunarinnar þar, L. C. C.. í viku Eftir fjórða ár fékk ég aftur ferðastyrk. og þá ferðaðist ég um Þýzkaland. Sviss og Frakkland og kynnti mér byggingarlist í þessum löndum eftir því, sem tök voru á. Og enn voru þeir að reka í mig smástyrk uim daginn sem ég ve*t reyndar ekki. hvort ég get nutað — Sóttirðu ekki kvonfana í þennan skóla? — Jú. hann hefur reýnzt mér vel að flestu leyti. Konan mín. Borghildur Óskarsdóttir var þar við nám. nú síðari árin í keramik. — Og það er gott að stúdera í Edinborg? — .Tá. þetta er kyrrlát og þægileg borg og fátt, sem glep ur frá námi, nema þá helzt fegurð borgarinnar: Húsa- kynni eru þar að vísu ákaflega •Mmu. \ Hvenær. þyrjaðirðmá próf , gun.fllpunv, ; verkefninu, ráðhúsinu? — í janúar s. 1. Ég hefði átt að byrja fyrr, en fékk frest til þess að ég gæti aflað mér tiauðsynlegra gagna í jólaleyf- íjjm Qg þau fékk ég, að öðru leyti en því. að ég fékk ekki Vilhjálmur meS verSlaunapeninginn. (Tímamynd, GE). að vita þarfirnar í sambandi við ráðhús hér, og varð ég því að beita mínu hyggjuviti og styðjast við alþjóðlegar þarfir fyrir ráðhús í borg af þessari stærð. j'— Þetta var umfangsmikið vérkefni óg erfitt. einkum- vegna þess, að ég varð að gera grein fyrir svo mörgu í kring- um það, svo að dómendur gætu áttað sig á því, sem um er að ræða. Fyrsti kafli ritgerðarinn- ar var t. d. lýsing á sögu og þjóð, þar var rakin söguleg þró un þjóðarinnar og borgarinnar fram á okkar daga. Svo var lýs- ing á lóðinni og staðháttum ýf irleitt, söguleg rannsókn sem ég gerði á ráðhúsum í heimin- uim, tekin dæmi um ný ráðhús. sem eitthvað hafa sér til ágæt- is. Þarna kom mér auðvitað að miklu gagni gott bókasafn, sem ég hafði aðgang að. Nú, svo voru það þarfir ráðhússins og hinna ýmsu deilda þess og sam band deildanna innbyrðis og stærð þeirra í ferfetum — iá. því að við vinnum í fetum. — Svo varð ég auðvitað að taka með í reikniiiginn. að ráð- húsið er aðeins hluti af öðru stærra. og ég setti fram hug- mynd uim uppbyggingu miðbæ.i arkjarna. Ég hugsaði mér ráð- húsið á þessum stað. sem búið er að samþykkja hér, fram- lengdi tjörnina að Alþingishús inu, gerði Tjarnargötuna að gangandi svæði, staðsetti stjórn arráð og nýtt alþingishús sunn an tjarnarinnar. en hugmynd að stjórnarsetri á þeim stað hef ur þegar komið fram. Þetta er vitaskuld aðéins stuttorð lýs ing á hugmynd um miðbæjar kjarna sem þessi hús mundu mynda þarna í kvosinni ásamt Háskólanum Norræna húsinu og fleiri opinberum bygging- um. sem þarna mætti reisa. þvi að þarna rnundu opnast mögu leikar til áframhaldandi þróun ar suður úr. Ég tek það fram. fli* és geri ekki ráð fyrir. að hverfa. Til dæmis gef ég Iðn- aðarbankanum ekki nema 5 ára lífstíð á mínu skipulagi, hann hlýtur að hverfa, því að þarna úfilokar hann eðlilega uppbyggingu fyrir ráðhús. — Þarna hljóta líka að hverfa ýmsar byggingar, sem -hafa a. m. k. ákveðið sögulegt gildi og sum einnig, hvað snertir fs- lenzka byggingarlist — Og fyrir ráðhúsið þitt fékkstu hæstu viðurkenningu, sem gefin er við þennan skóla. — Það skilst mér. Við vor- um tveir með svipaða einkunn. Hinn er Breti, sem valdi sér sem prófverkefni uppbyggingu íbúðarhverfis í Edinborg. •— Og peningurinn? — Ég hafði ekki hugmynd um hann. fyrr en ég kom til skólaslita Borgaryfirvöld Ed- inborgar veittú hann fyrir „Civic Design“ — Hvar í heiminum telur þú að byggingarlist sé á hæsta stigi í dag? — Því er vandsvarað. En þetta fer mest eftir lífsafkomu þjóða Ég tel Skandinavíu standa á háu stigi í byggingar- list. Þar vil ég fyrsta telja Finna Þeir hafa líka Alvar Aalto. — En við aumir íslendingar? — Jú, hér er iögð ákveðin rækt við vissa hluti Smekkur- inn er í rauninni réttur, en takmarkaður Ég mundi segja, að hús væru hér yfirleitt ljót, en sterk. hlý og rúmgóð Hí- býlagæðin eru hér á háu stigi. — Hvað finnst þér um þetta byggingaræði einstaklinga hér? — Ég þekki engin dæmi um þetta annars staðar Þetta virð- ist vera íslenzk árátta að eign- ast sitt eigið þak þegar í upp- hafi búskapar. hvort sem efni T í M I N N , föstudaginn 17. júlí 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.