Tíminn - 17.07.1964, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.07.1964, Blaðsíða 13
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fuiltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta stjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson Kitstjórnarskrifstofur i Eddu-luisinu. simai 18300— 18305 Skrii stofur Bankastr 7. Afgr.sim) 12323 Augl. sími L9523 Aðrai skriístofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan fands — I lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.i Sigur Goldwaters Orslitin á flokksþingi republikana í Bandaríkjunum urðu á þann veg, að Goldwater var útnefndur forsetaefni flokksins með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Þetta er sögulegur og áhrifamikill atburður, jafnvel þótt Gold- water verði ekki kjörinn forseti í kosningunum í haust. íhaldsöflin meðal republikana hafa tekið völdin í flokkn- um í sínar hendur og eru líkleg til að halda þeim. nema Goldwater bíði því meiri ósigur í kosningunum. Undir forustu þeirra mun flokkurinn færast í þá att að verða afturhaldsflokkur í vaxandi mæli. Hingað til hafa það verið frjálslyndari öflin, sem hafa ráðið mestu í flokkn- um og því stundum verið erfitt að greina á milli repu- blikana og demókrata. Goldwater hefur á undanförnum árum verið sá af leiðtogum republikana, sem lengst hefur staðið til hægri. Hann hefur ekki viljað taka afstöðu gegn öfgahreyfing- tmum, sem lengst eru til hægri, t. d. John Birch-félags- skapnum, en samtök þessi hafa lagt kapp a að stimpla íoringja demókrata og jafnvel ýmsa foringja republik- ana undirlægjur kommúnista, svikara við þjóðina o. s. ífv. Á flokksþingi republikana nú, reyndi Nelson Rocke- íeöer að fá því framgengt, að afstaða yrði tekin gegn þessum öfgasamtökum og þeim réttilega skipað í flokk með kommúnistum, en hann var klappaður niður af þfagheimi. Það er ömurleg sönnun þess, hvernig spillt- nstu öfgaöfl hafa náð tökum á öðrum aðalflokki Banda- rfkjanna. Það eru mikil vonbrigði fyrir frjálslynda menn um all- m heim að sjá afturhaldið vera að magnast i Banda- rikjunum jafn gífurlega og útnefning Goldwaters ber vitni um. Það má líka telja víst, að áhrifin af þessum viðgangi ameríska afturhaldsins munu ná langt út fvrir Bandaríkin. Sigur Goldwaters á flokksþingi republikana mun gera hann að fyrirmynd afturhaldsmanna um víða veröld, nema hann bíði því meiri ösigur í kosningunum í haust. Þessara áhrifa mun áreiðanlega eiga eftir að gæta hérlendis eins og víða annars staðar. Þrjár meginstefnur Eftir sigur Goldwaters á þingi republikana er það mun Ijósara eftir en áður, að nú gætir þriggja megin- stefna í heiminum, þótt þær geti verið nokkuð mismun- andi í framkvæmd vegna ólíkra aðstæðna í vmsum lönd- um. Þessar stefnur eru íhaldsstefnan, sem Goldwater verð- ur nú helzti merkisberi fyrir, kommúnisminn og frjáls- lynd og umbótasinnuð vinstri stefna eins og sú, sem fylgt er af jafnaðarmönnum í Bretl. og á Norðurlöndum og frjálslyndum demókrötum í Bandaríkjunum. Af hálfu íhaldsmanna og kommúnista, mun verða lögð mikil áherzla á að telja aðalstefnurnar ekki nema tvær, íhalds- stefnu og kommúnisma. Þeir munu reyna að halda þvi fram, að fylgismenn hinnar frjálslyndu umbótastefnu séu stefnulausir og beri kápuna á báðum öxlum, eins og Goldwater segir nú um Johnson forseta. Reynslan sýnir hins vegar glöggt að þær þjóðir. sem lengst hafa búið við frjálslynda og lýðræðissinnaða vinstri stefnu, eins og Norðurlönd, skara fram úr á flestum svið um. Þótt að sjálfsögðu sé mörgu enn ábótavant þar. er almenn velmegun og menning hvergi meiri og sambúð- arhættir hvergi betri. Þetta mætti vera íslendingum glöggur leiðarvísir. T í M I N N, föstudaginn 17. iúlí 1964 — Mannaskiptin í Sovétríkjunum Heimsækir Mikojan Kína sem forseti Sovétríkjanna? NOKKRU eftir að Krustjoff kom heim úr Norðurlandaferð- inni, hófst fundur í æðsta ráði Sovétríkanna. Ýmsir bjuggust við, að Krustjoff myndi nota þennan fund til að gera upp sakirnar við Kínverja, sem herða nú stöðugt róðurinn gegn honum, og kalla hann nú m.a. orðið hreinræktaðan kapital- ista. Krustjoff virðist hins veg- ar hafa lalið, að hann gæti betur svarað Kínverjum á ann- an hátt. Eina ræðan, sem hann hefur flutt á fundum æðsta ráðsins og birt hefur verið op- inberlega, fjallaði um lífskjörin í Sovétríkjunum og lýsti Krust- joff m.a. yfir því, að laun yrðu hækkað verulega hjá allmörg- um stéttum og jafnframt kom- ið upp eftirlaunakerfi. í fram- haldi af þessu hafa svo verið tilkynnt mikilvæg mannaskipti í stjórn Sovétríkjanna, sem virðast miða að því að treysta aðstöðu Krustjoffs og að stefnu hans verði fylgt áfram. þótt hann falli frá KRUSTJOFF sagði í ræðu sinni, að hann liti á það sem mikilvægasta hlutverk flokks- ins og stjórnarinnar að bæta lífskjörin í landinu í þessu fólst óbeint svar ' til Kínverja og sennilega það, sem Krust joff hefur talið áhrifamest, eins og sakir standa. Krustjoff lýsti því að frainleiðsla Sovétríkj anna hffði .aukizt um &.7% á árinu 1962, þrátt fyrir. upp- skerubrest og væri þetta að þakka eflingu iðnaðarms Hani taldi uppskeruhorfur nú góðai en uppskeran heíur mjög brugðizt tvö undanfarin ár. Þá tilkynnti hann verulega launa hækkun, er nær til um 18 millj. starfsmanna eða kennara lækna, hjúkrunarfólks ug verzlunar- og skrifstofufólks Loks sagði hann, að komið yrði á nýju og fullkomnara eftir launakerfi, og myndi það m.a mjög bæta aðstöðu bænda )g landbúnaðarverkamanna í ræðum sínum áður, heíui Krustjoff oft verið óragur að deila á það, sem miður fer atvinnuvegunum, en hann sleppti því að þessu sinni. Hann vildi auðsjáanlega gefa þá mynd að nú stefndi í rétta átt í Sovétríkjunum. Þessi gagn rýni heidur hins vegar áfram ■ Anastas Mikojan Brésnéf rússneskum blöðum Þannig birti Pravda nýlega grein um. að miklar vörubirgðir söfnuo OSt fyrir. einkum yefnaðarvö.' ur, vegna þess að 'vörurnar váeru svo lélegar og óvandaðar. að fólk vildi ekki kaupa þær Margar verksmiðjur legðu meiri áherzlu á magnið en vörugæðin og þannig færi ó- hemjufjármagn og vinnuafl t'orgörðum. Pravda lofaði bót á þessu með strangara eftir liti Þetta sýnir hins vegar, að jfskipulagning sósíaliskra fram 'eiðsluhátta er ekki minna var- hugaverð en vanskipulagnina íhaldsstefnunnar. ÞAÐ ERU annars manna- skiptin, sem vekja mesta at- hygli Brésnéf, sem verið hefur forseti Sovétríkjanna síðan 1960, iætur nú af þvi starfi og gerist i staðinn virkari í flokks- starfinu verður sennilega einn al aðalframkvæmdastjórum Kommúnistaflokksins. Þetta styrkir þá trú, að Brésnéf sé ákveðinn eftirmaður Krúst- joffs. Brésnéf er 57 ára gamall eða 13 árum yngri en Krust ioff. Hann er verkamannsson- ui frá Ukrainu og er námufræð ingur að menntun Hann hefur þó lítið sinnt verkfræðistört- unum. heldui gegnt ýmsum smbættum i flokknum, og um langt skeið verið náinn sam verkamaður eða aðstoðarmaðUT Krustjoffs Hann hefur unda» farið verið talinn nánasti sam- verkmaður Krustjoffs Líklegt þykir. að Krustjoff ætli nú að gera Brésnéf að staðgengli sin- um í flokksstarfinu og undir búa það þannig, að hann taki við. þegar Krustjoff dregur sig - hlé eða fellur frá Einstaka fréttir herma þó, að verið sé að ýta honum til hliðar vegna þess. að hann hafi gerzt of ráð- ríkur í fjarveru Krustjoffs Þetta þykir bó ekki trúlegt VIÐ STARFI Brésnéfs sem forseta Sovétríkjanna, tekur Anastas Mikojan, sem oft hef- ur verið nefndur maðurinn með, „níu líf“. Mikojan er 68 ára gamall og er eini maðúr- inn, sem enn gegnir stjómar- störfum af þeim, sem komu mest við sögu í byltingunni 191Ý Hann er Armeníumaður að uppruna, prestlærður, en mun þó aldrei hafa tekið vígslu. Hann var snemma náinn sam- verkamaður Stalíns og einn fárra, er slapp lifandi gegnum allar „hreinsanir". Eftir fráfall Stalírs hefur hann jafnan fylgt Krustjoff Mikojan var lengi verzlunarmálaráðherra Sovét- ríkjanna, en á síðari árum hef- ur hann verið fyrsti varafor- sætisráðherra og ferðazt víða sem sérstakur fulltrúi Krust- joffs. Nýlega var hann t.d. í [ndónesíu og hann hefur oft t'arið til Kúbu. Mikojan þykir klókur samningamaður Það þykir vel ráðið, að hann ljúki ferli sínum sem forseti Sovét- ríkjanna, en það er aðallega tignarstaða. Líklegt þykir þó, að Krustjoff muni áfram styðj- ast við ráð hans og muni jafnvel ætla honum þýðingar- miklar sendiferðir sem forseta Sovétríkjanna. Sá orðrómur hefur komizt á kreik. að Mikojan kunni að vera ætlað bráðlega að heim- sækja Kína Hann er sagður hafa ráðið Krustjoff frá því að láta koma til endanlegra frið- slita við Kína að sinni, m.a. væri rétt að bíða eftir úrslitum forsetakjörsins í Bandaríkjun- um. Og nokkuð er það, að Krustjoff hefur ekki aðeins lát- i'ð Kínamálin hverfa í skuggann á fundum æðsta ráðsins að þessu sinni, heldur látið nægja að svara Kínverjum óbeint Þ.Þ. 1S

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.